Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2009, Page 2
2 miðvikudagur 2. september 2009 fréttir
„ÉG VAR BARA BEÐIN UM ÞETTA“
Telma Halldórsdóttir, lögmaður og
eini stjórnarmaður eignarhaldsfé-
lagsins Q Iceland Finance, er með
réttarstöðu grunaðs manns í rann-
sókn sérstaks saksóknara á Al-
Thani-málinu, samkvæmt heimild-
um DV. Lögmaðurinn hefur verið
yfirheyrður hjá sérstökum saksókn-
ara vegna málsins.
Telma er meðeigandi á lögfræði-
skrifstofunni Fulltingi ásamt meðal
annarra Kristni Hallgrímssyni sem
unnið hefur náið með auðmann-
inum Ólafi Ólafssyni í gegnum tíð-
ina, meðal annars þegar S-hópur-
inn keypti Búnaðarbankann árið
2003. Kristinn hefur hins vegar ekki
fengið réttarstöðu grunaðs manns í
rannsókninni, samkvæmt heimild-
um DV, og er ekki talinn hafa kom-
ið beint að viðskiptunum, þrátt fyrir
tengslin við Ólaf.
Grunur um markaðsmisnotkun
Rannsóknin á málinu gengur út
á að athuga hvort kaup katarska
sjeiksins Al-Thanis á 5 prósenta
hlut í Kaupþingi fyrir 25 milljarða
króna í lok september síðastliðins
hafi verið lögleg. Grunur leikur á
að um markaðsmisnotkun hafi ver-
ið að ræða og að tilgangurinn með
kaupunum hafi verið að hækka
verð á hlutabréfum í Kaupþingi og
auka tiltrú markaðarins á bankan-
um. Viðskiptin áttu sér stað fjórum
dögum áður en íslenska ríkið leysti
til sín 75 prósenta hlut í Glitni og
tveimur vikum áður en Fjármálaeft-
irlitið yfirtók Kaupþing, það er rétt
fyrir hrun íslenska bankakerfisins.
Félagið Q Iceland Finance,
sem Telma fer fyrir, keypti bréfin
í Kaupþingi með lánum frá félög-
um í eigu Ólafs Ólafssonar og Al-
Thanis sjálfs. Ólafur fékk svo aft-
ur lán frá Kaupþingi, sem var án
annarra veða en í hlutabréfunum
sjálfum sem keypt voru, til að fjár-
magna lánið til Q Iceland Finance.
Ef um markaðsmisnotkun var að
ræða er hugmyndin sú að tilgang-
ur viðskiptanna hafi sem sagt ver-
ið að blekkja markaðinn til að trúa
því að staða Kaupþings væri góð
þrátt fyrir aðsteðjandi erfiðleika í
íslenska bankakerfinu. Stjórnend-
ur Kaupþings gáfu það út í kjölfarið
að hlutabréfakaup Al-Thanis væru
traustsyfirlýsing við bankann.
Enn óvíst um ákærur
Rannsóknin á Al-Thani-málinu
er sú sem hvað lengst er komin af
þeim málum sem komið hafa inn
á borð til sérstaks saksóknara efna-
hagshrunsins, Ólafs Haukssonar.
Aðrir sem komnir eru með þessa
stöðu eru Hreiðar Már Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings-
samstæðunnar, Sigurður Einars-
son, fyrrverandi stjórnarformað-
ur Kaupþings, og Ólafur Ólafsson,
fyrrverandi 10 prósenta hluthafi í
Kaupþingi í gegnum eignarhalds-
félagið Kjalar. Aðrir hafa fengið rétt-
arstöðu grunaðs manns í rannsókn
sérstaks saksóknara en DV hefur
ekki komist að því hverjir þetta eru.
Heimildir DV herma hins vegar að
þar sé meðal annars um að ræða
Guðmund Oddsson, stjórnarmann
í móðurfélagi Q Iceland Finance, Q
Iceland Holding.
Þrátt fyrir að rannsókn málsins
sé nokkuð langt komin er enn óvíst
hvort og þá hvenær sérstakur sak-
sóknari mun gefa út ákærur á hend-
ur því fólki sem liggur undir grun í
málinu. Ástæðan fyrir því að rann-
sókn málsins tekur svo langan tíma
er að embætti sérstaks saksóknara
er alltaf að uppgötva nýja og nýja
fleti á málunum eftir því sem það
rannsakar málið betur. Embættið
þarf því að elta þessa þræði til að ná
betur utan um rannsókn málsins.
