Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2009, Blaðsíða 8
8 miðvikudagur 2. september 2009 fréttir
Lögmenn sem stýra þrotabúi Fons
innheimtu 25 milljónir króna fyrir sölu
á nærri 30 prósenta hlut þrotabúsins
í sænsku ferðaskrifstofunni Ticket.
Upplýst er að söluverð var um eða yfir
600 milljónir króna og því nemur sölu-
þóknunin nærri fjórum prósentum. Til
samanburðar nam 250 milljóna króna
þóknun, sem Lögfræðistofa Reykjavík-
ur ætlaði að taka sér fyrir innheimtu
á 27 milljarða króna gjaldfelldu láni
Landsbankans til Exista, innan við
einu prósenti af lánsupphæðinni.
Skiptastjóri þrotabús Fons er Ósk-
ar Sigurðsson, lögfræðingur frá Sel-
fossi, en hann er í samstarfi við JP Lög-
menn við Lágmúla í Reykjavík. Með
Óskari vinnur Guðjón Ólafur Jónsson,
lögfræðingur og fyrrverandi þingmað-
ur Framsóknarflokksins. Nöfn Óskars
og Guðjóns Ólafs eru tengd sölunni á
Ticket-ferðaskrifstofunni, en hún var
seld úr þrotabúinu 17. maí síðastliðinn
fyrir um 600 milljónir króna að sögn
Óskars.
„Hlutur Fons í Ticket var
veðsettur Nýja Lans-
bankanum, NBI, og
rann söluandvirðið
óskipt til bankans.“
Aðspurður segir
Óskar að söluþókn-
unin hafi verið sam-
komulagsatriði við
Nýja Landsbankann
en tjáir sig ekki um
upphæðir.
Gengið á hlut kröfuhafa
Öðrum, sem eiga kröfur í þrotabú
Fons, þykir sem skiptastjóri og Lands-
bankinn hafi gengið á hlut annarra
kröfuhafa með því að semja við Ósk-
ar og liðsmenn hans um ríflega sölu-
þóknun, sem samkvæmt heimild-
um DV nam 25 milljónum króna.
Á það er bent að Ticket er með
stærstu ferðaskrifstofum á Norð-
urlöndum, skráð í kauphöllum og
salan næsta einföld og borðleggj-
andi. Kaupandi Fons-hlutarins var
Norðmaðurinn Per G. Braathen,
en hann og fjölskylda hans er tengd
flugrekstri í Noregi og Svíþjóð. Á það
er einnig bent að helstu kröfuhaf-
ar geti sameiginlega haft áhrif
á kostnað við skipti á
þrotabúi.
Fons átti meðal
annars stóran hlut í
FL Group, Securit-
as, Plastprenti og
bresku leikfanga-
versluninni Ham-
leys ásamt Baugi.
Guðjón Ólafur og
Óskar hafa báð-
ir tekið sæti í stjórn Plastprents hf og
þiggja þar stjórnarlaun. Það á líka við
um Securitas þar sem þeir hafa einn-
ig tekið sæti í stjórn. Fons átti 35 pró-
senta hlut í verslanakeðjunni Ham-
leys. Óskar skiptastjóri segir að Pétur
Már Halldórsson, stjórnarmaður Fons
í Hamleys, sé á leið út úr stjórninni og
Guðjón Ólafur taki líkast til sæti hans.
Ekki er ljóst hver hlutur Guðjóns
Ólafs er í skiptum á búi Fons. Hann
er lögfræðingur og var varaþingmað-
ur Framsóknarflokksins frá árinu 2003
og þingmaður flokksins frá 2006 fram
að þingkosningum 2007. Fræg urðu
ummæli hans í Silfri Egils í Sjónvarp-
inu í janúar 2008 þegar hann gerði upp
við Björn Inga Hrafnsson fyrrverandi
borgarfulltrúa flokksins. Kvaðst hann
hafa hnífasett í bakinu eftir vinnu-
brögð borgarfulltrúans í aðdraganda
kosninganna 2003 og 2007.
Úr hæstu hæðum í gjaldþrot
Alls nema kröfur í þrotabú Fons um 35
milljörðum króna. Skiptastjóri segir að
um 30 milljóna króna forgangskröfur
fáist greiddar og talsvert upp í liðlega
5 milljarða króna veðkröfur. Almennar
kröfur í þrotabúið eru liðlega 29 millj-
arðar króna. Langstærsti kröfuhafinn
er skilanefnd Glitnis sem lýst hefur
nærri 24 milljarða króna kröfu í þrota-
búið. Innan við 600 milljónir króna
af þessari kröfu eru veðkröfur. Kröfur
vegna Plastprents og Securitas eru hjá
skilanefnd Glitnis.
