Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Side 2
Þriðjudagur 5. maí 20092 Fréttir
Magnús Þorsteinsson er fyrsti íslenski
útrásarvíkingurinn sem úrskurðað-
ur hefur verið persónulega gjaldþrota
eftir að efnahagshrunið skall á í haust.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
kvað upp úrskurð þess efnis í gær að
bú hans yrði tekið til gjaldþrotaskipta
vegna vanefnda við fjárfestingarbank-
ann Straum-Burðarás.
Magnús skuldar Straumi rúm-
an milljarð króna vegna sjálfskuldar-
ábyrgðar sem hann skrifaði upp á
árið 2007 þegar hann keypti BOM-
fjárfestingar af fjárfestingafélaginu
Sjöfn. BOM-fjárfestingar fengu lán-
ið frá Straumi-Burðarási árið 2005 og
tók Magnús hana yfir. Straumur gerði
ítrekaðar tilraunir til að fá skuldina
greidda upp eftir að hún hafði gjald-
fallið í byrjun september árið 2008,
samkvæmt úrskurði héraðsdóms.
Í byrjun febrúar var gerð kyrrsetn-
ingargerð hjá Magnúsi til að tryggja
skuldina en gat hann þá ekki bent á
eignir hér á landi sem dugað hefðu
til að standa skil á greiðslu skuldar-
innar. Samkvæmt úrskurðinum svar-
aði Magnús því hins vegar til að hann
ræki umfangsmikla viðskiptastarfsemi
í Rússlandi og væri fyllilega fær um að
standa í skilum við lánardrottna. Jafn-
framt taldi Magnús að ekki væri hægt
að taka bú hans til gjaldþrotaskipta hér
á landi því lögheimili hans væri skráð í
Rússlandi en ekki hér á landi.
Hæpið að þrotabú Magnúsar
standi undir skuldinni
Samkvæmt heimildum DV er afar hæp-
ið að nægilega miklar eignir séu inni í
þrotabúi Magnúsar til að hægt verði að
standa skil á skuldinni við Straum. En
í úrskurði héraðsdóms kemur fram að
ekkert hafi komið fram sem styðji þær
fullyrðingar hans að hann geti stað-
ið skil á skuldbindingum sínum við
bankann. Auk þess er ekki ljóst hvert
þrotabú Magnúsar er, hversu mikl-
ar eignir hann á hér á landi og hversu
miklar eignir hann á í Rússlandi.
Magnús byggði vörn sína í málinu
í öðru lagi á því að hann ætti ekki lög-
heimili á Íslandi vegna þess að hann
hefði flutt lögheimili sitt til Rússlands
og því væri ótækt að taka bú hans til
gjaldþrotaskipta hér á landi. Í úrskurð-
inum segir að lögheimili Magnúsar
hafi verið á Íslandi þegar gjaldþrota-
krafan barst til dómsins og því muni
dómurinn fylgja kröfunni eftir þar en
ekki í Rússlandi.
Fastlega er gert ráð fyrir að Magnús
áfrýji dómi héraðsdóms til Hæstarétt-
ar en það hefur ekki fengist staðfest og
DV hefur hvorki náð tali af Magnúsi né
lögmanni hans, Benedikt Ólafssyni.
Samkvæmt heimildum DV á gamli
Landsbankinn auk þess háar útistand-
andi kröfur á Magnús Þorsteinsson og
hefur skilanefnd bankans átt í viðræð-
um við hann upp á síðkastið um að
greiða þær. Ekki er vitað hvernig þær
viðræður hafa gengið.
Björgólfur opnar sig: Skuldar
Landsbankanum 58 milljarða
persónulega
Í gær opnaði Björgólfur Guðmunds-
son, fyrrverandi viðskiptafélagi Magn-
úsar úr Samson-hópnum, persónulegt
bókhald sitt í fréttatilkynningu sem
hann sendi til fjölmiðla. Í henni kem-
ur meðal annars fram að Björgólfur sé
í sjálfskuldarábyrgð við Landsbank-
ann fyrir lán sem eru alls um 58 millj-
arðar króna. Í tilkynningunni kemur
jafnframt fram að eignir Björgólfs hafi
lækkað úr 143 milljörðum í ársbyrjun
2008 og niður í 15 til 27 milljarða króna
í dag.
