Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2009, Blaðsíða 26
26 miðvikudagur 2. september 2009 suðurnes
gagnaverið
TaFðisT
vegna hrunsins
Framkvæmdir standa nú yfir við gagnaver Verne Holdings á Vall-arheiðinni á Suðurnesjum. Verk-efnið tafðist nokkuð í kjölfar efna-
hagshrunsins í haust en upphaflega stóð til
að gagnaverið yrði opnað um síðustu ára-
mót. Þrátt fyrir það er fyrsti áfangi verksins
nokkurn veginn á áætlun, en það er vinna
við endurhönnun og -bætur á tveimur stór-
um vöruskemmum á Vallarheiði sem hýsa
munu gagnaverið.
Fyrirtækið Verne Holdings er að mestu
leyti í eigu Novators, fjárfestingafélags Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar, og er fjárfestirinn
Vilhjálmur Þorsteinsson stjórnarformaður
félagsins. Annar hluthafi í Verne er banda-
ríski fjárfestingasjóðurinn General Catalyst
sem jafnframt er stór hluthafi í CCP, sem
framleiðir nettölvuleikinn vinsæla Eve On-
line. Vilhjálmur er einnig stjórnarformaður
þess fyrirtækis og er Björgólfur meðal hlut-
hafanna.
Verne Holdings skrifaði upp á samning
um byggingu gagnaversins við Landsvirkjun
í febrúar í fyrra og var samningurinn þá met-
inn á um 20 milljarða króna. Ástæðan fyrir
samningunum við Landsvirkjun er að gagna-
verið þarf 150 megavött af raforku fyrir starf-
semi sína.
Hýsir raFræn gögn
Áætlað er að byggingu gagnaversins ljúki öðr-
um hvorum megin við áramótin 2010–2011.
Gagnaverið mun hýsa rafræn gögn fyrir ýmis
alþjóðleg fyrirtæki og veita þeim ýmiss kon-
ar þjónustu við þessi gagnasöfn. Leitað hef-
ur verið til ýmissa fyrirtækja sem hafa lýst yfir
áhuga á að kaupa þjónustu frá gagnaverinu.
Ekki er hægt að fá upplýsingar um hvaða fyr-
irtæki um ræðir.
Lykilatriði í starfsemi gagnaversins eru
tveir sæstrengir til og frá landinu sem not-
aðir verða til að flytja gögnin. Annar þessara
strengja, Danice, var tekinn í notkun í gær en
framkvæmdir við hann hófust í ágúst fyrra.
Það var Vodafone sem opnaði fyrir þjónustu
um strenginn en það átti upphaflega að gera
í janúar á þessu ári.
Lykilforsenda í rekstri gagnaversins er að
tengslin við Evrópu séu tryggð með tveimur
sæstrengjum, bæði Danice og Farice, ef ann-
ar skyldi bila því viðskiptavinir gagnaversins
verða að hafa tryggt aðgengi að gagnasöfn-
um sínum hér á landi.
Því er ljóst að efnahagshrunið setti bæði
strik í reikninginn varðandi byggingu gagna-
versins sjálfs og eins seinkaði lagningu sæ-
strengsins. Þar er alveg ljóst að breytt fjár-
hagsstaða Björgólfs Thors Björgólfssonar
eftir hrunið spilar inn í. En hann var sem
kunnugt er stærsti hluthafinn í Landsbank-
anum ásamt föður sínum, Björgólfi Guð-
mundssyni, í gegnum eignarhaldsfélagið
Samson.
100 sTörF verða Til
Áætlað er að um 100 störf verði til eftir að
gagnaverið hefur verið tekið í notkun um
þarnæstu áramót. Opnun gagnaversins verð-
ur því líklega kærkomin fyrir atvinnumarkað-
inn á Suðurnesjum en atvinnuleysi mældist
rúmlega 14 prósent þar í maí síðastliðnum og
voru rúmlega 1500 manns skráðir atvinnu-
lausir.
Kostnaður Verne vegna verkefnisins í
heild liggur heldur ekki fyrir en þá má leiða
að því líkur að hann hafi aukist verulega eft-
ir hrunið og að það spili inn í seinkunina á
framkvæmdunum.
ingi@dv.is
Verne Holdings reisir gagnaver á svæði gamla varnarliðsins og er áætlað að um 100 störf verði til þegar það
verður tekið í notkun. Bygging gagnaversins tafðist nokkuð vegna íslenska efnahagshrunsins. Opna átti það
um áramótin 2008–2009 en úr því verður líklega ekki fyrr en um þarnæstu áramót. Gagnaverið er byggt af
félagi í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar og er líklegt að þau skakkaföll sem hann varð fyrir í hruninu
spili inn í seinkunina á byggingunni.
„Áætlað er að um 100 störf verði til eftir
að gagnaverið hefur verið tekið í notkun
um þarnæstu áramót.“
Eigandi Verne Björgólfur Thor Björg-
ólfsson er eigandi Verne Holdings en
framkvæmdir við gagnaver félagsins eru
á áætlun þrátt fyrir efnahagshrunið.
Framkvæmdir standa yfir við gagnaver Verne Framkvæmdir
standa nú yfir við byggingu gagnavers Verne Holdings á Vallarheið-
inni í Keflavík. Áætlað er að byggingu gagnaversins ljúki öðrum
hvorum megin við aldamótin 2010-2011.