Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2009, Síða 21
Miðvikudagur 20. Maí 2009 21Fókus
á miðvikudegi
Hvað Heitir
lagið?
„Og Obi-Wan og Anan-
kin, annað kyn, R2D2, Obi-
Wan og Anankin. Í síðasta sinn,
kinn við kinn, Sandra Kim,
hvert fór hinn?“
Heitur
plötusnúður
Breski plötusnúðurinn Funkagenda
spilar á London/Reykjavík (gamla
Gauknum) í kvöld. Fýrinn sá er
sagður einn af heitari plötusnúðum
Evrópu um þessar mundir. Funk-
agenda er höfundur hinnar skondnu
útgáfu af What the Fuck sem segja
má að hafi komið honum á kortið,
ásamt endurhljóðblöndun á laginu
The Man with the Red Face sem
Laurent Garnier gerði ódauðlegt.
Ásamt Funkagenda ætlar einvala lið
plötusnúða að spila á tónleikunum á
London/Reykjavík í kvöld en um er
að ræða eitt af hinum epísku Smirn-
off-kvöldum. Húsið verður opnað
klukkan 23, miðinn er á 1.500 krón-
ur og er forsala í verslunum Blend,
Kringlunni og Smáralind.
Kraumar víða
Myndband ástralska New
York-búans Stuarts Rogers um
Kraumsverðlaunin - Kraum-
ur Awards 2008 document-
ary - hefur farið víða á netinu,
til að mynda birst á Facebook,
YouTube, Vimeo og vefsvæði
Kraums á LoFi.tv. Nú hefur
bandaríska tímaritið SPIN val-
ið myndbandið til birtingar á
nýjum myndbanda-vef sínum,
SPINearth.tv, til að sýna lesend-
um og áhorfendum brot af tón-
listarlífi Reykjavíkur. Meðal þeirra
sem koma fram í myndbandinu
eru hljómsveitirnar Agent Fres-
co, FM Belfast og Mammút auk
tónskáldsins Daníels Bjarnason-
ar, Eldars Ástþórssonar, fram-
kvæmdastjóra Kraums, og Óla
Palla á Rás 2.
listin breytir
Heiminum ...
Listin breytir heiminum, listin við-
heldur óbreyttu ástandi er yfirskrift
málþings sem fram fer á Kjarvals-
stöðum í hádeginu á morgun. Á
meðal fyrirlesara eru Árni Matthí-
asson blaðamaður, Eiríkur Örn
Norðdahl rithöfundur, María Krist-
jánsdóttir leiklistargagnrýnandi
og Ragna Sigurðardóttir myndlist-
argagnrýnandi. Útvarpsmaðurinn
Hjálmar Sveinsson stýrir málþinginu
sem er hluti af Listahátíð í Reykjavík.
Málþingið hefst klukkan 12 og er að-
gangur ókeypis.
Í fljótu bragði datt mér í hug að það
væri ekkert vitlausara til í heiminum
en svartur samuræ, reykjandi rúll-
að tóbak, talsettur af Samuel L. Jack-
son í Highlander-leik. En auðvitað er
margt vitlausara. Um er að ræða has-
arleik sem byggður á samnefndum
teiknimyndum. Þar sem menn eru
einmitt í einhverskonar Highland-
er-leik og skylmingamenn heimsins
berjast um hver er bestur. Heilu skól-
arnir og klaustrin blandast inn í og
okkar maður er eins og Lando Cal-
rissian, cajun style. Hakka sig í gegn-
um hina ýmsu óvini með ýmsum
brögðum.
En hvolfum öllu á botninn. Leik-
urinn er mjög skemmtilegur fram-
an af en verður svo nokkuð þreyttur,
eins og algengt er með svona leiki.
Tónlistin er eftir RZA og hún er geð-
veik, sérstaklega þegar hún er hömr-
uð inn í takt við bardagann. Grafíkin
er mjög flott og skemmtilega öðru-
vísi en gengur og gerist. Og þannig
er nú það. Afro Samurai kemur ekki
til með að vinna nein verðlaun eða
vera á topplistum yfir bestu leiki árs-
ins. En það er alltaf gaman að skera
menn í tvennt og hafa gargandi rödd
Sam Jackson á bakvið. Það er eitthvað
ferskt og sumarlegt, þó svo að það vari
bara í 6 til 15 klukkustundir. Bújá.