Næststærsti kröfuhafinn er Lands-
bankinn, NBI, með tæpa 5 milljarða
króna. Ticket var veðsett honum og
rann söluandvirði hlutar Fons í ferða-
skrifstofunni til bankans eins og áður
segir.
Skilanefnd Kaupþings er með
stærstu kröfurnar vegna kaupa Fons á
35 prósenta hlut í Hamleys.
Fons var eignarhaldsfélag Pálma
Haraldssonar og Jóhannesar Kristins-
sonar. Félagið hagnaðist gríðarlega
fyrir um ári síðan þegar það seldi hlut
sinn í verslanakeðjunni Iceland í Bret-
landi. Talið var að söluhagnaðurinn
hafi numið 75 milljörðum króna. Við-
snúningurinn í kjölfar bankahrunsins
er því mikill þar sem um er að ræða
35 milljarða króna gjaldþrot, en félag-
ið var tekið til skipta í lok apríl síðast-
liðins.
Guðjón Ólafur Jónsson, lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokks-
ins, samdi ásamt skiptastjóra Fons um 25 milljóna króna þóknun fyrir sölu á ferða-
skrifstofunni Ticket úr þrotabúinu. Þóknunin þykir há enda er hún um 4 prósent
af söluverði hlutarins. Skiptastjóri segir að þóknunin hafi verið samningsatriði við
Landsbankann. Öðrum kröfuhöfum í þrotabúið þykir sem á hlut sinn sé gengið.
græðir á
gjaldþroti Fons
„Hlutur Fons í Ticket var veð-
settur Nýja Landsbankanum,
NBI, og rann söluandvirðið
óskipt til bankans.“
JÓhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Þingmaðurinn fyrrverandi
Guðjón Ólafur Jónsson
lögfræðingur tekur sæti í
fyrirtækjum flokksbróður síns,
Pálma Haraldssonar í Fons, og
nýtur góðs af gjaldþroti hans.
Lögfræðineminn sem hlaut varan-
leg örkuml eftir að ekið var á hann á
Hummer-bifreið á Laugaveginum í
janúar er nú á endurhæfingardeild
Landspítalans við Grensás. Óvíst er
að hve miklu leyti hann nær bata. Jón
Kristinn Ásgeirsson, sem ók á mann-
inn, var dæmdur til að greiða honum
tvær milljónir króna í miskabætur. Jón
Kristinn var á bifreið föður síns, Ás-
geirs Davíðssonar, þegar hann keyrði
á manninn.
Athyglisvert er að setja bótaupp-
hæðina í samhengi með því að skoða
bætur sem blaðamenn hafa þurft að
greiða vegna meiðyrða að undan-
förnu. Þannig voru Jón Trausti Reyn-
isson, ritstjóri DV, og Ingibjörg Dögg
Kjartansdóttir, ritstjóri Nýs lífs, í apríl
dæmd til að greiða Ásgeiri Davíðssyni,
betur þekktum sem Geira á Goldfing-
er, 800 þúsund krónur í miskabætur.
Hæstiréttur fann þau sek um að við-
hafa meiðyrði í tímaritinu Ísafold í
júní 2007. Þar var starfsemi Goldfinger
tengd við vændi og mansal. Upphaflega
var Geira dæmd milljón í bætur en þær
lækkaðar í Hæstarétti. Þær bætur sem
Geiri fékk vegna blaðaskrifanna nema
því tæpum helmingi þeirrar upphæðar
sem lögfræðineminn fær dæmda.
Umdeildur Vikudómur féll í mars
á þessu ári þar sem Björk Eiðsdótt-
ir, blaðamaður Vikunnar, var dæmd
til að greiða Geira 500 þúsund krón-
ur í miskabætur. Björk var dæmd fyrir
meiðyrði en hún hafði tekið viðtal við
fyrrverandi starfsstúlku á Goldfinger
sem sagði þar stundað vændi.
