Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Page 10
Sá tími sem líður frá því gjalddagi á afborgun á láni fellur, þar til eign hef- ur verið boðin upp, getur verið lengri en eitt ár. Allir sem sjá fram á nauð- ungarsölu húsnæðis geta fengið söl- unni frestað út október á þessu ári en þetta var inntak laga sem ríkisstjórn- in setti nú í vor. Síðustu daga hefur umræða um greiðsluverkfall mjög færst í aukana. Hagsmunsamtök heimilanna hafa sagt í fjölmiðlum að þeim fjölgi ört sem eru á barmi þess að kikna und- an síhækkandi greiðslubyrði. Langt ferli Nærri lætur að Íbúðalánasjóður hafi um 80 prósenta markaðshlutdeild. Því má gera ráð fyrir að stór hluti þeirra sem eiga í greiðsluvandræð- um séu með lán hjá Íbúðalánasjóði. Á heimasíðu sjóðsins sést að ferl- ið, sem fer í gang þegar fólk getur ekki greitt greiðsluseðla, er býsna langt. Eftir mánuð frá gjalddaga sendir sjóðurinn ítrekun vegna greiðsluseð- ilsins. Eftir fjóra og hálfan mánuð frá elsta ógreidda gjalddaga læt- ur Íbúðalánasjóður birta skuldara greiðsluáskorun. Eftir einn mánuð til viðbótar sendir sjóðurinn sýslu- manni nauðungarsölubeiðni en þá eru fimm til fimm og hálfur mánuð- ur liðinn frá því elsti gjalddagi hefur fallið. Eftir tvo til þrjá mánuði til viðbót- ar fer fram fyrirtaka hjá sýslumanni og uppboð er auglýst í dagblöðun- um. Engin nauðungarsala í sumar Hafa ber í huga að lög sem ríkis- stjórnin sett í lok mars kveða á um að öllum nauðungarsölum einstaklinga megi fresta til 31. október. Það gerist ekki sjálfkrafa heldur þarf viðkom- andi að sækja um frestunina. Á með- an það tímabil varir safnar lánið ekki dráttarvöxtum heldur einungis þeim vöxtum sem samið var um þegar lán- ið var tekið. Eftir einn og hálfan mánuð frá fyr- irtöku hefst uppboðið á eigninni en innan fjögurra vikna frá byrjun upp- boðsins fer fram svokallað framhald á uppboði. Það er lokaskrefið í ferl- inu. Þetta ferli Íbúðalánasjóðs við inn- heimtu getur því tekið allt að einu ári. Hjá þeim sem hafa ákveðið að hætta að borga, eða hafa ekki getað staðið í skilum á þessu ári, tekur þetta ferli enn lengri tíma, vegna þeirra laga sem ríkisstjórnin setti í lok mars. Getur leigt húsnæðið Samkvæmt breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti, sem dómsmála- ráðherra setti fyrir um mánuði síð- an, getur skiptastjóri, með sam- þykki veðhafa, heimilað skuldara að búa áfram í húsnæði í eigu búsins í allt að tólf mánuði. Fyrir þau afnot skal hann greiða eins konar leigu, sem nemur að minnsta kosti þeim kostnaði sem er af eigninni, en það sem umfram er gengur til greiðslu krafna sem tryggðar eru með veði í eigninni. Þetta gildir til 1. mars 2010. Þriðjudagur 5. maí 2009xx Neytendur Leigjendasam- tökin Lifna við Fyrirspurnir til Neytendasamtak- anna um leigjendur hafa aukist mikið undanfarið, að því er kem- ur fram á heimasíðu samtak- anna. „Því er sérstakt ánægjuefni að Leigjendasamtökin hafa verið endurvakin eftir að hafa legið niðri í nokkur ár,“ segir þar. Þar kemur einnig fram að ráðgjöf er í boði eftir hádegið á mánudögum, þriðjudögum og föstudögum en nánari upplýsingar um hvert leita skal má finna á ns.is, undir liðn- um „molar“. „Neytendasamtökin hvetja áhugasama til að aðstoða við uppbyggingu Leigjendasam- takanna og skrá sig í samtökin, en félagsaðild er ókeypis um sinn,“ segir enn fremur á heimasíðunni. dýrt að gLeyma skoðun Það getur verið dýrt að gleyma sér. Bifreiðaeigendur eru því minntir á að gleymist að fara með bílinn í skoðun, getur sá hinn sami fengið allt að fimmtán þús- und króna sekt, sem hann þarf að greiða næst þegar hann fer í skoðun. Ef viðkomandi getur ekki greitt sektina við skoðun, hækk- ar sektin um allt að 100 