Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Side 2
Fimmtudagur 4. Júní 20092 Fréttir Seðlabankinn hefur ótrú á því að aðstoða heimili í vanda með því að fella niður húsnæðisskuldir þeirra að hluta. Jafnframt telja bankastjór- ar Seðlabankans að húsnæðisveðlán heimila í greiðsluvanda séu eftir sem áður ein besta eign banka og sjóða og hafa þeir lýst þeirri skoðun sinni í bréfi til forsætisráðherra. Í utandagskrárumræðum um stöðu heimilanna á Alþingi í gær vísaði Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra meðal annars til um- sagnar Seðlabankans um þá leið sem Gísli Tryggvason talsmaður neytenda lagði til fyrir skemmstu. Hún fól í sér afbrigði þeirrar leiðar að afskrifa hluta húsnæðisskulda. Jóhanna sagði að þessar leiðir væru ófærar í núverandi stöðu og myndu leggja á ríkissjóð hundruð milljarða króna klafa. „Fram kemur að tillög- ur um flata niðurfellingu skulda séu enda ómarkvissar og kostnaðarsam- ar leiðir til að leysa úr vanda þeirra sem brýnast þurfi á slíku að halda. Þær færa líka mikið fjármagn frá skattgreiðendum til þeirra sem ekki þurfa á aðstoða að halda,“ sagði Jó- hanna. Húsnæðisskuldir með bestu veðum bankanna Athyglisvert er að Svein Harald Öy- gård seðlabankastjóri og Arnór Sig- hvatsson aðstoðarseðlabankastjóri segja nánast fullum fetum í bréfi sínu til forsætisráðherra að þrátt fyrir veika stöðu heimilanna og þverrandi greiðslugetu þeirra séu húsnæðis- veðlán með verðmætustu eignum nýju bankanna. Það myndi koll- steypa tilraunum til að koma fótum undir fjármálakerfið ef bankar og aðrar fjármálastofnanir yrðu að bera niðurfærslu húsnæðisveðlána bóta- laust. „Einnig er vert að benda á að verðmati eigna nýju bankanna er nær lokið og fjótlega þarf að taka endanlega ákvörðun um skiptingu þeirra milli nýju og gömlu bankanna. Yrðu fasteignaveðlán bankanna tek- in eignarnámi, sem og fasteigna- veðlán annarra fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða myndi það setja allt það ferli í uppnám. Fasteignaveðlán eru umtalsverður hluti eigna nýju bankanna og margra annarra fjár- málafyrirtækja. Án þeirra stæðu eftir bankar sem væru enn berskjaldaðri gagnvart sveiflum á gengi krónunn- ar en nýju bankarnir eru nú, mið- að við fyrirliggjandi drög að efna- hagsreikningi. Gjaldeyrisáhættan er einn stærsti vandinn sem leysa þarf við endurreisn bankakerfisins. Yrði farið eftir tillögum talsmanns neyt- enda væri nauðsynlegt að fullar bæt- ur komi fyrir svo endurreisa megi lífvænlegt bankakerfi á Íslandi, það er að segja greiða þyrfti bönkunum markaðsverð fyrir íbúðaveðlánin miðað við áætlað endurheimtuhlut- fall þeirra. Þrátt fyrir erfiðleika heim- ila er líklega um að ræða einhverjar tryggustu eignir þeirra. Eftir stæði því mjög veikburða bankakerfi sem erfitt yrði að byggja upp að nýju.“ 30 þúsund í alvarlegum vanskilum um áramót Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var málshefjandi í utandagskrárumræð- unum og kvaðst hafa nýjar upplýs- ingar úr fjármálaráðuneytinu og frá Creditinfo ehf. um alvarleg og vax- andi vanskil einstaklinga og heimila. Samkvæmt gögnum frá Creditinfo væru 18.733 á vanskilaskrá. Sjöföld- un hefði orðið á alvarlegum vanskil- um einstaklinga, fyrstu fjóra mán- uði þessa árs, frá sama tíma í fyrra, og horfur væru á að þeir yrðu um 30 þúsund í lok ársins. Sigmundur gagnrýndi ríkisstjórn- ina fyrir að vanrækja að upplýsa þjóðina og þingið um stöðu efna- hagsmála. Samkvæmt