Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Page 21
Þriðjudagur 5. maí 2009 21Fókus á þ r i ð j u d e g i Þrælkun eða Þroskandi vinna? Laugardaginn 9. maí verður haldið málþing í Þjóðminjasafni Ís- lands um vinnu barna og mun það bera yfirskriftina Þrælkun eða þroskandi vinna? Þjóðminjasafnið og UNICEF á Íslandi standa fyrir málþinginu en á sama tíma verður í gangi sýningin Þrælkun, þroski, þrá, þar sem sýndar eru myndir af íslenskum börnum við fiskvinnu á árunum 1930-1950. rut í salnum Rut Berg Guðmundsdóttir flautu- leikari heldur útskriftartónleika sína í Salnum í Kópavogi í kvöld klukkan 20.00. Tónleikarnir eru þeir áttundu í röðinni í útskriftartónleikaröð tón- listardeildar Listaháskóla Íslands. Á efnisskrá eru verk eftir J.S. Bach, P.Taffanel, Martinu, Prokofiev og Atla Heimi Sveinsson en meðleik- arar á tónleikunum eru Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanó, Þórður Þorsteinsson, selló, og Hafdís Páls- dóttir, píanó. Fernir tónleikar eru eftir en alls útskrifuðust 19 nemend- ur frá deildinni í vor. kalli25 Karl Guðmundsson myndlistar- maður opnar sýninguna KALLI25 í Gallerí Ráðhús á Akureyri klukk- an 12.15 í dag. Sýningin er partur af List án landamæra en verk Kalla á sýningunni eru unnin með olíulitum á bókbandspappa. Kalli er alvarlega mál- og hreyfi- hamlaður ungur maður sem býr yfir góðum skilningi. Þrátt fyrir fötlun sína tekst Kalla að koma til skila þeirri næmu listrænu til- finningu sem býr innra með hon- um. Hann hefur unnið myndlist sína í samstarfi við Rósu Kristínu Júlíusdóttur myndlistakonu und- anfarin ár. menningarlandið Menntamála-, samgöngu- og iðnað- arráðuneytin standa fyrir ráðstefn- unni Menningarlandið dagana 11. og 12. maí næstkomandi í Stykkis- hólmi. Frá árinu 2001 hafa þessi ráðuneyti gert samninga við sjö samtök sveitarfélaga á Íslandi. Land- ið allt, utan höfuðborgarsvæðisins, er þannig tengt saman með menn- ingasamningum og starfi sjö menn- ingarráða. Á ráðstefnunni verður þetta starf metið og framtíðarhorf- ur þess. Ráðstefnan fer fram á Hótel Stykkishólmi og eru allir sem á einn eða annan hátt tengjast menning- arstarfi eða ferðamálum hvattir til að mæta á ráðstefnuna. Hægt er að finna nánari upplýsingar á ferda- malastofa.is. Mike O´Donell (Matthew Perry) komst að því við upphaf mikilvæg- asta körfuboltaleiks lífs síns að kær- astan hans væri ófrísk. Hann hljóp því af velli og varð af leik sem hefði getað tryggt honum háskólastyrk og glæsta framtíð. Þegar hér er kom- ið sögu hafa liðið 20 ár og hann er ennþá bitur vegna þessara hluta. Líf hans er í rugli, konan hans er að yfirgefa hann og hann á í mjög takmörkuðu sambandi við krakk- ana sína. Það er þá sem hann fær einstakt tækifæri til að lifa lífinu aftur frá þeim tíma sem mistökin miklu áttu sér stað. Hann byrjar aft- ur í gamla skólanum sínum og situr skyndilega á skólabekk með dóttur sinni og sonur hans gengur einnig í sama skóla. Hann fer í körfuboltaliðið, vinn- ur að uppgangi barna sinna og á fljótlega í sambandi við fyrrverandi konu sína án þess að neinn viti hver hann er í raun. Hugmyndin er allt í lagi og minnir mann um margt á Back to the Future. En útkoman er mun síðri. Við sjáum Zac Efron í 20 ára gömlu dansatriði, fáum ör- fáa sæmilega brandara, sjáum unga Mike daðra við dóttur sína, mökk- lélegar brellur og nokkrar slakar slagsmálasenur sem enda sem bet- ur fer alltaf á því að söguhetjan fær á baukinn. Aulahrollurinn er yfir- gengilegur, sérstaklega í slow-mot- ion atriði þegar 17 ára Mike kem- ur í nýjum fötum og bíl í skólann. Við sitjum hér uppi með fyrirsjá- anlega og klisjukennda mynd um unglingaþungun sem er jafn slök og Juno var góð. Gott og gilt að hetj- an ráðist gegn einelti vonda kallsins og hvetji til aukinnar sjálfsvirðing- ar klappstýranna en skírlífisáróður- inn er illskiljanlegur. Ungi Mike flyt- ur yfir bekknum sínum hrikalega væmna ræðu um að njóta eingöngu ásta í hjónabandi og þá með barn sem tilgang og takmark. Að henni lokinni skila allir bekkjarfélagar hans smokkunum sem þeim höfðu verið afhentir af kennaranum. Nema vondi kallinn að sjálfsögðu. Hann er jafnframt á föstu með dótt- ur Mikes sem vinnur markvisst gegn því að hún eigi í ástarsambandi og sleik. Hinsvegar vinnur hann ötul- lega að framgangi sonar síns í hans kvennamálum. 