Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Blaðsíða 32
Miðvikudagur 24. júní 200932 suðurnes
Í gegnum árin hefur oft verið mikill rígur á milli Víðis frá Garði
og Reynis frá Sandgerði. Aðeins nokkrir kílómetrar skilja bæj-
arfélögin að sem leika nú saman í 2. deildinni í annað skiptið
á mörgum árum. Við höfðum samband við fyrirliða liðanna og
spurðum þá út í sambandið á milli þeirra.
Suðurnesjaliðin Reynir og Víðir spila saman í 2. deild annað árið í röð. Reynir er efst í deildinni með 18 stig
á meðan nágrannarnir eru næst-
neðstir með 3 stig. Fyrsti leikur
þeirra í sumar fór fram í Garðinum
þar sem Reynismenn fóru með sig-
ur af hólmi, eitt-núll. Fyrirliðarn-
ir segja stemminguna fyrir leik lið-
anna alltaf vera gríðarlega mikla
þar sem öllu er til tjaldað.
Gaman að spila við
hvor annan
„Stemmingin er mjög góð hjá okk-
ur núna, það hefur gengið rosalega
vel og það er alltaf ávísun á góða
stemmingu,“ segir Hjörtur Fjeldsted,
fyrirliði Reynis, en eins og fyrr segir
er liðið efst í deildinni eftir sjö um-
ferðir. Hann segir þó ekki vera mik-
inn ríg á milli leikmanna liðanna.
„Það var meira hér á árum áður, en
Reynismenn vilja alltaf vinna Víðis-
menn og öfugt, það er auðvitað smá
rígur en það eru allir vinir eftir leik.“
Rúnar Dór Daníelsson, fyrirliði Víð-
is, er á sama máli. „Jú, auðvitað, það
er svo sem einhver rígur en maður
þekkir nú flesta þessa stráka. Það er
alltaf gaman að spila við þá.“
reif siG úr treyjunni oG
hljóp upp í stúku
Hjörtur segir að nokkuð skond-
ið atvik hafi orðið í síðasta leik lið-
anna í maímánuði þegar gamall
Reynismaður, Björn Ingvar Björns-
son sem leikur nú með Víði, hafi
skorað jöfnunarmark á móti sínum
gömlu félögum. „Hann var byrjaður
að fagna ógurlega þegar hann fatt-
aði að hann var rangstæður. Okkur
Reynismönnum fannst nú nokk-
uð skondið að horfa upp þetta at-
vik,“ segir Hjörtur hlæjandi og Rún-
ar Dór tekur í sama streng. „Hann
var búinn að rífa sig úr skyrtunni
og kominn langleiðina að stúkunni
þegar hann sá að línuvörðurinn var
með flaggið uppi,“ segir Rúnar kát-
ur. Rígurinn er þó ekki einungis á
milli leikmanna liðsins heldur eru
stuðningsmenn liðanna oft með
blóð á milli tannanna. Í vor hafi
stuðningsmannafélag Reynis, Hvíti
herinn, tekið sig til og flaggað Reyn-
isfánanum á Víðisvellinum. „Vallar-
stjórinn var ræstur út á miðnætti til
að taka hann niður.“
vill að erkifjendunum
GanGi sem best
Uppáhaldsleikmaður Hjartar hjá
Víði er Björn Ingvar, gamli Reynis-
maðurinn. Rúnar Dór er þó á því
máli að Hjörtur sé þeirra besti mað-
ur. „Það er alltaf gaman að spila á
móti honum. Hann er samt ekki
betri en ég, þó við spilum ekki sömu
stöðuna.“ Hjörtur segir að þrátt fyr-
ir heldur dapurt gengi Víðis í fyrstu
umferðunum voni hann að þeir
haldi sér uppi. „Ég er nú þannig að
ég vil hafa öll Suðurnesjaliðin efst
í deildinni, það væri ekkert gaman
ef þau færu að falla. Það eru eflaust
einhverjir Sandgerðingar ósam-
mála mér í þessu, en ég myndi ekki
vilja sjá þá fara niður.“
En eru strákarnir með einhver
skilaboð til leikmanna erkifjend-
anna? „Ég vona bara að þeim gangi
vel, nema á móti okkur,“ segir Hjört-
ur en Rúnar Dór er með skýr skila-
boð til stuðningsmanna Reynis.
„Við ætlum að taka þrjú stig í Sand-
gerði næst, það er nokkuð ljóst.“
bodi@dv.is
„reif siG úr
skyrtunni
og hljóp upp í stúku“
Fyrirliðarnir Hjörtur og Rúnar Dór eru góðir félagar þrátt fyrir að berjast eins og
ljón inni á vellinum.