Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2009, Síða 8
8 miðvikudagur 29. júlí 2009 fréttir
Fimmtán ára stúlka sem lenti í nauðgunartilraun á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur gæti verið langan
tíma að vinna úr atburðinum, að sögn Sigríðar Björnsdóttur hjá Blátt áfram. Hún segir mikilvægt að
unglingar eigi góð samskipti við foreldra sína. Eftirlit með unglingum í miðbænum um helgar er afar
lítið sökum niðurskurðar hjá lögreglunni.
„Skömmin er stærsti fylgifiskur
slíkrar árásar og það getur tekið
langan tíma að taka á atburðinum
og vinna úr honum. Fórnarlömb
upplifa að best sé að loka á þetta
og gleyma en því miður er það ekki
hægt. Upplifunin er sterk og því fyrr
sem hægt er að vinna úr því, því
betra,“ segir Sigríður Björnsdóttir
hjá Blátt áfram.
DV sagði frá því í blaði gærdags-
ins að 23 ára karlmaður reyndi að
nauðga fimmtán ára stúlku á sal-
erni á skemmtistað í miðbæ Reykja-
víkur fyrr í mánuðinum. Dyraverð-
ir komu stúlkunni til bjargar sem
komst inn á staðinn þrátt fyrir ung-
an aldur.
Ótti og óöryggi
Sigríður segir mjög mikilvægt að
stúlkan fái dyggan stuðning fjöl-
skyldu sinnar.
„Það er mikilvægast fyrir stúlk-
una að fá allan þann stuðning
sem hún getur fengið og að hún
fái að heyra að þetta sé ekki henni
að kenna. Hver sem er getur lent í
þessu. Skammtímaafleiðingar slíkr-
ar árásar eru ótti við að vera
innan um fólk og treysta að-
stæðum,“ segir Sigríður.
Hún segir enn fremur
að fórnarlambið þurfi
sjálft að vilja leita sér
meðferðar.
„Það er ekki
hægt að þröngva
stúlkum í meðferð
eftir svona atburð,
þá væri það ann-
að ofbeldi. Stúlk-
an þarf að vilja það
sjálf. En með góð-
um stuðningi frá
foreldrum og fjöl-
skyldu eru meiri lík-
ur á að hún finni leið
til að læra að vinna úr
reynslunni og læra að
lifa með henni eins og
sagt er.“
Fræðsla um hætturnar
Sigríður hvetur foreldra til að
fræða börn sín um þær hættur sem
leynast í miðbænum um helgar.
„Best er að foreldrar eigi góð
samskipti við unglingana sína og
ræði við þau um hvert þau séu að
fara og með hverjum. Foreldrar eiga
líka að láta börn sín vita af hættun-
um og segja sannleikann um þær.
Mikilvægt er að foreldrar láti börn
sín vita að ef þau lenda í slæmum
aðstæðum geti þau alltaf leitað
til þeirra eftir hjálp, alveg sama
hverjar aðstæðurnar eru. Það
er mikilvægt að unglingar
upplifi sig örugga þannig að
þeir geti leitað til foreldra
sinna eftir hjálp,“ segir
Sigríður.
Hún telur ekki
einungis að foreldrar eigi að fræða
unglinga um hætturnar í miðbæn-
um heldur einnig ýmislegt sem
fylgir unglingsárunum.
„Á þessum árum dregur oft úr
samskiptum við foreldra og ungl-
ingarnir vilja ekki að foreldrar
þeirra viti hvað er í gangi. Á þeim
árum er enn mikilvægara að for-
eldrar gefi sér tíma til að hlusta og
ræða um samskipti, mörk, kyn-
líf og neyslu við unglingana. Ekki
bara einu sinni heldur reglulega.
Foreldrar eiga að vita hverjir vinir
barna þeirra eru og hverja þau um-
gangast. Og síðast en ekki síst að
vera góðar fyrirmyndir.“
Hlutverk dyravarða
Birgir Fannar Snæland, annar
rekstraraðili London/Reykjavík-
ur, staðarins þar sem reynt var að
nauðga fimmtán ára stúlku fyrr í
mánuðinum, sagði í samtali við
DV vegna málsins að strangt eftir-
lit hefði verið á staðnum en ungir
krakkar kæmust samt sem áður inn
eins og á öllum skemmtistöðum
borgarinnar.
