Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Blaðsíða 38
miðvikudagur 24. júní 200938 Fréttir
Vilja sniðganga
Berlusconi
Að mati ítalskra fræðikvenna
eiga eiginkonur leiðtoga sem
hittast á G8-ráðstefnunni á Ítalíu
í næsta mánuði að sniðganga
fundinn vegna viðhorfa Silvios
Berlusconi, forsætisráðherra Ít-
alíu, til kvenna.
Fræðikonurnar hafa skrifað
ákall til eiginkvenna leiðtoganna
og fullyrða að þær hafi safnað
hundruðum undirskrifta beiðni
þeirra til stuðnings.
„Við erum djúpt hneyksl-
aðar, sem konum sem starfa í
heimi háskóla og menningar,
vegna framkomu Silvios Berlus-
coni forsætisráðherra gagnvart
konum, bæði opinberlega og í
einkalífinu,“ segir í ákalli kvenn-
anna.
Rúmenar yfir-
gefa Norður-
Írland
Eitt hundrað Rúmenar sem
flúðu heimili sín í Belfast á
Norður-Írlandi vegna árása und-
anfarið hafa ákveðið að yfirgefa
landið og fara aftur til Rúmeníu.
Að sögn Margaretar Ritchie, ráð-
herra samfélagsþróunarmála,
hafa tuttugu og fimm manns yf-
irgefið landið nú þegar og sjötíu
og fimm hyggjast fara eins fljótt
og auðið er. Fjórtán fórnarlömb
árásanna ætla að búa áfram á
Norður-Írlandi.
Árásirnar á samfélag Rúmena
hafa víðast hvar verið fordæmd-
ar og hefur lögreglan handtek-
ið nokkra menn vegna málsins,
flesta unga karlmenn.
Svarti kassinn
ófundinn
Í gær var slegið á vonir um að
svarti kassinn úr Air France-
flugvélinni sem fórst í byrjun
mánaðar fyndist.
Frönsk skip sem leita svarta
kassans í grennd við slysstað
námu hljóðmerki sem hugsast
gat að kæmu frá svarta kassa
Airbus A330-flugvélarinnar sem
hrapaði í Atlantshafið 1. júní.
En tæknimenn um borð í
þeim sæförum sem notuð eru
við leitina komust síðar að þeirri
niðurstöðu að hljóðmerkin
kæmu ekki frá sendinum sem
festur er við svarta kassann.
Leitað hefur verið á svæði
innan 50 mílna radíuss, en
hljóðmerkin er einungis hægt
að nema í upp að tveggja mílna
fjarlægð frá sendinum.
Frakklandsforseta hugnast ekki búrka-klæðnaður múslímskra kvenna:
„Tákn þýlyndis“ en ekki trúar
Frönsk stjórnvöld hyggjast koma
á laggirnar sérstakri nefnd til að
kanna hve notkun búrka-klæðnaðar
múslímskra kvenna er útbreidd og
algeng. Ákvörðunin um þessa nefnd
var tekin í kjölfar ummæla Nicolas
Sarkozy, forseta landsins, en hann
sagði að andlitsslæður drægju úr
virðingu þeirra sem notuðu þær.
Strangt til tekið sagði Sarkozy að
búrka – klæðnaður sem múslímsk-
ar konur klæðast og hylur líkama
þeirra frá höfði til táa – „svipti konur
sjálfsmynd“.
Nú hafa verið skipaðir þrjátíu og
tveir löggjafaraðilar og er þeim ætl-
að að leggja í leiðangur til að leita
staðreynda sem hugsanlega gætu
leitt til leiða til að takmarka notk-
un þessa klæðnaðar sem fer fyrir
brjóstið á forseta landsins.
Ljóst er að nefndarmanna bíður
ærinn starfi því hvergi í Vestur-Evr-
ópu er að finna fleiri múslíma en í
Frakklandi, eða um fimm milljón-
ir.
Í ræðu sagði Nicolas Sarkozy að
það væri óásættanlegt að í Frakk-
landi væru konur sem væru „fang-
ar á bak við net“. Að sögn Sarkozy
er umræddur klæðnaður ekki tákn
um trúarbrögð heldur „tákn þý-
lyndis“. Hvað sem þeirri skoðun
líður ítrekaði Sarkozy þó að bera
ætti virðingu fyrir múslímum.
Nefndarmenn hafa hálft ár til
að rannsaka málið í þaula áður en
þeir leggja fram tillögur þar að lút-
andi.
Árið 2004 voru höfuðklútar
bannaðir í ríkisreknum skólum
landsins.Niqab og búrka niqab (t.v.), og búrka (miðjumynd og t.h.). myNd AFP
Hún hét Neda Salehi Soltan og var
heimspekistúdent og myndband af
dauða hennar hefur farið sem eldur
um sinu um heimsbyggðina. Neda,
tuttugu og sex ára, var skotin til
bana á laugardaginn í átökum á milli
stjórnarandstæðinga og íranskra ör-
yggissveita, en einhver áhöld eru um
hver banamaður hennar er. Dauð-
dagi Nedu gerði að verkum að á einu
andartaki varð hún alheimstákn-
mynd um hrottaskap íranskra yfir-
valda.
Samkvæmt sumum fregnum var
um að ræða meðlim Basij-herlög-
reglusveitarinnar, en samkvæmt öðr-
um var um að ræða tvo óeinkennis-
klædda Basij-menn. Hvort heldur
sem rétt er hefur þessi unga kona
orðið táknmynd mótmæla vegna ný-
afstaðinna kosninga og baráttunnar
gegn sitjandi yfirvöldum.