prósent. Á móti kemur að 50 prósenta afsláttur er veittur af sektinni, greiðist hún innan ákveðins tíma. Rétt er einnig að minna öku- menn, sem aka enn um á negld- um dekkjum, á að tuttugu þús- und króna sekt er við því að aka um á nagladekkjum á sumrin. Fimm þúsund á hvert dekk. n Lastið fær Fjarðarkaup fyrir hátt verð á Saga pro heilsubótarefni. Viðskiptavinur keypti 40 töflur á rúmar 2.300 krónur í Fjarðarkaup- um. Þegar töflurnar kláruðust fór viðskiptavinurinn í Lyfjaver á Suðurlandsbraut þar sem sama vara fæst á 1.600 krónur. Hann mun framvegis versla þar. n Lofið fær verslunin Brynja við Laugaveg. Ánægður viðskiptavinur hafði samband við DV og sagði að þar væri þjónustan frábær, sama hversu lítið er keypt. Viðmótið sé ævinlega til fyrirmyndar og þeir sem afgreiða eru hjálpsemin uppmáluð. SENdið LOF Eða LaST Á NEYTENdur@dV.iS Dísilolía algengt verð verð á lítra 153,8 kr. verð á lítra 159,6 kr. skeifunni verð á lítra 152,3 kr. verð á lítra 158,1 kr. algengt verð verð á lítra 153,8 kr. verð á lítra 159,6 kr. bensín kænunni verð á lítra 151,6 kr. verð á lítra 157,6 kr. fjarðarkaupum verð á lítra 151,7 kr. verð á lítra 157,7 kr. algengt verð verð á lítra 153,8 kr. verð á lítra 159,6 kr. umSjóN: BaLdur guðmuNdSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is el d sn ey t i Mikill verðmunur á árskortum í líkamsræktarstöðvar: Ódýrt í nautiLus Nautilus rekur sjö líkamsræktar- stöðvar á Íslandi og hefur samtals um 8 þúsund meðlimi. Árskort fyr- ir þá sem hvorki eru námsmenn né eldri en 60 ára kosta á bilinu 25.990 til 33.990 krónur og er Nautilus því á meðal ódýrustu líkamsræktar- stöðva landsins. Innifalið í árskort- inu er aðgangur í sund. DV sagði í síðustu viku frá því að verðmunur í stærstu líkams- ræktarstöðvum höfuðborgarsvæð- isins væri um 40 prósent. Árskort- in sem voru borin saman kostuðu á bilinu 50 til 73 þúsund krónur; reyndist ódýrast í Baðhúsinu en dýrast í Hreyfingu. Forsvarsmenn Nautilus bentu DV góðfúslega á mikla útbreiðslu keðjunnar, bæði hér á landi og á Norðurlöndunum. Verðin eru einnig með því sem best ger- ist. Nærri lætur að þrjú árskort megi kaupa í Nautilus fyrir eitt í Hreyfingu. Líkamsræktarstöðv- ar Nautilus er að finna við Sund- laug Kópavogs, Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði, Salalaug í Kópavogi, Íþróttamiðstöðina á Álftanesi, Íþróttamiðstöðina í Vestmanna- eyjum, Íþróttamiðstöðina í Vog- um og við sundlaugina á Sel- fossi. baldur@dv.is BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Þrjú kort á verði eins Verðmunur hjá líkamsræktarstöðvum er mjög mikill. AÐGERÐiR ÍBúÐALáNASjóÐS - TÍMAMöRk 1. greiðsluseðill – mánaðar-, ársfjórðungs- eða árlega. 2. ítrekun – Eftir mánuð frá gjalddaga. 3. greiðsluáskorun – Eftir 4½ mánuð frá elsta ógreidda gjalddaga. 4. Nauðungarsölubeiðni – Eftir um mánuð frá greiðsluáskorun. 5. Fyrirtaka hjá sýslumanni – Eftir 2–3 mánuði frá móttöku nauðungarsölubeiðni. 6. Byrjun uppboðs – Eftir 1½ mánuð frá fyrirtöku. 7. Framhaldsuppboð – innan fjögurra vikna frá byrjun uppboðs. Ef þú hættir að borga Þetta ferli Íbúðalána-sjóðs við innheimtu getur því tekið allt að einu ári. Innheimtuferli Íbúðalánasjóðs getur tekið meira en eitt ár. Að þeim tíma liðnum á ein- staklingurinn kost á því að leigja húsið í eitt ár í viðbót. Síðustu daga hefur umræðan um greiðsluverkfall komist í hámæli. Hér má sjá hvernig ferlið gengur fyrir sig, hjá þeim sem hafa lán hjá Íbúðalánasjóði. Hægt að sækja um frestun umræða um greiðsluverkfall er nú fyrirferðarmikil og margir sjá ekki fram á að geta staðið í skilum. Engin nauðungaruppboð munu fara fram fyrr en eftir 31. október.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.