Eftirlit með því hvort ungir
krakkar komist inn á skemmtistaði
er fyrst og fremst í höndum dyra-
varða staðanna að sögn lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. Lög-
reglunni berast alltaf öðru hverju
kvartanir frá aðstandendum ungl-
inga og gestum skemmtistaða sem
reka augun í að þar eru of ungir
krakkar að skemmta sér. Allar þess-
ar kvartanir eru skoðaðar en fjöldi
skemmtistaða er gríðarlegur og ekki
nægur mannafli í lögreglunni til að
halda uppi ströngu eftirliti. Ef staðir
eru staðnir að því að of ungt fólk er
þar inni fá þeir áminningu og við-
vörun um að huga betur að þessum
öryggisatriðum. Ef það gerist ítrek-
að missa staðirnir leyfið.
Lítið eftirlit
Áður fyrr var göngueftirlit í mið-
bænum, lögreglumenn á gangi að
fylgjast með því að enginn væri
niðri í bæ sem mætti það ekki. Nú
er þetta eftirlit ekki lengur til stað-
ar vegna niðurskurðar en þegar
það var og hét var hringt í foreldra
krakka sem voru of ungir til að vera
í bænum eða þeir sendir heim í
strætó.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins er það
algengt að dyraverðir komi á lög-
reglustöðina eftir helgi með bunka
af skilríkjum sem þeir hafa tekið af
ungum krökkum. Þá hafa krakkarn-
ir krotað ofan í skilríkin og breytt
einni tölu í kennitölunni í þeim til-
gangi að sýnast eldri og komast inn
á skemmtistaði. Lögreglan segir að
langflestir dyraverðir séu mjög vel
vakandi fyrir því að krakkar reyni
að svindla sér inn á staði.
rúmlega fjórðungur notar hótanir
n Í ársskýrslu Stígamóta frá árinu 2008 kemur fram
að 108 leituðu til samtakanna vegna nauðgunar,
6 vegna gruns um nauðgun og 24 vegna
nauðgunartilrauna. Í skýrslunni segir að þegar
grunur sé um nauðgun sé til dæmis um að
ræða að stúlka vaknar á ókunnum stað og hefur
enga minningu um hvernig hún endaði þar og
vaknaði við hlið ókunnugs manns.
Í töflu þar sem skilgreint er hvar kynferðisofbeldi
átti sér stað kemur í ljós að fimm atvik áttu sér
stað á eða við skemmtistað. Þá er verið að tala um
kynferðisofbeldi almennt en ekki aðeins nauðganir.
Í tæplega fimmtíu prósentum tilvika var það vinur eða kunningi sem
nauðgaði og í 23,6 prósentum tilvika var það ókunnugur.
Í grein DV í gær um fimmtán ára stúlku sem varð fyrir nauðgunartilraun á
skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur kom fram að stúlkan hefði ekki viljað kæra
vegna hræðslu því árásarmaðurinn og vinir hans höfðu hótað henni og systur
hennar. Í ársskýrslu Stígamóta kemur fram að 28,3 prósent þeirra sem hafa
nauðgað fórnarlömbum sem leita til Stígamóta notuðu hótanir til að tryggja
þögn fórnarlambsins.
afleiðingar nauðgunartilrauna:
n Líkamlegir áverkrar eftir árásina
n Skömm
n Óöryggi
n Sjálfsásökun
n Ótti við að vera innan um fólk
n Félagsleg einangrun
LiLja guðmundSdÓttir
blaðamaður skrifar lilja@dv.is
Skömm er fylgifiSkur
„Það er mikilvægast fyrir stúlkuna að
fá allan þann stuðning sem hún get-
ur fengið og að hún fái að heyra að
þetta sé ekki henni að kenna.“
niðurskurður í eftirliti
Lögreglan segir það í höndum
dyravarða skemmtistaða að
fylgjast með því að ungir
krakkar komist ekki inn.
Fræðsla mikilvæg
Sigríður segir afar mikil-
vægt að foreldrar fræði
börn sín um hætturnar í
miðbænum.