17 Again er undar- leg, klisjukennd og plebbaleg skír- lífisþvæla. Erpur Eyvindarson Pant ekki vera 17 aftur X-Men Origins: Wolverine er fjórða myndin um hina fjölbreyttu og skemmtilegu X-Men, venjulegt fólk sem býr yfir óvenjulegum hæfileikum vegna stökkbreytinga í erfðamengi mannkynsins. Myndin gerist á undan hinum þremur og fjallar um eina mest heillandi persónu þeirra, hann Jarva, eða Wolverine sem er leikinn af Hugh Jackman. Sagan segir frá því hvernig Wolver- ine þurfti að yfirgefa heimili sitt ung- ur ásamt bróður sínum Victor Creed vegna þess dýrslega eðlis sem býr innra með þeim. Á upphafsmínútun- um var svo rúllað hratt yfir það hvern- ig þeir bræður slógust í öllum stríð- um heimsins frá borgarastyrjöldinni í Bandaríkjunum til stríðsins í Víetnam. Á endanum varð ofbeldið of mikið fyr- ir Wolverine á meðan Victor varð blóð- þyrstari og blóðþyrstari. Þeim var svo boðin leið til þess að nýta hæfileika sína landi sínu til góðs þegar William nokkur Stryker setur saman hóp X- manna. Ekki er allt sem sýnist og þegar slátra á saklausu fólki ákveður Wolver- ine að segja skilið við hópinn og reyna að lifa eðlilegu lífi. Hann verður ást- fanginn og fær nokkur ár í friði. En for- tíðin finnur hann að lokum með ófyr- irséðum afleiðingum. Myndin, sem á að vera ein af stór- myndum sumarsins, verður það ef- laust í aðsóknartölum en aldrei hvað gæði varðar. Eins og við var að búast er hún uppfull af hasar og alls kyns flott- um brellum. Fullt af spennandi kar- akterum með skemmtilega krafta líta dagsins ljós en maður fær það á til- finninguna að þeir séu meira uppfyll- ingarefni eða til sýnis frekar en alvöru- persónur. Dýpt þeirra er svo lítil. Ástarsamband Wolverine, sem hef- ur gríðarleg áhrif á persónu hans, er nokkuð ósannfærandi. Kemíkin á milli Hugh Jackman og mótleikkonu hans er einstaklega lítil. Það er helst að deilur Wolverine við bróður sinn, sem er leik- inn af Liev Schreiber, séu spennandi. Þeir tveir sýna skástan leik í myndinni og er eiginlega hlaupið yfir áhugaverð- asta part myndarinnar á fyrstu þremur mínútum hennar. Þar sem sýnt er frá baráttu þeirra í hinum ýmsu stríðum heimsins í gegnum tíðina. Eftir því sem líður á myndina verður hún í raun súrari og súrari og uppgjör Wolverine við hið ógurlega Weapon 11 minnti mig frekar á atriði úr myndunum Resident Evil held- ur en nokkuð annað. Eftir stendur frekar tilþrifalítil hasarmynd sem er í raun ekkert nema flottar tæknibrellur og lélegir brandarar. Eitthvað sem er alltof algengt í dag. Ásgeir Jónsson X-Men Origins: WOlverine Leikstjórn: gavin Hood Aðalhlutverk: Hugh jackman, Kodi Smit-mcPhee, Liev Schreiber, danny Huston, ryan reynolds, Taylor Kitsch, Lynn Collins, will.i.am, dominic monaghan, daniel Henney. kvikmyndir Grjótharður Beingrind úr geimmálmum. Hlaupið yfir besta kaflann Hugh Jackman og Liev Schreiber Samband þeirra bræðra hefði mátt fá meiri athygli og sérstaklega fortíðin. 17 AgAin Leikstjórn: Burr Steers Aðalhlutverk: Zac Efron, Leslie mann, Thomas Lennon, matthew Perry, michelle Trachtenberg, melora Hardin, Hunter Parrish, jim gaffigan. kvikmyndir 17 Again Það er sívinsælt í Hollywood að gera myndir þar sem fólk yngist eða eldist skyndilega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.