Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 5. maí 2009 9Fréttir
Við vinnum fyrir þig og
lækkum verðið um 25%
af allri þjónustu
Hár Snyrting Neglur Nudd
Hver sgata 125 við Hlemm
Sími 55-10-10-2
100% hjólastólaaðgengi
Vax
Litun
Nudd
Tattoo
Neglur
Strípur
Klipping
Andlitsböð
Hárlenging
Fótsnyrting
Litun og plokkun
Augnaháralenging
Hársport - herra - dömu - barna
Eyþór Grétar Birgisson keypti skuldlausan bíl og brá því í brún þegar hann var tekinn af honum að beiðni
lögfræðistofunnar Löggarðs. Ungur sonur Eyþórs var einn heima þegar menn komu og fjarlægðu bílinn. Þeir
hótuðu því að draga bílinn í burtu ef hann afhenti þeim ekki lyklana. Eyþór fékk bílinn aftur frá Löggarði
viku síðar án nokkurra skýringa.
SVIPTUR BÍLNUM Í SJÖ DAGA
„Þegar ég keypti bílinn var hann án
nokkurra veðbanda. Það hvíldi ekk-
ert á honum. Síðan veit ég ekki fyrr
en menn frá vörslusviptingafyrirtæki
koma og gera bílinn upptækan,“ segir
Eyþór Grétar Birgisson leigubílstjóri.
Hann keypti notaða Land Rov-
er Discovery-bifreið í gegnum Toy-
ota-umboðið á Selfossi í janúar. Fyrir
viku mættu síðan heim til hans menn
frá Vörslusviptingum ehf. sem sögð-
ust hafa fyrirskipanir um að gera bíl-
inn upptækan vegna áhvílandi skulda.
„Ungur sonur minn var einn heima.
Hann hringdi beint í mig. Ég bað þá
um að láta bílinn vera en þeir neituðu
því. Mennirnir sögðu síðan við son
minn að ef hann léti þá ekki fá lyklana
myndu þeir draga bílinn í burtu þannig
að hann þorði ekki annað en að láta þá
hafa lyklana,“ segir Eyþór.
Ótengt gjaldþrot
Eyþór varð sér úti um þinglýsingar-
vottorð hjá Sýslumanninum í Reykja-
vík þar sem kemur fram að engin
veðbönd eru á bílnum. Hann hafði
þá samband við lögmann sem komst
að því að lögmannsstofan Löggarð-
ur hafði farið fram á upptöku bílsins
vegna gjaldþrots sendibílafyrirtækis-
ins S. Ó. Jónsson ehf. „Ég tengist þessu
fyrirtæki ekkert,“ segir Eyþór og tekur
fram að hann hafi aldrei starfað þar.
Þegar hann grennslaðist betur fyrir
kom í ljós að S. Ó. Jónsson átti bílinn
frá október 2007 og til janúar 2009. Þá
var Sigurvin Ómar Jónsson, eigandi
S. Ó. Jónssonar, skráður fyrir bílnum í
fimm daga áður en Eyþór keypti
hann á bílasölunni.
Fær bílinn aftur
Eyþór undraðist mjög að bíll sem
hann hefði greitt að fullu, með
engar skuldir áhvílandi og sem
ekki hefur verið gefið út af sýslu-
manni að gera eigi upptækan væri
tekinn af honum. Hann setti sig
þá í samband við Löggarð. „Þeir
sögðu mér að þeir gætu ekki leið-
rétt þetta. Mér var sagt að skipta-
ráðandi yfir S. Ó. Jónssyni ehf. væri
erlendis og það þyrfti að bíða eftir
honum til að geta skoðað þetta betur.
Þeir héldu því bílnum áfram og vildu
ekki einu sinni gefa mér upp hvenær
hann kæmi til landsins,“ segir Eyþór.
Í gær fékk hann síðan þau skilaboð í
gegnum lögmann sinn að bílnum yrði
skilað aftur, en engar frekari skýring-
ar gefnar. „Þeir eru auðvitað búnir að
halda bílnum mínum í viku. Mér finnst
þetta allt mjög undarlegt,“ segir Eyþór.
Hann er þó feginn að fá bílinn aftur.
Heimild í lögum
Sigurvin Ómar Jónsson staðfestir í
samtali við DV að hann hafi ekki vit-
að nein deili á Eyþóri fyrr en honum
bárust fregnir um að hann hefði verið
sviptur bílnum og sú skýring gefin að
það tengdist gjaldþroti S. Ó. Jónssonar.
Sigurvin hafði þá samband við Lögg-
arð. „Þeir vildu meina að ég væri að
reyna að koma bílnum undan áður en
þetta fór í gjaldþrot,“ segir hann.
Þær hugmyndir voru hins vegar
ekki á rökum reistar og Eyþór var án
bílsins í viku vegna málsins.
Guðni Á. Haraldsson, lögmaður hjá
Löggarði ehf., neitaði að tjá sig nokk-
uð um málið þegar blaðamaður hafði
samband við hann í gær.
„Mér finnst þetta allt
mjög undarlegt.“Erla HlynsdÓttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Bíllaus Eyþór grétar Birgisson undrast
að hægt sé að taka af honum bíl vegna
gjaldþrots fyrri eigenda bílsins.
Mynd siGtryGGur ari JÓHannsson
Engin veðbönd
Þingslýsingarvottorðið sýnir
að ekkert hvíldi á bílnum.
löggiltur eigandi
Eyþór er skráður eigandi
bílsins frá 19. janúar 2009.
Afskipti ríkisbankanna af rekstri fyrirtækja valda vaxandi áhyggjum:
ríkisbankar virði samkeppni