spá fjármála- ráðuneytisins yrðu 30 þúsund heim- ili tæknilega gjaldþrota, eða með neikvæða eiginfjárstöðu, í lok næsta árs. Það stefndi í ógurlegt ástand yrði ekkert gert næstu fimm til sex árin. Jóhanna Sigurðardóttir sagði að skuldavandi heimilanna væri ekki jafn víðtækur og haldið hefur verið fram. „Eftir að lög ríkisstjórnarinnar, sem heimiluðu frestun á nauðungar- sölum, tóku gildi hefur nauðungar- sölum eðlilega fækkað stórlega. Frá lokum mars var 71 eign seld á nauð- ungaruppboði en 354 uppboðum var frestað. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa því komið að miklu gagni hvað þetta varðar þó ekki hafi allir nýtt sér heimildir til frestunar uppboðanna,“ sagði Jóhanna og bætti við að gjald- þrotaúrskurðir væru því sem næst helmingi færri nú en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt uppýsingum DV frá sýslumannsembættunum í Reykja- vík og Kópavogi sem og frá embætti Tollstjórans í Reykjavík fara inn- heimtumenn ríkisins ekki fram með sama þunga og áður í innheimtuað- gerðum sínum eins og Jóhanna lýsti. Engu að síður fjölgi vanskilum veru- lega, ekki síst meðal fólks sem aldrei hefur lent á vanskilaskrá fyrr. Teygjulán og bómullargjaldþrot Þráinn Bertelsson, Borgarahreyfing- unni, taldi gott að 60 prósent heim- ilanna gætu plumað sig og ættu ekki að lenda í vanskilum. „Þetta er dásamlegt ... Hitt er ekki jafn jákvætt að þá er eftir að huga að hinum 40 prósentunum sem ekki pluma sig og lenda í verulegum vanskilum.“ Reyndar bentu nýjar upplýsingar til þess að 42 prósent heimilanna væru með neikvæða eða afar þrönga eig- infjárstöðu og þessum heimilum væri boðið upp á sértækar, flókn- ar og jafnvel lítillækkandi aðgerðir. „Teygjulán, bómullargjaldþrot og því um líkt. Þau búa við handstýrða vísitölu og þau búa við handstýrða okurvexti. Og þau búa við þá vitn- eskju að alþýðu Íslands verður fal- ið að greiða ekki bara sínar skuldir upp í topp heldur líka skuldir verstu óreiðumanna sem Íslandssagan kann frá að greina ... Það eru engar heilstæðar eða altækar aðgerðir fyr- irhugaðar.“ JóHann Hauksson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Húsnæðisstritið mestu verðmæti bank a Lilja Mósesdóttir „nauðsynlegt er að leiðrétta höfuðstól húsnæðislána til þess að draga úr fjölda þeirra sem verða gjaldþrota.“ sigríður Ingibjörg Ingadóttir Vaxta- lækkun erlendis sem örva á atvinnulífið lækkar einnig vexti húsnæðislána. Þráinn Bertelsson „teygjulán, bómullargjaldþrot og því um líkt. Þau búa við handstýrða vísitölu og þau búa við handstýrða okurvexti.“ arnór sighvatsson og svein Harald Öygård Húsnæðisveðlán heimilanna eru með tryggustu eignum bankanna og án þeirra óskertra geta þeir ekki verið að mati seðlabankastjóranna. Húsnæðisveðlán heimilanna eru meðal skástu og öruggustu eigna bankanna þó svo að drjúgur hluti þeirra rísi ekki leng- ur undir skuldum. Seðlabankinn telur ófært að endurreisa bankakerfið nema fasteignaveðlán heimilanna verði óskert og því myndi niðurfærsla þeirra valda uppnámi. Credit- info spáir því að allt að 30 þúsund manns verði í alvarleg- um vanskilum um næstu áramót. Stjórnvöld telja vanda heimilanna ýktan um leið og þau telja vanda ríkissjóðs alvarlegri en áður var talið. Málshefjandinn Líklegt er að um 30 þúsund manns glími við alvarleg vanskil um næstu áramót, segir Sigmundur davíð gunnlaugsson. Hann sakar ríkisstjórnina um kjarkleysi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.