Af öðrum þekktum meiðyrðamál-
um má nefna að Magnúsi Ragnarssyni,
fyrrverandi sjónvarpsstjóra Skjás eins,
voru dæmdar 1,5 milljónir króna í bæt-
ur eftir að hann var kallaður „Maggi
glæpur“. Bubbi Morthens fékk síðan
700 þúsund krónur í bætur eftir um-
fjöllun undir fyrirsögninni „Bubbi fall-
inn“.
Næsta skref hjá lögfræðineman-
um er að fara í sérstakt skaðabótamál
gegn Jóni Kristni og tryggingafélagi
hans. Óvíst er hversu háar þær bætur
verða en tryggingafélagið sem greiddi
þær bætur gæti gert endurkröfu á Jón
Kristin.
Tekið skal fram að Birtíngur gefur út
Vikuna, DV og Ísafold sálugu.
erla@dv.is
Geiri á Goldfinger hefur á þessu ári fengið 1,3 milljónir króna í bætur vegna meiðyrða:
Örkuml hálfu verri en meiðyrði
sekur Jón Kristinn Ásgeirsson var
dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir
að keyra á mann og valda honum örkumli,
auk þess að eiga aðild að íkveikju og
stofna lífi manns í hættu.
Allt í uppnámi
í Alþjóðahúsi
Öllum starfsmönnum Al-
þjóðahúss var sagt upp í gær
og er framtíð þess í uppnámi.
Er fjárhagsstaðan svo slæm að
ekki náðist að greiða starfs-
mönnum laun um mánaða-
mótin. Þetta kom fram í kvöld-
fréttum Ríkisútvarpsins í gær.
Katla Þorgeirsdóttir, stjórn-
arformaður Alþjóðahúss,
segir ástæðuna fyrir þessu
vera vanefndir Reykjavíkur-
borgar. Borgin hafi ekki lokið
við að ganga frá samningum
við Alþjóðahús fyrr en í júlí á
þessu ári en samningagerð-
inni átti að ljúka í september á
síðasta ári.
Mannréttindastjóri borg-
arinnar segir ástæðuna hins
vegar vera vanskil Alþjóða-
húss á ársreikningum.
Skapofsi ver
gjörðir sínar
Einstaklingurinn sem kallar
sig Skapofsa sendi í gær frá sér
tilkynningu þar sem hann ver
þær gjörðir sínar að skvetta
málningu á húsnæði og aðrar
eigur útrásarvíkinga.
Skapofsi segir í tilkynningu
sinni að það sé misskilning-
ur að almenningur borgi fyrir
skaða vegna þessara gjörn-
inga á húsum útrásarmann-
anna. „Það er alrangt, Enginn
trygging hjá tryggingarfé-
lögunum nær til þess konar
tjóns. En skapofsa finnst aftur
á móti orka tvímælis að sletta
málningu á bíla útrásarmann-
anna. Hreinsanir á húsunum
eru því atvinnuskapandi og er
væntanlega það eina sem út-
rásarmennirnir borga til sam-
félagsins eftir allt saman,“ seg-
ir Skapofsi í tilkynningunni.
Vill að skapofsi
hætti að sletta
Leikarinn Víðir Guðmundsson
skrifaði opið bréf í Fréttablaðið í
gær þar sem hann vandaði Skap-
ofsa ekki kveðjurnar. „Mig langar
því að biðja þig vinsamlegast um
að hætta þessu paufi um miðj-
ar nætur með svartan poka yfir
hausnum og lélegt dulnefni,“ sagði
Víðir meðal annars í bréfinu. Benti
hann á að það þýddi lítið að fara
út í skjóli nætur og úða málningu
á dauða hluti sem væru hvort sem
er tryggðir í bak og fyrir. Slíkt væri
til þess fallið að valda almenningi
meira tjóni en orðið hefur.
FL Group meðal eigna Fons átti
í mörgum félögum, þar á meðal FL
Group, Plastprenti og Securitas.
Féll af fjórðu
hæð til jarðar
Alvarlegt vinnuslys varð við
Reykás í Árbænum á sjötta tím-
anum í gær þegar maður féll af
fjórðu hæð til jarðar. Samkvæmt
upplýsingum frá Slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins er slysið talið
alvarlegt og var maðurinn fluttur
með sjúkrabíl á Landspítalann
við Hringbraut.
Lögregla greip til þess ráðs að
stýra umferðinni á Miklubraut
til að auðvelda sjúkrabílnum að
komast sína leið. Tildrög slyssins
eru ókunn og ekki fengust upp-
lýsingar í gærkvöldi um líðan
mannsins sem slasaðist.