Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2009, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2009, Qupperneq 17
Miðvikudagur 20. Maí 2009 17Sport Ferrari sterkt í Mónakó Finnski ökuþórinn kimi raikkonen hjá Ferrari hefur ekki lagt árar í bát þrátt fyrir afspyrnu slæmt gengi liðsins á tímabilinu. raikkonen sem varð heimsmeistari fyrir tveimur árum hefur aðeins náð stigum í einni keppni. Næst tekur við keppni á Spáni um helgina en eftir það er komið að hinni sögufrægu Mónakó-braut þar sem raikkonen telur Ferrari munu koma sterkt inn. „Staða okkar er mjög erfið, sérstak- lega þar sem ég og Massa erum aðeins með þrjú stig hvor. En við ætlum ekkert að gefast upp, heldur bæta bílinn og bæta stöðu okkar. Bíllinn verður bara betri með hverri keppni og þegar við mætum til Mónakó hef ég trú á að við verðum mjög sterkir. Næstu æfingar munu samt gefa sterk merki um hvað koma skal,“ segir raikkonen. Sigurður Ingimundarson, landsliðs- þjálfari í körfubolta, hefur valið hóp- inn sem mun leik fyrir hönd Íslands á Smáþjóðaleikunum sem fram fara í byrjun næsta mánaðar á Kýpur. Ís- lenska liðið á titil að verja frá Smá- þjóðaleikunum en það hafði sigur á þeim í Mónakó fyrir tveimur árum á eftirminnilegan hátt. Hvorki besti körfuboltamaður landsins, Jón Arnór Stefánsson, né Hlynur Bæringsson verða með en vonast var til þess að þeir gætu náð mótinu. Jón Arnór stendur í ströngu með ítalska liðinu Benetton Treviso sem hann fór til eftir að hann varð Ís- landsmeistari með KR. Úrslitakeppn- in á Ítalíu tekur brátt við. Helmingur hópsins sem Sigurður Ingimundarson valdi fyrir þessa ferð varð meistari með liðinu fyrir tveimur árum en Sigurður velur einn nýliða. Það er miðherjinn sterki Fannar Freyr Helgason, fyrirliði Stjörnunnar, sem átti afar gott tímabil í ár og var lykil- maður Garðbæinga í leið þeirra að bikarmeistaratitlinum. Á Kýpur leikur íslenska liðið fimm leiki á fimm dögum. Gegn Möltu, Kýpur, Andorra, Lúxemborg og San Marínó. tomas@dv.is evra Fékk vernd Patrice Evra, vinstri bakvörður Englandsmeistara Manchester united, sagði eftir leikinn gegn arsenal um helgina þar sem liðið varð meistari að hann hefði fengið sérstaka vernd frá dómara leiksins, Mike dean. Evra sagði eftir meistaradeildarleik liðanna á dögunum að þar hefðu karlmenn verið að spila gegn börnum. Fór það afar illa í Cesc Fabregas, fyrirliða arsenal, og Samir Nasri, sem létu í veðri vaka að Evra fengi að kenna á því í deildarleiknum. „Þeir skildu bara ekki húmorinn minn. Mér finnst gaman að stríða mönnum. Þegar leikurinn var að byrja kom dómarinn að mér og sagði að hann ætlaði að vernda mig fyrir arsenal-mönnunum þannig ég ætti ekki að vera með einhver læti á móti,“ segir Evra. uMSjóN: tóMaS Þór ÞórðarSoN, tomas@dv.is inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif- stofustjóri Íþrótta- og tómstunda- „Við lítum svo á að börnin séu að taka þátt í formlegu frístunda- starfi á frístundaheimilunum en þar fer fram margs konar starf- semi sem er sniðin að aldri þeirra og þörfum. Þá taka ekki öll börn sem sækja frístundaheimilin þátt í öðru frístundastarfi og þótti ástæða til að gefa foreldrum þeirra möguleika á að nýta kortið til að greiða niður dægradvölina. Það skal þó tekið fram að full vistun á frístundaheimili kostar um 8.000 FiMMtudagur 1. deild karla 14:00 Fjarðabyggð - ÍA Eskifjarðarvöllur 16:00 Leiknir - KA Leiknisvöllur 2. deild karla 14:00 Tindastóll - ÍH/HV Sauðárkróksvöllur 14:00 BÍ/Bolungarvík - KS/Leiftur Torfnesvöllur 14:00 Grótta - Hamar Gróttuvöllur 14:00 Magni - Höttur Boginn 14:00 Njarðvík - Hvöt Njarðtaksvöllurinn, Njarðvík 14:00 Víðir - Reynir S. Garðsvöllur Næstu leikir Sigurður Ingimundarson búinn að velja fyrir Smáþjóðaleikana: Jón og Hlynur ekki Með ÍSLeNSKA LIðIð Bakverðir: Hörður axel vilhjálmsson keflavík Logi gunnarson Njarðvík Magnús Þór gunnarsson Njarðvík Pavel Ermolinski