Stærsti hluti skulda Björgólfs við
Landsbankann, um 50 milljarðar
króna, eru ábyrgðir fyrir eignarhalds-
félagið Gretti sem tengdar eru Eim-
skipafélaginu og Icelandic en stjórn
Grettis mun óska eftir því við Hér-
aðsdóm Reykjavíkur að félagið verði
tekið til gjaldþrotaskipta á næstunni.
Innlendar og erlendar skuldir Björg-
ólfs við aðrar lánastofnanir munu svo
verða kunngerðar síðar, að því er segir
í tilkynningunni.
Björgólfur líkt og Magnús virðist
því ekki eiga eignir til að standa skil á
sjálfskuldarábyrgðum sem þeir skrif-
uðu upp á. Óvíst er hins vegar eins og
er hvort Björgólfur verður keyrður í
þrot persónulega því ekki liggur ljóst
fyrir hversu mikið af eignum Björgólf-
ur mun geta lagt á móti skuldunum.
Líklegt mun þó þykja að Björgólfur
fari sömu leið og Magnús miðað við
það sem vitað er um eignastöðu hans
í dag.
„Þeir enda allir persónulega í
þroti“
Samkvæmt heimildum DV skrifuðu
margir fleiri auðmenn en þeir Magn-
ús og Björgólfur upp á sjálfskuldar-
ábyrgðir vegna skulda hjá fjármála-
fyrirtækjum sem þeir munu þurfa að
standa skil á fljótlega. Þetta þýðir að
ef þeir geta ekki staðið í skilum vegna
skuldanna geti fjármálafyrirtækin
gengið beint á viðkomandi einstakling
og sett hann í þrot ef svo ber undir.
Fjöldi þeirra auðmanna sem skrif-
FYRSTI GJALDÞROTA
ÚTRÁSARVÍKINGURINN
„Allir þessir helstu útrásarvíkingar eru með sjálf-
skuldarábyrgðir úti um allan bæ. Þeir enda allir
persónulega í þroti.“
IngI F. VILHjáLMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Magnús Þorsteinsson var úrskurðaður gjaldþrota fyrir héraðsdómi í gær. Hann skuldar Straumi-Burðarási
rúman milljarð króna. Fyrrverandi viðskiptafélagi Magnúsar, Björgólfur guðmundsson, skuldar Landsbank-
anum persónulega tæpa 60 milljarða en eignir hans rýrnuðu um meira en 110 milljarða á síðustu 17 mánuðum.
Magnús og Björgólfur eru hins vegar, samkvæmt heimildum, aðeins tveir af helstu auðmönnunum sem eru
með sjálfskuldarábyrgðir sem falla munu á þá á næstunni.
Landsbankaeigendurnir í slæmum málum
magnús Þorsteinsson og Björgólfur guðmundsson, sem keyptu kjölfestuhlut í
Landsbankanum ásamt Björgólfi Thor Björgólfssyni, eru tveir af þeim auðmönnum
sem eru í afskaplega slæmum málum samkvæmt tíðindum gærdagsins.
naFn FéLagS VerðMætI 1. 1. 2008 30. 6. 2007
Landsbanki íslands 81 ma. kr. 90 ma. kr.
Straumur-Burðarás 28 ma. kr . 41 ma. kr.
Eimskip 16 ma. kr. 19 ma. kr.
icelandic 3 ma. kr. 4 ma. kr.
West Ham united 15 ma. kr. 15 ma. kr.
Samtals 143 milljarðar króna 169 milljarðar króna
EIGNIR BJöRGóLFS NÚ ERU mETNAR Á 15 TIL 27 mILLJARðA KRóNA
EIGNIR BJöRGóLFS ÁRIN 2007-2008