Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2009, Qupperneq 17
sport 29. júlí 2009 miðvikudagur 17
Þó að skoska liðið
Hearts, sem aust-
firski landsliðsmaðurinn Egg-
ert Gunnþór Jónsson leikur
með, sé aðeins á undirbúnings-
tímabilinu var þjálfaranum,
Csaba Laszlo, nóg boðið eftir
fjórða tap liðsins í röð.
EggErt og félagar
húðskammaðir
Skoska úrvalsdeildarliðið Hearts, sem
hinn ungi Austfirðingur og landsliðs-
maður Eggert Gunnþór Jónsson leik-
ur með, hefur farið afar illa af stað á
undirbúningstímabilinu. Hearts náði
sínum besta árangri í skoskri deildar-
keppni í vor þegar það endaði í þriðja
sæti deildarinnar undir forystu ung-
verska þjálfarans Csaba Laszlo. Laszlo
hefur tekist það þrekvirki að koma lið-
inu á réttan kjöl eftir algjöran farsa í
kringum liðið og skrautlegan stjórn-
arformann þess.
Hearts ætlar sér stóra hluti og sæk-
ist eftir góðu gengi í Evrópudeildinni í
ár. Undirbúningstímabilið byrjaði vel
með sigri á minnipokaliði frá Þýska-
landi en eftir það fylgdu síðan þrír ta-
pleikir gegn þýskum liðum í röð. Þegar
Hearts tapaði svo 2–0 fyrir Southamp-
ton í æfingaleik um helgina var þjálf-
aranum nóg boðið, tók hann allt liðið
á teppið inn í klefa og húðskammaði
leikmenn eins og smástráka.
Segir það sem hann hugsar
„Þegar hann kom inn í klefann var
augljóst að hann var ekki ánægður,“
segir Lee Wallace, leikmaður Hearts.
„Csaba er mjög heiðarlegur stjóri
og þú veist að hann mun alltaf segja
þér nákvæmlega það sem hann er
að hugsa. Og það gerði hann. Hann
messaði yfir okkur og sagði að þrátt
fyrir að þetta væri undirbúningstíma-
bil væri frammistaðan í síðustu leikj-
um einfaldlega ekki nægilega góð.
Hann gerði okkur ljóst að það væru
tvær vikur eftir af undirbúningstíma-
bilinu og við fengjum þrjá leiki til að
koma okkur í stand,“ segir Wallace en
Hearts leikur æfingaleiki gegn Plym-
outh, Bolton og Sunderland áður en
liðið heldur í umspilsleiki um sæti í
riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Er
það væntanlega það sem þjálfarinn
er hræddur við því liðið ætlar sér sæti
þar og vill því að menn fari að sýna
eitthvað meira en þeir hafa gert hing-
að til.
Eggert í bakverðinum
Austfirðingurinn öflugi Eggert Gunn-
þór Jónsson hefur svo sannarlega
verið þúsundþjalasmiður í þessu
Hearts-liði undanfarin ár og einn
af lykilmönnunum þess utan. Hon-
um hefur verið hrókerað mikið á
milli staða á vellinum þó að honum
líki best að leika á miðsvæðinu. Und-
ir lok síðasta tímabils lék hann
meira og minna í miðverði og var
haldið að það yrði hans staða
á komandi tímabili en Laszlo
hafði lofað að finna endanlega
stöðu fyrir Eggert.
Á undirbúningstímabilinu
hefur Eggert verið að leika í
hægri bakverði og virð-
ist sem svo að
Laszlo ætli
landsliðs-
mann-
inum ís-
lenska
þá stöðu.
Nokkrir nýir
leikmenn
hafa verið
keyptir inn sem
eru þó engan
veginn að smella
í liðið eins og er.
Tíminn er þó að
verða naumur fyr-
ir hjörtun. „Að spila
á frábærum leikvöng-
um í Evrópu er draum-
ur okkar allra. Ef það á
að takast verðum við að
vinna umspilsleikina um
sæti í Evrópudeildinni. En
fyrst þurfum við nú bara
að fara geta eitthvað í æf-
ingaleikjunum,“ segir Lee
Wallace, leikmaður liðs-
ins.
tomas@dv.is
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Eggert Gunnþór Jónsson Var húðskamm-
aður, ásamt liðsfélögum sínum í Hearts, fyrir
dapra frammistöðu undanfarið. Hann er nú
farinn að leika sem hægri bakvörður.
MYND GETTY
Barátta Svona vilja vill
Laszlo sjá hjá sínum
mönnum.
Csaba Laszlo Ungverski
þjálfarinn hefur ekki verið
ánægður með sína menn.