La Palma Þorleifur ólafsson grindavík Framherjar: jóhann Árni ólafsson Proveo Merlinsr jón Norðdal Hafsteinsson keflavík Páll axel vilbergsson grindavík 84 Sigurður Þorvaldsson Snæfelli Miðherjar: Fannar Freyr Helgason Stjörnunni Fannar ólafsson kr Sigurður gunnar Þorsteinsson keflavík Logi Gunnarsson varð Smáþjóðaleika- meistari með íslandi fyrir fjórum árum. MyNd RóBeRT ReyNISSoN „Það glitti í hníf í buxnastrengnum hjá einum,“ segir tæplega fertugur stuðningsmaður Selfoss sem varð vitni að ryskingum stuðningsmanna ÍR og Skjálfta, stuðningsmannasveit- ar Selfoss, eftir 5-2 sigurleik þeirra síðarnefndu á útivelli í Breiðholtinu síðasta föstudag. Skjálftamenn gengu glaðir frá ÍR-vellinum, syngjandi: „5- 2 fyrir Selfoss,“ meðal annars og það líkaði nokkrum stuðningsmönnum ÍR ekki. Samkvæmt vallargestum sem DV ræddi við sátu þessir ÍR-ingar ekki í stúkunni, heldur héldu til í brekku við völlinn og drukku bjór. Skjálfta- menn voru þó einnig í glasi. „Ég hef aldrei séð svona áður á Íslandi. Þetta var virkilega óþægilegt. ÍR-ingarnir voru með mikil læti og gerðu sig lík- lega til að ráðast á Selfyssingana. Þeir voru mjög æstir og mér leist ekkert á blikuna. Þeir huldu andlit sín en sá sem hafði sig mest í frammi í þessu var vel merktur sínu félagi,“ segir vitni að atburðinum. „drullið ykkur heim“ Ragnar Traustason, formaður Skjálfta, var í miðri hringiðjunni. „Eftir leikinn erum við að rölta út í rútu, syngjandi og sáttir með okkar menn. Þá sé ég þessa ÍR-inga tala sig saman og rölta svo út á plan þar sem þeir mæta okkur. Þar fóru þeir að öskra: „Drullið ykkur heim,“ og voru ekki sáttir að við værum að syngja. Þar ógnuðu þeir okkur með grjóti og sumir sem ég hef talað við sáu glitta í hníf hjá einum þeirra,“ segir Ragnar en hversu langt gekk þetta? „Þetta voru aðallega orðaskipting- ar og ýtingar. Þeir voru samt virkilega að ógna okkur, sérstaklega sá sem hélt á grjótinu allan tímann. Svo voru þeir að stinga hausnum ofan í okkur á meðan við reyndum að komast inn í rútuna. Það voru svona tveir sem höfðu sig mest í frammi í þessu en fyrir aftan þá stóðu nokkrir til viðbót- ar sem virtust bara bíða eftir því að fá að skerast í leikinn ef þetta hefði æxl- ast út í einhver slagsmál. En ég, sem formaður, reyndi bara hvað ég gat að koma mönnum inn í rútu sem tókst á endanum og við keyrðum heim. Sá sem hélt á grjótinu sleppti því en reyndi eitthvað að berja í rútuna þeg- ar við keyrðum í burtu,“ segir Ragnar Traustason, formaður Skjálfta. Viðurlög ekki útilokuð „Ég hef ekkert heyrt um þetta og ekki séð skýrslu eftirlitsmanns. Það hefur ekkert borist inn til mín“ sagði Þórir Hákonarson, framkvæmda- stjóri KSÍ, við DV í gær. Aðspurður um hvort svona atburður gæti kom- ið niður á ÍR sagði Þórir eðlilega að hann ætti erfitt með að tjá sig þar sem hann vissi ekkert um málið en sagði það þó ekki útilokað. Ólíklegt er að nokkuð verði aðhafst í þessu máli því þegar DV hafði samband við eftirlitsmann leiksins, gamla dómarann, Egil Má Markússon, kannaðist hann ekki við neitt. „Ég fór bara inn í klefa að ræða við dóm- arana eftir leik. Þegar ég kom þaðan út svona um korter yfir tíu var ekkert í gangi,“ sagði Egill Már. tomas@dv.is TóMAS ÞóR ÞóRðARSoN blaðamaður skrifar: tomas@dv.is „Þeir voru samt virki- lega að ógna okkur, sérstaklega sá sem hélt á grjótinu allan tím- ann“ Til ryskinga kom eftir stórsigur Selfoss gegn ÍR, 5-2, í fyrstu deildinni síðastliðinn föstudag. Nokkrum skemmdum eplum úr stuðningsmannahópi ÍR líkaði illa hversu vel Skjálfti, stuðningsmannasveit Selfyssinga, fagnaði eftir leik og biðu eftir þeim á bílastæðinu. Glitti í hníf hjá einum, segir vitni. Sungið og trallað Hluti Skjálfta- hópsins skemmtir sér í Breiðholtinu á meðan á leik stendur. til ryskinga kom þegar flautað var af. MyNd FóTBoLTI.NeT< selFyssinguM ógnað Með grJóti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.