Þó að ákveðnir aðilar séu með
réttarstöðu grunaðs manns í rann-
sókninni á Al-Thani-málinu er alls
ekki gefið að þeir fái réttarstöðu
sakbornings þegar þar að kemur
og verði ákærðir fyrir dómi. Grun-
aðir aðilar geta því annaðhvort
hætt að liggja undir grun eða öðl-
ast réttarstöðu sakbornings eftir
því sem rannsókn málsins heldur
áfram. Rökstuddur grunur um brot
þarf hins vegar að liggja fyrir til að
maður fái réttarstöðu sakbornings í
rannsókninni.
Segist hafa verið beðin um
þetta
Telma Halldórsdóttir segir aðspurð
að hún hafi fengið réttarstöðu grun-
aðs manns sökum þess að sérstak-
ur saksóknari teldi að betra væri að
þeir sem yfirheyrðir væru fengju þá
stöðu frekar en stöðu vitnis því erf-
itt væri að láta vitni fá réttarstöðu
grunaðs manns á seinni stigum
rannsóknarinnar. „Þannig að það
voru mjög margir sem fengu réttar-
stöðu grunaðs manns í rannsókn-
inni. Ég fékk hana í maí og á ekki
von á að heyra neitt meira frá þeim,“
segir Telma en með þessu á hún við
að það gæti spillt rannsókninni að
skilgreina fólk sem yfirheyrt er sem
vitni frekar en gefa þeim réttarstöðu
grunaðra.
Hún segist ekkert hafa komið
að því að ákveða eðli viðskiptanna
með bréfin í Kaupþingi. „Ég var
bara beðin um þetta sem lögmað-
ur. Fyrir bankahrun var mjög al-
gengt að lögmenn væru beðnir um
að sitja í stjórnum fyrir hönd kúnna.
Þegar búið var að ákveða viðskiptin
vantaði Íslending til að sitja í stjórn
Q Iceland Finance og þá var ég beð-
in um þetta,“ segir Telma. Aðspurð
hver það var sem bað hana um að
sitja í stjórn Q Iceland Finance segist
hún ekki vilja greina frá því. „Veistu,
ég vil ekki tjá mig um það því það
skiptir ekki máli,“ segir Telma og
bætir því við að hún hafi unnið fyrir
félög tengd sjeik Al-Thani áður.
Hún segir að hennar eina að-
koma að félaginu hafi verið að til-
kynna um viðskiptin til Kauphallar
Íslands og annarra eftirlitsaðila en
að hún hafi hins vegar aldrei hitt
sjeikinn. „Ég hef aldrei hitt sjeik-
inn. Þetta kenndi mér það að þetta
fer ekki vel saman: að vera lögmað-
ur og sitja í stjórnum félaga og fyrir-
tækja. Þetta bara gerðu lögmenn á
sínum tíma og þetta er eitthvað sem
maður bara lærir af,“ segir Telma og
er ljóst af máli hennar að rannsókn-
in á Al-Thani-málinu hefur gengið
nokkuð nærri henni.
Hún situr hins vegar enn í stjórn
fimm fyrirtækja og félaga, þar með
talið í stjórn Q Iceland Finance og
IP-Fjarskipta, Tals ehf., en hún var
endurkjörin í stjórn þess félags í
fyrradag.
Telma Halldórsdóttir lögmaður er með réttarstöðu grunaðs
manns í rannsókn sérstaks saksóknara. Lögmaðurinn er grun-
aður í rannsókninni á kaupum katarska sjeiksins Al-Thanis
á hlutabréfum í Kaupþingi. Telma er eini stjórnarmaðurinn í
Q Iceland Finance, eignarhaldsfélagi Al-Thanis, sem keypti 5
prósenta hlut í Kaupþingi skömmu fyrir bankahrunið í haust.
Telma segist hafa verið beðin um að vera í forsvari fyrir félagið
og að hún hafi aldrei hitt sjeikinn.
Lögmannsstofan Fulltingi Telma vinnur
hjá Fulltingi sem er til húsa á Suðurlands-
braut 18. Rúmlega 250 félög eru skráð til
húsa að Suðurlandsbraut 18, þar á meðal er
eignarhaldsfélag sjeiksins, Q Iceland Finance.
InGI F. VILHjáLmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Ég hef aldrei hitt sjeikinn.“
Engar ákærur enn Telma Hall-
dórsdóttir er einungis ein af þeim
fjölmörgu sem hafa réttarstöðu
grunaðs manns í rannsókn sérstaks
saksóknara, Ólafs Haukssonar, á
Al-Thani-málinu. Engar ákærur hafa
verið gefnar út í málinu og er óvíst
hvort og þá hvenær af því verður.
Sjeikinn á Íslandi Al-Thani kom eitt sinn hingað. Nú eru kaup hans í rannsókn.