Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Blaðsíða 26
Miðvikudagur 24. júní 200926 suðurnes 2ja til 6 manna herbergi. Öll herbergi með sér baðherbergi. Morgunverðarhlaðborð kl. 4:30-9:30. GYM salur fyrir okkar gesti. Gerum föst tilboð í gistingu fyrir hópa. Höfum til leigu í Vallarhverfi, Keflavíkurflugvelli Símar: 426 5000/899 2570 Geymsla á bíl. Akstur til og frá flugvelli Valhallarbraut 761, Keflavíkurflugvelli gistihus@internet.is Það furðulegasta er að þessir menn skuli ekki hafa verið teknir strax. Svipað gerðist á Spáni eftir dauða Franco. Þá komu fram sægur af svona svindlurum eins og þessum. Það var aðallega einn aðalsvindl- arinn, Roldani, sem var búinn að ná undir sig mörgum bönkum. Hann var búinn að ýta öllum gömlu bankakörlunum út. Það átti allt að endurnýjast með honum og hans liði. En þeir bara tóku hann og stungu honum inn. Þeir dæmdu hann eins og skot, annars hefði hann vaðið endalaust áfram. Þessir nýríku menn voru hetjur, áttu snekkjur, gengu í hvítum bux- um og voru alltaf voða vel greidd- ir. Síðan allt í einu voru þeir hand- teknir og þá hrundi allt veldið og Spánverjar björguðu bönkunum og öðru. Þeir sitja enn í fangelsi. Reyndar fær einn þeirra, Condi, að fara heim um helgar en þeir sitja enn inni. Þetta er ekki gert hér. Vegna þess að afleiðingarnar yrðu svo slæmar því það eru allir flæktir í þetta. Það er ekki bara það að allir Íslending- ar eru skyldir heldur eru allir Ís- lendingar tengdir, að minnsta kosti valdastéttin hér á landi.“ Hvað með Davíð Oddsson? „Það er ekkert komið upp á borð- ið í sambandi við hann. Maður veit ekkert um hans hlutverk í þessu. Hann er algerlega saklaus, það eru allir saklausir því það hafa ekki ver- ið gerðar neinar atlögur. Það get- ur vel verið að þeir hafi hana Joly á launum mánuðum saman og síðan bara gefist hún upp gagnvart þessu. Hún finni það að hún komist ekk- ert áfram. Hún fær allt og svo ræður hún ekki við neitt. Eins og barn sem fær allt upp í hendurnar og síðan er fjölskyldunni nokkurn veginn sama hvað verður um barnið. Þjóðin kemur dálítið fram við Davíð og aðra eins og móðir sem elur með sér draum um það að son- urinn verði voðalega mikill. Síðan verður hann voðalega lítill og ekki neitt. En þegar hann er kominn á vissan aldur drepur hann fimmtíu manns og verður mesti morðing- inn í ... einhvers staðar í litlu þorpi í Bandaríkjunum. Þá verður móðirin alveg himinlifandi yfir því að hann sé að minnsta kosti mesti morðing- inn í þessum litla bæ. Það kemur strax fram hjá sumum Íslendingum: „Þetta er mesta fall sögunnar!“ Stoltir yfir því eins og mamm- an með soninn sem varð ekki neitt en síðan varð hann mesti morðingi sögunnar í litlum bæ. En stjórn- málamenn hverfa. Ekki bara ís- lenskir stjórnmálamenn heldur allir stjórnmálamenn. Draumur þeirra allra er að skrifa bók þegar þeir hætta störfum svo þeir hverfi ekki.“ En forsetinn sem hyglaði útrásarvík- ingum? „Forsetinn, hann er skrípi. Þessi dæmigerðu íslensku skrípi, ég veit ekki hvort það er einkennandi fyrir Vestfirði, þau eru alltaf að skipta um flokka. Það er eins og atvinnuvegur að skipta um flokka, að fara úr ein- um flokki í annan, og það skrítnasta er að allt þetta lið kemur að mestu leyti úr Framsóknarflokknum. Þeir eiga framsóknarfortíð, allir þessir menn, hvort sem það er forsetinn, Steingrímur eða aðrir. Síðan held- ur forsetinn bara áfram. Áður tal- aði hann um að Ísland ætti að vera eins og Singapore og annað... Hann er mesta gerpi sögunnar. Nýlega var einhver athugun sem sagði að hann hefði gert svo ógurlega mikið fyrir þjóðina. Hvað hefur hann gert fyr- ir þjóðina? Ekki nokkurn skapaðan hlut, bara ruglað hana í ríminu.“ Því var haldið fram að við værum víkingar. „Þetta eru skandinavísk áhrif, að Íslendingar séu víkingar. Íslend- ingar hafa aldrei talið sig vera vík- inga í raun og veru. Þeir skrifuðu um víkinga en víkingatíminn var liðinn og Skandinavar hafa mikið brenglað þessa eyju, þessa sjálfs- vitund. Sögueyjan og annað.“ Hvað finnst þér um að kalla Ís- land sögueyju? „Það er bara þvættingur. Ef Ísland væri eins og Sikiley... Ef Berlus- coni næði völdum á Sikiley og síð- an væri hún kölluð sonnettueyjan vegna þess að sonnettan var fund- in upp á Sikiley. Þá gleymist allt; mafían, Berlusconi og allt svindl vegna þess að Skandinavar kalla hana sonnettueyjuna. Því rugluðust Íslendingar sem eru mjög fljótir að ruglast í ríminu og eru hégómlyndir eins og al- þýðufólk er sem heldur að ef það birtist mynd af því í blöðunum þá sé það frægt.“ Það voru margir farnir að trúa því að við værum mikil. „Já, vegna þess að fjölmiðlarnir eru orðnir svo stór þáttur í þessu. Það eru ekki bara ungar stúlkur sem vilja vera stjörnur. Það er allt- af verið að koma með fréttir um að þessi og hinn hafi náð svona mikl- um árangri. Fólk vill líka verða ríkt. Fólk vill ná árangri á auðveld- an hátt. Það er ósköp skiljanlegt. Manneskjan er þannig, ekki bara Íslendingar heldur allir.“ En sjálfsmynd þjóðarinnar? „Sjálfsmyndin er eins og hún hef- ur alltaf verið. Ísland er einangr- að land og þess vegna hefði verið sálrænt séð gott að við borguðum þetta ekki. Við einangruðumst og stæðum saman og við mun- um aldrei falla. Þegar Rómverjar réðust inn í Spán voru þorp eða bæir sem vildu ekki gefast upp, heldur falla allir en að gefast upp. Eins með þessa þjóð, þessi þjóð hefði bara tekið því mjög vel. Allt í lagi, þetta hefur komið fyrir okk- ur, þetta er okkar sjálfskaparvíti, nú stöndum við saman og verð- um eins og áður var. Þegar skip fórst tók öll þjóðin þátt í harmin- um. Það sem sameinaði þjóðina var harmurinn. Þetta mundi líka sameina þjóðina ef hún myndi ekki borga, einangrast og standa bara með sjálfri sér. Vera ekkert að hugsa um það hvaða álit hinn stóri heimur hefur á okkur. Stóri heimurinn hugsar ekkert mjög mikið um okkur.“ Að lokum, Guðbergur, ertu að skrifa skáldsögu núna? „Ég býst við því, já.“ „Forsetinn, hann er skrípi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.