Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2009, Síða 6
6 miðvikudagur 2. september 2009 fréttir
Brynjar Óli Ágústsson er aðeins átta ára en hefur þegar farið átta sinnum í hjartaað-
gerðir til útlanda. Styrktarsjóður hjartveikra barna hefur styrkt fjölskylduna til að
fara út vegna aðgerðanna. Faðir Brynjars, Ágúst Hilmarsson, harmar að starfsmenn
Landsbankans hafi farið með sjóðinn eins og spilapeninga, og í kjölfarið tapað tugum
milljóna. Sjóðurinn hefur höfðað mál gegn Landsbankanum vegna tapsins.
ÁTTA AÐGERÐIR
Á ÁTTA ÁRUM
„Þetta er
styrktarsjóður
fyrir fjölskyld-
ur langveikra
barna en ekki
spilapeningar.“
„Þetta er bara hundfúlt. Að menn
skuli leyfa sér að spila með þessa
peninga og tapa svona rosalegum
upphæðum er alveg hreint ótrúlegt.
Þetta er styrktarsjóður fyrir fjölskyld-
ur langveikra barna en ekki spilapen-
ingar,“ segir Ágúst Hilmarsson, faðir
átta ára drengs með hjartasjúkdóm.
Styrktarsjóður hjartveikra barna
fól Landsbankanum fjárvörslu sjóðs-
ins og var þar höfuðáhersla lögð á
örugga ávöxtun. Eftir þessu var ekki
farið og við bankahrunið síðasta
haust tapaði sjóðurinn 21 milljón.
Skaðabótamál styrktarsjóðsins gegn
Landsbankanum var þingfest í gær.
Áhyggjur og kvíði foreldra
Ágúst segir styrktarsjóðinn afar mik-
ilvægan fjölskyldum hjartveikra
barna. Sonur Ágústs, Brynjar Óli, er
átta ára gamall og hefur farið átta
sinnum til útlanda í hjartaaðgerðir. Í
hverri ferð fer hann í hjartaþræðingu
en auk þess hefur Brynjar Óli fjórum
sinnum farið í opna hjartaaðgerð.
Fjölskyldan hefur fengið styrk frá
styrktarsjóðnum vegna ferðanna en
fyrirhugað er að Brynjar Óli fari aftur
út í aðgerð innan hálfs árs.
Ágúst segir mikinn kvíða fylgja
því að fara með veikt barn í hjarta-
aðgerð til útlanda og áhyggjum
vegna fjárhagsstöðu vart á bætandi.
„Margir þurfa að slíta sig úr vinnu til
að fara út með börnin sín og fólk er
í mismunandi stöðu til þess. Sum-
ir sjá fram á algjöran launamissi. Ég
hef sjálfur horft fram á 20 til 30 pró-
senta skerðingu á launum en hef leit-
að í sjúkrasjóði til að bæta það. En
það er alltaf skerðing. Þetta vekur
auka áhyggjur og kvíða. Konan mín
er sjálfstætt starfandi og fær því eng-
in laun á meðan við erum úti. Því er
gott að geta sótt um styrk hjá sjóðn-
um sem þá getur minnkað kvíðann,“
segir Ágúst.
Vildu örugga fjárfestingu
Rýrnun styrktarsjóðsins, fáist tap-
ið ekki bætt, leiðir óhjákvæmilega
til lækkunar þeirra styrkja sem fjöl-
skyldur hjartveikra barna fá. Ekki er
búist við að skerðingin bitni á einni
fjölskyldu umfram aðra heldur verð-
ur hver úthlutaður styrkur lægri.
Ágúst harmar sömuleiðis tap-
ið fyrir hönd þeirra sem gefið hafa í
sjóðinn. „Fólk hefur gefið af öllum
hug og öllu hjarta. Síðan eru þessir
peningar teknir og þeim hent út um
gluggann,“ segir hann.
Í samningi styrktarsjóðsins við
Landsbankann var höfuðáhersla
lögð á öryggi. Þar var kveðið á um
að fjárfest yrði í ríkisskuldabréfum
að níutíu prósentum en taka mætti
meiri áhættu með tíu prósent sjóðs-
ins. Starfsmenn Landsbankans full-
vissuðu forsvarsmenn sjóðsins um
að eftir þessu væri farið.
Eftir bankahrunið fór Guðrún Pét-
ursdóttir, formaður stjórnar sjóðsins,
fram á það við skilanefnd Lands-
bankans að tapið yrði bætt en ekkert
varð af því.
Með gjafaæð frá hjartanu
Brynjar Óli er við ágæta heilsu í dag
en það sem helst hrjáir hann er mæði
og lítið þol. Ágúst segir son sinn ekki
velta því mikið fyrir sér að hann sé
hjartveikur en telur hann þó kominn
á þann aldur nú að hann fari að spyrja
fleiri spurninga. „Núna er hann helst
að spá í af hverju hann er ekki jafn
góður að hlaupa og hinir strákarnir
og margir spyrja hann af hverju hann
andi svona,“ segir Ágúst.
Hjartagalli Brynjars Óla greindist
strax við fæðingu og hefði með réttu
átt að sjást strax á meðgöngu. „Hann
fæddist verulega blár og greinilegt
að eitthvað var að. Síðan kom í ljós
að æðin sem átti að vera frá hjartanu
og niður í lungun, æð sem flytur súr-
efnissnautt blóð frá líkamanum til
lungnanna, var
alls ekki til stað-
ar. Hana vantaði,“
segir hann. Þar að
auki eru lungna-
æðar hans að
hluta ekki venju-
legar lungnaæðar
og svo hefur hann
greinst með radd-
bandalömun sem
hann fékk út frá
fyrstu aðgerðinni.