Píslarvottur frelsis
Í viðtali við fréttastofu BBC í Íran
sagði Caspian Makan, unnusti Nedu,
frá kringumstæðum dauða henn-
ar. Makan sagði að Neda hefði verið
örfáum götum frá hinum eiginlegu
mótmælum. Neda hefði verið í bíl
með tónlistarkennara sínum, föst í
umferðinni, og þau hefðu stigið út úr
bílum vegna loftmollunnar. „Hún var
mjög þreytt og henni var mjög heitt.
Hún rétt fór út úr bílnum. Og það var
þá sem allt gerðist,“ sagði unnusti
Nedu.
Skömmu síðar var Neda, en nafn
hennar ku þýða „rödd“, öll og hún
varð píslarvottur frelsis og fékk sama
sess í Íran og óþekkti námsmaður-
inn í Kína sem bauð skriðdrekunum
byrginn á Torgi hins himneska friðar
fyrir tuttugu árum.
meinað að minnast Nedu
En ljóst er að stjórnvöldum í Íran er
ljóst að Neda getur haft meiri áhrif
látin en hún hafði í lifanda lífi. Cas-
pian Makan sagði við BBC að eftir
að hafa samþykkt að einhver líffæri
Nedu yrðu fjarlægð og grædd í aðra
hefði fjölskylda hennar fengið lík
hennar afhent, en fjölskyldunni var
mikið í mun að jarðsetja Nedu eins
fljótt og auðið var.
„Við grófum hana í Behesht-e-
Zahra-kirkjugarðinum í Suður-Teh-
eran. Þeir sögðu okkur að grafa hana
í þeim hluta þar sem virtist sem yf-
irvöld hefðu tekið frá grafir fyrir þá
sem drepnir voru í ofbeldisfullu
átökunum í Teheran í síðustu viku,“
sagði Makan.
Þegar fjölskyldan hugðist minn-
ast Nedu var henni bannað það af
Basij-mönnum því það myndi draga
að óæskilega athygli.
„Eins og staðan er núna er okkur
meinað að halda nokkurs konar lík-
vöku til minningar um Nedu,“ sagði
Caspian Makan við BBC.
„Ekki vera hrædd“
Myndskeiðið af síðustu andartök-
um Nedu Salehi Soltan varpar ekki
neinu ljósi á hver banamaður henn-
ar er eða hvaðan kúlan sem banaði
henni kom. Það kann að skipta litlu
máli í heildarmyndinni því milljónir
Írana og hundruð milljóna utan Íran
trúa eigin augum.
Í myndskeiðinu má sjá hvar Neda
hnígur aftur á bak og tveir menn
þjóta henni til aðstoðar. Möttull
hennar opnast og við það afhjúpast
gallabuxur og sandalar.
Gráhærður maður, hugsanlega
kennari hennar, heyrist segja: „Ekki
vera hrædd, ekki vera hrædd, ekki
vera hrædd, Neda mín, ekki vera
hrædd.“
mun ofsækja yfirvöld
Það verður að teljast nokkuð víst
að þær blóðugu myndir sem sýna
síðustu andartök Nedu hér á jörðu
kunna að hafa mikil áhrif á almenn-
ingsálitið í Íran þar sem hugmyndin
um píslarvætti á hljómgrunn djúpt í
hugarþeli þjóðarinnar, styrkt af sögn-
um sjía-trúarinnar, trúar sem byggir
á hugmynd um sjálfsfórn í nafni rétt-
lætis.
Í viðtali við The Times sagði
ónafngreindur íranskur greinir að
myndin af Nedu myndi brennast inn
í írönsku þjóðarsálina: „Hún mun
ofsækja stjórnina að eilífu.“
Neda Salehi Soltan var ekki grjót-
kastari í fararbroddi þeirra sem vilja
nýja ríkisstjórn, heldur, að sögn unn-
usta hennar Caspians Makan, kona
sem var á röngum stað á röngum
tíma.
Basij-sveitirnar eru herþjálfaðar
lögreglusveitir sem voru stofnaðar
samkvæmt fyrirmælum khomeinis
höfuðklerks í nóvember 1979. Basij-
sveitirnar eru settar undir, og taka
við skipunum, frá íranska Byltingar-
verðinum og khameinei, núverandi
höfuðklerki landsins.
uppistaðan í sveitunum er ungir
sjálfboðaliðar og eru þeir þekktir fyrir
tryggð sína við khamenei.
Basij-sveitirnar eru varasveitir sem
koma að málum sem varða löggæslu,
neyðarstjórnun, samfélagslega
þjónustu, skipulagningu opinberra
trúarlegra hátíða og velsæmislög-
gæslu og hafa einnig með hendi að
leysa upp mótmæli. Basij-sveit er að
finna í nánast hverri borg í íran.
KolbEiNN þorstEiNssoN
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Í kjölfar dauða hennar varð Neda táknmynd baráttu stjórnarandstæðinga í Íran. Um
víða veröld er hún talin birtingarmynd þeirrar hörku sem stjórnvöld landsins hafa
beitt við að brjóta á bak aftur mótmæli vegna nýafstaðinna kosninga þar sem fleiri
kusu en voru á kjörskrá.
PÍSlaRVottuR fRelSiS
Ásýnd Nedu salehi soltan mynd af síðustu andartökum hennar mun „ofsækja“ írönsk yfirvöld.
Óeirðalögreglan í teheran Hefur ekki tekið með neinum silkihönskum á
mótmælendum. myNdir AFP
mótmæli í bandaríkjunum neda er orðin
píslarvottur frelsis í hugum margra írana.