Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2009, Side 6
6 miðvikudagur 29. júlí 2009 fréttir
Enn í rannsókn
Rannsókn á meintu kynferðis-
broti sem kært var til lögregl-
unnar á Vestfjörðum í lok maí er
enn í gangi. Kynferðisbrotið er
talið hafa átt sér stað aðfaranótt
sunnudagsins 31. maí á Ísafirði.
Vestfjarðaritið Bæjarins besta
sagði frá því þegar málið kom
upp að hinir grunuðu væru fjórir
íþróttamenn frá suðvesturhorni
landsins. Lögreglan á Vestfjörð-
um getur ekki staðfest þetta og
gat ekki gefið upp hvort einn eða
fleiri væru grunaðir um brotið
í samtali við dv.is. Þá getur lög-
reglan ekki sagt til um hvenær
rannsókn lýkur og gefur ekkert
upp um innihald rannsóknar-
innar að svo stöddu.
Miklu færri
fara til útlanda
Íslendingar hafa ekki farið í
færri utanlandsferðir frá því
árið 2002 sé tekið mið af ut-
anlandsferðum í júní. Sam-
kvæmt tölum Ferðamála-
stofu fóru tæplega 27 þúsund
Íslendingar frá Leifsstöð í
síðasta mánuði en til saman-
burðar fóru 35 þúsund í sama
mánuði í fyrra.
Þessi fækkun nemur 23
prósentum á milli ára. Utan-
landsferðir voru flestar árið
2007 þegar 55 þúsund Íslend-
ingar héldu út fyrir landstein-
ana. Fyrstu sex mánuði ársins
fóru helmingi færri Íslend-
ingar frá Leifsstöð en á sama
tímabili í fyrra. Þeir voru 125
þúsund fyrstu sex mánuði
þessa árs en tæplega 250 þús-
und á sama tímabili í fyrra.
Unglingsstúlkur
á stolnum bíl
Tvær unglingsstúlkur stálu bíl á
höfuðborgarsvæðinu á sunnu-
dagskvöld. Þær náðu að aka
nokkurn spöl áður en til þeirra
náðist í Austurbænum. Stúlk-
urnar voru á bifreiðastæði þegar
lögreglan hafði upp á þeim en
þá reyndu þær að komast undan
á hlaupum.
Stúlkurnar voru færðar á lög-
reglustöð en þaðan var hringt í
forráðamenn þeirra.
Pálmi Haraldsson keypti 20 málverk af Skeljungi fyrir um 25 milljónir króna þegar
hann átti félagið. Um var að ræða málverk eftir gömlu meistarana eins og Jóhannes
Kjarval, Jón Stefánsson og Gunnlaug Scheving. Málverkin voru verðmetin af list-
fræðingi. Pálmi segir að sér finnist myndlist alveg yndisleg og falleg.
PÁLMI FÉKK 20 AF
VERKUM SKELJUNGS
Pálmi Haraldsson, einn af þáverandi
eigendum olíufélagsins Skeljungs,
keypti um 20 af málverkum félags-
ins sumarið 2006 fyrir um 25 millj-
ónir króna. Um var að ræða málverk
eftir eftir gömlu meistarana eins og
Kjarval, Jón Stefánsson og Gunn-
laug Scheving og höfðu þau verið í
eigu félagsins í nokkra áratugi þeg-
ar Pálmi keypti þau. Salan á verkun-
um til Pálma fór fram eftir að listfræð-
ingur hafði verðmetið málverkin fyrir
Skeljung, samkvæmt öruggum heim-
ildum DV.
Sala verkanna til Pálma olli nokkr-
um titringi meðal sumra starfsmanna
Skeljungs sem töldu málverkin hafa
tilfinningalegt gildi fyrir fyrirtækið.
Mörgum þeirra brá í brún helgina eft-
ir að verkin höfðu verið seld og tekin
niður af veggjum í höfuðstöðvum fyr-
irtækisins á Suðurlandsbraut, önn-
ur málverk höfðu þá verið sett upp í
staðinn.
Málverkin keypt á yfirverði,
segir Pálmi
Pálmi segir að hann hafi keypt verk-
in á yfirverði því hann hafi látið meta
þau í vetur og að verðmatið hafi hljóð-
að upp á 14 milljónir króna. Málverk-
in eru því metin á tæplega helmingi
lægri upphæð en Pálmi greiddi fyrir
þau, samkvæmt því sem hann segir.
Pálmi segist hafa staðgreitt málverk-
in þegar hann keypti þau. „Þetta var
metið og staðgreitt með beinhörðum
peningum. Síðan var þetta metið aft-
ur af matsmönnum í vetur á helmingi
lægra verði. Það er kannski aðalfrétt-
in: Var of vitlaus að kaupa málverkin
allt of dýrt og þau eru nú metin á 50
prósent lægra verði,“ segir Pálmi.