Brynjar Óli
fæddist í Noregi og
fór þar í fyrstu að-
gerðina nokkurra
daga gamall. „Hann
fór í aðgerð til að
bjarga lífi hans því
það var svo mikill
þrýstingur á hjartað. Hann var strax
í lífshættu svona lítill og fór í fyrstu
aðgerðina níu eða tíu daga gamall,“
segir Ágúst. Þegar fjölskyldan flutti
aftur heim til Íslands tóku við ferðir
til Boston í Bandaríkjunum þar sem
Brynjar Óli hefur farið í aðgerðir.
Hann er nú með gjafaæð á milli
hjarta og lungna, og gerviloku, sem
þarf að skipta um reglulega þar sem
hún vex ekki með honum. Í fyrir-
hugaðri ferð til Bos- ton
fær hann sína
fjórðu gjafa-
æð. „Hann
á eftir að
fara í að-
gerðir allt
sitt líf,“ segir
Ágúst.
Erla HlynsdÓttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Fengu styrk Brynjar Óli hefur átta
sinnum farið út í hjartaaðgerðir. Foreldrar
hans, Berglind Sigurðardóttir og Ágúst
Hilmarsson, hafa sótt styrki vegna ferða til
styrktarsjóðsins. Systur Brynjars Óla, þær
Eva og Elísa, eru með þeim á myndinni en
þar vantar elstu systur þeirra, Elvu Björk.
Mynd HEiða HElgadÓttir
dv.is
besta rannsóknarblað
amennska ársinsþrið
judagur 9. desember 2008
dagblaðið vísir 230. tbl
. – 98. árg. – verð kr. 347
F r j á l s t , ó h á
ð d a g b l a ð
StyrktarSjóður rýrnaði um tugi m
illjóna:
HJARTVEIK
BoRN SVIKIN
„Út, Út,
drullið
ykkur Út“
Gordon Brown
Hýddur í
skólanum
fanGi sprautaður
nauðuGur með Geðlyfi
dæmdur fyrir grófar hótanir í
garð fangavarða
neytendur
Bankamenn sögðu reikninga
örugga
Guðrún pétursdóttir stjórnar
formaður:
„mér finnst þetta ófyrirgefa
nlegt“
fréttir
fólk
fréttir
Hver er Besti
jólabjórinn?
erlent
Ungfrú
Ísland
Í skýjUnUm
konGó
öruGGara
en ísland
erlendir fjárfestar:
fréttir
anney Birta hefur farið í sex a
ðgerðir
á sex árum og þekkir ekki ann
að mynd róbert
6. desember 2008
tapaði
Björgólfur Guð-
mundsson stýrði
Landsbankanum
þegar styrktarfé
hjartveikra barna
tapaðist.
Óvissa ríkir um
einkunn Íslands
Enn ríkir mikil óvissa um þróun
lánshæfismats ríkissjóðs á næst-
unni vegna þeirrar miklu óvissu
sem hér ríkir í efnahagsmálum.
Engar breytingar hafa átt sér
stað á lánshæfismati ríkissjóðs
það sem af er þessu ári, hvorki
lánshæfiseinkunnum né horfum
um þær.
Frá þessu er greint á vef
Greiningar Íslandsbanka. Þar
kemur fram að lánshæfisein-
kunnir ríkissjóðs eru þær lægstu
sem hann hefur haft frá upphafi.
Eru þær hæstar í bókum Mood-
y‘s, Baa1, eða tveimur þrepum
ofar en einkunnir hans hjá Fitch,
S&P og R&I, eða BBB-. Þá eru
þær neikvæðar í bókum Moody‘s
og S&P sem gefur til kynna að
líkur eru á að þær muni lækka til
meðallangs tíma.
Götuð á
salerni
Stúlka á fermingaraldri
komst í kynni við mann í
gegnum netið í sumar og
mæltu þau sér mót í versl-
unarmiðstöð á höfuðborgar-
svæðinu. Þau fóru síðan á al-
menningssalerni á staðnum
en þar setti maðurinn lokk
eða pinna í nafla stúlkunnar
að hennar ósk. Nokkru síðar
var farið að grafa í naflanum
og þurfti stúlkan að leita sér
læknisaðstoðar. Hluturinn
var fjarlægður.
Ofangreint mál barst inn
á borð lögreglunnar eftir að
forráðamaður stúlkunnar
tilkynnti um það. Mál sem
þetta er samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni ekki
einsdæmi.
Erlendir bankar
krefjast bóta
Í gær var þingfest skaðabótamál
sem 27 alþjóðlegir bankar höfða
gegn Seðlabanka Íslands ann-
ars vegar og Fjármálaeftirlitinu,
fjármálaráðuneytinu og SPRON
hins vegar.
Forsvarsmenn bankanna
telja að þegar íslenska ríkið
yfirtók SPRON hafi það valdið
þeim miklu tjóni. Bankarnir hafi
verið í samningaviðræðum við
SPRON um lánalengingar til að
bjarga bankanum frá þroti.
Flestir bankanna eru þýskir
en í löngum lista stefnenda má
finna franska og egypska banka.
8,4 milljarða
söluverð
Samningur um kaup Magma
Energy á þriðjungshlut Orku-
veitu Reykjavíkur í HS Orku
var birtur á vef Orkuveitunn-
ar í gær. Þar kemur fram að
Magma staðgreiðir 3,6 millj-
arða króna en afgangurinn,
8,4 milljarðar króna, verður
greiddur með skuldabréfi.
Hanna Birna Kristjáns-
dóttir borgarstjóri tilkynnti
við upphaf borgarstjórnar-
fundar í gær að samningur
Orkuveitunnar við Magma
yrði gerður opinber. Dagur
B. Eggertsson gagnrýnir að
undirsamningum sé leynt.