Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Qupperneq 10
miðvikudagur 24. júní 200910 Neytendur Banna efni í pelum Dönsk stjórnvöld hafa samþykkt að banna efnið BPA í pelum fyrir ungbörn og feta þannig í fótspor Kanada, sem áður hafði bannað efnið sem talið er að geti verið skaðlegt heilsu fólks. Frá þessu segir í Neytendablaðinu. Danir munu ætla að berjast fyrir því á Evrópuvettvangi að efnið verði bannað í pelum. Danir hafa jafnan verið í fararbroddi meðal þjóða sem vilja banna hættuleg efni í algengum vörum. Sparaðu með miðum Hver ferð í gegnum Hvalfjarðar- göngin kostar 800 krónur. Hins vegar má spara sér pening með því að kaupa 10 miða kort í gegn- um göngin. Kortið hefur ótak- markaðan gildistíma og það er auðvelt að spara nokkra þúsund- kalla til langs tíma með því að kaupa kortið. 10 miða kort kostar 5.200 krónur og því sparar þú þér 2.800 krónur á 10 ferðum í gegn- um göngin. n Olís fær lastið fyrir að hækka bensínverðið um rúmar 12 krónur í um það bil sólarhring. Einn lítri af bensíni kostaði tæplega 180 krónur hjá Olís og samanborið við 176 krónur sem er algengt verð annars staðar var það um tíma um það bil tvö hundruð krónum dýrara að fylla 50 lítra bensín- tank en víða annars staðar. n Ferðaþjónustufyrirtækið Seatours í Stykkishólmi fær lofið fyrir að bjóða upp á spennandi og skemmtilegar siglingar um Breiðafjörðinn. Meðal annars er hægt að fara í rúmlega tveggja tíma siglingu með leiðsögn um eyjarnar á Breiðafirðinum þar sem gestum gefst meðal annars kostur á að sjá haförn á hreiðri sínu. SEndið LOF Eða LaST Á nEYTEndur@dv.iS Dísilolía algengt verð verð á lítra 176,8 kr. verð á lítra 176,6 kr. Skeifunni verð á lítra 178,3 kr. verð á lítra 178,2 kr. algengt verð verð á lítra 179,8 kr. verð á lítra 179,7 kr. bensín Hveragerði verð á lítra 176,2 kr. verð á lítra 176,1 kr. Selfossi verð á lítra 176,3 kr. verð á lítra 162,2 kr. algengt verð verð á lítra 179,8 kr. verð á lítra 179,6 kr. umSjón: vaLgEir örn ragnarSSOn, valgeir@dv.is / neytendur@dv.is el d sn ey t i Nýkynntar skattahækkanir ríkis- stjórnarinnar munu valda því að verð á matarkörfunni, íbúðalán og bílalán munu hækka. Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir því að skattahækkanir ríkisstjórnarinnar sem kynntar hafa verið undanfarna daga muni skila sér í 0,25 prósenta hækkun á vísitölu neysluverðs. Miðað við að heildar- upphæð verðtryggðra húsnæðislána í landinu sé um það bil 700 milljarð- ar króna hækka þær skuldir um rúm- lega 17 milljarða króna við skatta- Verðtryggð íbúðarleiga upp á 100 þúsund krónur á mánuði hækkar um 2.500 krón- ur vegna vísitöluhækkunar af völdum skattahækkana ríkisstjórnarinnar. Skuldir heimila með verðtryggð íbúðalán hækka um 17 milljarða króna við skattahækkan- irnar. Skattgreiðslur fjölskyldunnar hækka um 270 þúsund krónur á næsta ári, sú upphæð dugar til þess að fylla bensíntank fjölskyldubílsins 30 sinnum. RÍKIÐ HÆKKAR LÁNIN ÞÍN hækkanirnar. Afborganir af hverju heimili sem er með verðtryggt íbúða- lán hækka því að meðaltali um 0,25 prósent. Vísitöluhækkunin hefur áhrif á aðrar verðtryggðar skuldbind- ingar, svo sem bílalán og húsaleigu- samninga. Verðtryggð húsaleiga sem fyrir skattahækkanir var 100 þúsund krónur á mánuði mun hækka um 2.500 krónur við breytinguna. Allt hækkar Í Hagsjá hagfræðideildar Lands- bankans er gert ráð fyrir því að boð- aðar hækkanir á virðisaukaskatti, tekjuskatti og launatengdum gjöld- um eigi að skila 10,4 milljörðum króna á þessu ári og 28 milljörðum króna á næsta ári. Skattahækkanir á hverja fjölskyldu verða því að með- altali 130 þúsund krónur á þessu ári. Á næsta ári er gert ráð fyrir því að skattahækkanirnar muni nema 270 þúsund krónum á hverja fjölskyldu. Sú upphæð dugar til að fylla bensín- tankinn á meðalstórum fjölskyldubíl alls 30 sinnum. Hækkunin á höfuðstóli 20 millj- óna króna verðtryggðs íbúðaláns við skattahækkanirnar nemur um 50 þúsund krónum. Taka skal fram að tölur um 0,25 prósenta hækkun á vísitölu neyslu- verðs eru byggðar á spám og sam- kvæmt upplýsingum frá greiningar- deildum bankanna eru þessar spár mjög varlegar og gæti hækkunin hæglega orðið meiri. Gjaldþrot vísitölufjölskyldunnar Arney Einarsdóttitr, lektor við Há- skólann í Reykjavík og stjórnarkona í Hagsmunasamtökum heimilanna, bendir á að skattahækkanirnar hafi áhrif á rekstrarreikning fjölskyldunn- ar og að neyslan verði dýrari hjá fólki fyrir vikið. Á sama tíma og rekstrar- reikningur vísitölufjölskyldunnar hækki með aðgerðum ríkisstjórnar- innar verði fólk fyrir tekjumissi, með því að fara í minnkað starfshlutfall og taka á sig launalækkanir. Arney birti grein á vef Hags- munasamtaka heimilanna nýlega þar sem hún komst að þeirri nið- urstöðu að hin íslenska vísitölufjöl- skylda með tvær fyrirvinnur í fullu starfi með 336 þúsund hvor í laun, með tvö börn á framfæri, afborg- anir af námslánum og meðalstórt íbúðarlán, eigi sér engan veginn viðreisnarvon. Vísitölufjölskyldan nái engan veginn endum saman og safni skuldahala upp á rúmar tvær milljónir króna á ári. vAlGEIR ÖRN RAGNARSSON blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Allt verður dýrara Skattahækkanir gera það að verkum að höfuðstóll verðtryggðra lána hækkar og afborganir af þeim þar með. Arney Einarsdóttir Lektor í hagfræði við Háskólann í reykjavík telur hina íslensku vísitölufjölskyldu ekki eiga möguleika eins og staðan er núna. Hún safni upp skuldum á hverju ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.