Myndlist en ekki Rolls Royce
Aðspurður segist Pálmi ekki muna
nákvæmlega hvað hann greiddi fyrir
verkin, en heimildir DV herma að það
hafi verið 25 milljónir króna, líkt og
áður segir. Þá segist Pálmi ekki muna
eftir hvaða málara myndirnar eru.
Aðspurður af hverju hann keypti
málverkin segir Pálmi: „Mér finnst
myndlist bara alveg yndisleg, bara svo
falleg. Ég hef aldrei haft neinn sérstak-
an áhuga á að kaupa mér fína bíla:
Rolls Royce eða Bentley eða eitthvað
slíkt, en ég keypti þessi verk.“ Hann
bætir því við aðspurður að honum sé
farið að þykja vænt um myndirnar.
Ekki er vitað hvar myndirnar
sem Pálmi keypti af Skeljungi eru en
reikna má með að þær séu á heimili
Pálma á Sólvallagötu en hann keypti
húsið sumarið 2006.
Málverkin seld þegar Skeljung-
ur flutti
Samkvæmt heimildum DV ákvað
Skeljungur að selja málverkin þeg-
ar félagið flutti höfuðstöðvar sínar af
Suðurlandsbraut 4 og út á Hólma-
slóð í Örfirisey því ekki var eins mikið
veggpláss þar og í gömlu höfuðstöðv-
unum. Að sögn heimildarmanns DV
innan úr Skeljungi þótti forsvars-
mönnum fyrirtækisins betra að selja
verkin en að láta þau „rykfalla niðri
í geymslu“. „Við höfðum einfaldlega
ekki not fyrir þessar myndir og það
var ástæðan fyrir því að þau voru
seld,“ segir heimildarmaðurinn.
InGI F. VIlHJálMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Þetta var metið og
staðgreitt með bein-
hörðum peningum.“
Eigandinn keypti myndir Skeljungs Athafnamaðurinn Pálmi Haraldsson keypti
20 málverk af Skeljungi fyrir um 25 milljónir króna árið 2006. Meðal þeirra voru verk
eftir gömlu meistarana, meðal annars Kjarval. Fjallamjólk eftir Kjarval, sem birt er
mynd af hér með fréttinni, tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Finnst myndlist yndisleg Pálmi Haraldsson segir að sér finnist myndlist vera ynd-
isleg. Hann segist hafa staðgreitt verkin 20 frá Skeljungi með beinhörðum peningum
og að þau hafi verið verðmetin.
Einstaklingar greiða rúma 220 milljarða króna í skatta:
827 þúsund á mann
Hver og einn skattgreiðandi borgar
að meðaltali 827 þúsund krónur til
hins opinbera vegna tekna sinna á
síðasta ári. Samanlagt nemur upp-
hæðin 221,3 milljörðum króna og
hækkar um 3,6 prósent frá fyrra ári.
Ríkið fær 98,6 milljarða króna í
tekjuskatt, sem þýðir að hver og einn
hinna tæplega 180 þúsund skatt-
greiðenda sem greiða tekjuskatt
greiðir 549 þúsund krónur. Útsvar
sveitarfélaga er ennþá hærra og skil-
ar sveitarfélögunum samanlagt 108,7
milljörðum króna, eða 423 þúsund
krónum á meðal útsvarsgreiðand-
ann.
Bæði tekjuskattur og útsvar skil-
uðu ríki og sveitarfélögum auknum
tekjum milli ára í krónum talið. Því er
öfugt farið með fjármagnstekjuskatt-
inn sem dróst saman um tuttugu
prósent milli ára. Það gerist þrátt
fyrir að greiðendur fjármagnstekju-
skatts hafi tvöfaldast milli ára. Það
er vegna þess að fjármálastofnunum
hefur verið gert skylt að senda óum-
beðið upplýsingar um þá til skatta-
yfirvalda. Árið 2007 voru 58 prósent
af fjármagnstekjum til komin vegna
hagnaðar af sölu hlutabréfa en að-
eins tólf prósent í fyrra. Á sama tíma
stórjukust innistæður í bönkum sem
hluti af fjármagnstekjum, fóru úr
10 prósentum í 39 prósent, ekki síst
vegna þess að fólk flutti fé úr pen-
ingamarkaðssjóðum á bankareikn-
inga eftir bankahrun.
Álagningarseðlar verða birtir á
netinu á fimmtudag og berast fólki í
pósti á föstudag.
Meiri eða minni pening Næstu
daga skýrist hvort fólk fær rukkun eða
endurgreiðslu frá skattinum.