Dóri DNA
Margt vitlausara
Alfreð Elíasson var eldhugi á sviði
flugs á lands- og heimsvísu. Heim-
ildamyndin sýnir okkur hvern-
ig hann blómstrar gegnum malbik
þeirra undarlegu viðskiptahátta sem
hafa tíðkast meðal Íslendinga. Hann
kemur á fót flugfélagi og er í kjölfar-
ið brautryðjandi á flestum sviðum
sem tengjast geiranum. Ég sit í bíó-
salnum og fylgist með gömlu fólki
staulast inn. Það spyr hvort sætin
séu númeruð og talar upphátt þeg-
ar það þekkir einhvern á hvíta tjald-
inu, sem er býsna oft. Myndin lítur
ef til vill ekki spennandi út fyrir fólk
í yngri kantinum en á engu að síður
erindi og er prýðilega kynnt í sam-
ræmi við mikilvægi efniviðsins. Hún
nær sennilega ekki til þeirra sem
ekki hafa áhugann fyrir en áhuga-
menn um flug, sagnfræði og þeir
sem rekja ætterni og kunningsskap
til starfsvettvangs Alfreðs eru nú dá-
góður hópur. Myndin byrjar hálf-
undarlega, grafíkin er lítið flott og
pixluð á allavega einum stað. Áferð-
in virðist lítið unnin og það er klippt
of snaggaralega á lög og hljóð sem
vinnur gegn flæðinu. Ýmislegt fleira
er hroðvirknislega unnið. Eins og
þegar ritari Alfreðs klórar sér ítrekað
á bringunni þar sem hljóðneminn er
og eyðileggur þar af leiðandi hljóðið
í miðri dramatískri lýsingu. Heim-
ildamyndaformið sem notast er
við er af gamla skólanum og það er
spurning hvort slíkt eigi heima í kvik-
myndahúsi í dag. En smátt og smátt
sekkur maður sér inn í merkilega
frásögn þess mikla fjölda viðmæl-
enda sem prýðir myndina. Loftleið-
ir birtast manni sem stór fjölskylda
sem hefur frá nógu að segja af gríni
og alvöru. Saga af flugslysi Geysis
á Vatnajökli setur kraft í myndina
rétt eins og björgun á „strandaðri“
björgunarflugvél Bandaríkjamanna.
Gullaldartími Loftleiða er vel út-
færður. Það er spennandi að sjá
hvernig „hippaflugfélagið“ er frum-
kvöðull lággjaldaflugs í heiminum
og kaup þeirra á Air Bahama er upp-
haf þotualdar í íslensku flugi. Hér
er borin á borð frásögn af viðskipt-
um sem við skiljum, hin klassískari
hugsun í fyrirtækjarekstri sem virð-
ist vera útdauð. Myndin er hvetj-
andi einmitt þegar útrásarvíking-
arnir okkar hafa haft svo gagnstæð
áhrif. Við sjáum líka hvernig gjör-
spillt öfl léku starf frumkvöðulsins
grátt. Hvernig verðmatið á eignum
við sameiningu Flugfélags Íslands
og Loftleiða var makað af óheilind-
um. Loftleiðir voru í raun étnar af
öflum sem við þekkjum alltof vel.
Það er undarlegt að Kolkrabbinn sé
ekki settur skýrar í samhengi við þá
skítugu framvindu. Myndin er fyrir
rest vel þess virði, þótt einhver segði
að jafn magnaður maður ætti skilið
magnaðri mynd.
Erpur Eyvindarson
Ævintýri
Þr mufleygs
Afro SAmurAi
Útgefandi: Surge
Tegund: Spenna
Spilast á: PS3/Xbox 360
tölvuleikir
Afro Samurai Mjög
skemmtilegur framan
af en verður svo
nokkuð þreyttur.
Alfreð elíASSon
og loftleiðir
Leikstjóri: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
kvikmyndir
Alfreð Elíasson
Hann var eldhugi á sviði
flugs á lands- og heimsvísu.
Svar:
keyrðu mig heim með Á móti sól