Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2009, Blaðsíða 10
10 miðvikudagur 14. október 2009 fréttir
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Laugavegi 178, 105 Rvk
sími 551-3366 www.misty.is
opið mán-fös 10-18, lau 10-14
Teg. 11008 - haldgóður og
vinsæll í BC skálum á kr.
3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950
Teg. 8183 - létt fylltur og
fínlegur í BC skálum á kr.
3.950,- buxur í stíl á kr.
1.950,-
Teg. 6579 - mjög fallegur
í BCD skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950
Teg. 11008
Teg. 8183
Teg. 6579
Beraði bossann,
slapp með
skrekkinn
Þjóðverji sem ákvað að sýna
starfsfólki járnbrautarstöðvar-
innar í Lauensbrück óæðri end-
ann lenti heldur betur í þolraun.
Brækur hans flæktust í vagndyr-
unum og hann dróst með lest-
inni 200 metra vegalengd.
Um var að ræða miðalaus-
an 22 ára námsmann sem ekki
var sáttur við að vera vísað úr
lestarvagninum. Honum tókst
fyrir einhverja mildi að halda
fótleggjum sínum frá hjólum
lestarinnar og það var ekki fyrr
en farþegi togaði í neyðarhemil-
inn að endi var bundinn á ferða-
lagið.
Námsmaðurinn á yfir höfði
sér ákæru um hættulegt atferli
við járnbrautarlest, móðgun við
starfsfólk og jafnvel væna skaða-
bótakröfu því lestin tafðist um
klukkustund og olli auk þess töf-
um hjá 23 öðrum lestum.
Að sögn talsmanns lögregl-
unnar mælir ungi maðurinn
ekki með athæfi af þessu tagi.
Hægfara bati
fram undan
Samkvæmt könnun er verstu
kreppu í Bandaríkjunum, síðan
kreppan mikla var og hét upp úr
1930, lokið. Könnunin var gerð
af hálfu NABE, National Assoc-
iation for Business Economics,
í Bandaríkjunum og samkvæmt
niðurstöðum hennar telja átta-
tíu prósent aðspurðra að hag-
vöxtur ykist nú um stundir eftir
að hafa minnkað í fjóra ársfjórð-
unga í röð.
Lynn Reaser, verðandi forseti
NABE, sagði að stærstur hluti
viðskiptahagfræðinga teldi að
kreppunni væri lokið, en efna-
hagsbati yrði hægari en allajafna
í kjölfar mikillar hnignunar. Tal-
ið er nokkuð víst að lítil neysla
í einkageiranum á sama tíma
og vinnumarkaðurinn reynir
að fjölga störfum muni hægja á
efnahagsbatanum.
Talíbönum vex fjárhagslega fiskur um hrygg, en al-Kaída skortir fé:
Sverfur að al-Kaída
Nú er farið að syrta í álinn fjárhags-
lega fyrir al-Kaída-samtökin og sam-
kvæmt yfirlýsingu frá bandaríska
fjármálaráðuneytinu hafa pyngjur
samtakanna ekki verið jafnléttar í
áravís. Hagur talíbana fer hins vegar
batnandi.
Að sögn Davids Cohen hjá fjár-
málaráðuneytinu hafa al-Kaída-
samtökin á þessu ári farið bónleið
til búðar nokkrum sinnum í viðleitni
til að finna fjármagn. Cohen sagði
að áhrif samtakanna færu dvínandi
enda hafa bandarísk stjórnvöld lagt
sig í líma við að leggja stein í götu
þeirra með tilliti til fjármögnunar.
Slíkt hið sama er ekki að segja um
talíbana sem búa við vaxandi hag-
sæld og njóta enda ávaxta af góðu
gengi í eiturlyfjaframleiðslu í Afgan-
istan.
David Cohen sagði að yfirstjórn
al-Kaída hefði nú þegar sent frá sér
viðvörun þess efnis að fjárskortur
stæði bæði nýliðun og æfingum fyrir
þrifum. Cohen bætti því við að sam-
tökin ættu þó bakhjarla sem væru
„reiðubúnir, viljugir og færir um að
láta fé af hendi rakna“ og því gæti
dæmið snúist við á augabragði.
Að sögn Richards Holbrooke, sér-
staks sendifulltrúa Bandaríkjanna
í Afganistan, fá talíbanar stærstan
hluta síns fjármagns frá velgjörðar-
mönnum á Flóa-svæðinu og gerði
fjöldi þeirra að verkum að erfiðara
væri um vik en ella að stöðva pen-
ingaflæðið.
Holbrooke gerði einnig að um-
talsefni að hjá hernaðarsamtökum
á borð við talíbana og al-Kaída gætti
tilhneigingar til að færa kvíarnar út
í glæpastarfsemi til að fjármagna
starfsemi þeirra. Hann nefndi sem
dæmi Hisbolla-samtökin sem hann
taldi stunda sölu á ólöglegum tón-
listardiskum og tölvuforritum sem
og smygli á sígarettum.
Handverk talíbana Talíbanar hafa
aðgang að gildum sjóðum.
Á vefsíðu The Guardian er að finna
skemmtilega og jafnframt örlítið sorg-
lega frásögn sem hugsanlega ber vitni
um það samfélag sem bíður okk-
ar undir vökulu auga hins alræmda
„stóra bróður“. Í frásögninni segir frá
húsmóðurinni Jackie Slater sem í ein-
feldni sinni hélt að hún væri við að
ljúka hefðbundnum og venjulegum
heimilisinnkaupum í verslun Morris-
ons í Leeds á Englandi.
En lítið vissi Jackie Slater um hvað
beið hennar og sautján ára dóttur
hennar sem var með í för. Allt hafði
gengið sem skyldi þar til að því kom
að renna tveimur vínflöskum í gegn-
um skannann. Þegar þar var komið
sögu bað afgreiðslustúlkan Slater um
persónuskilríki.
Upp með sér
„Ég sagði henni að ég væri verulega
upp með mér, en ég væri röngum
megin við fimmtugt,“ sagði Jackie
Slater. En afgreiðslustúlkan benti þá í
átt að sautján ára dóttur hennar, Em-
ily, og átján ára frænku þeirra, Ann-
ice, sem stóðu á spjalli við enda af-
greiðsluborðsins.
„Hún [afgreiðslustúlkan] spurði:
„Eru þær með þér?““ Jackie sagði eins
og var að þær hefðu komið með til að
hjálpa til við að bera pokana út í bíl.
„Þú gætir verið að kaupa vínið fyrir
þær. Þetta er vinnuregla – ég verð að
sjá persónuskilríki ykkar allra til að
fullvissa mig um að allar séu eldri en
átján,“ sagði þá afgreiðslustúlkan.
Jackie Slater fullyrti í örvinglan að
vínið væri reyndar ætlað henni og eig-
inmanni hennar, en afgreiðslustúlk-
unni varð ekki hnikað.
Blessun lögð yfir vinnubrögðin
Yfirmenn Morrisons-verslananna sáu
ekki að nokkuð athugavert hefði ver-
ið við framgöngu afgreiðslustúlkunn-
ar og studdu hana heils hugar. Því er
ekki fráleitt að álykta að nýjar reglur
ætlaðar til leiðbeiningar og sem ætl-
að er að draga úr framboði á áfengi
til unglinga muni þegar fram í sæk-
ir valda öngþveiti, ef allar verslanir
fylgja fordæmi Morrisons.
„Samkvæmt núverandi leyfi mega
verslanir ekki selja áfengi viðskipta-
vinum sem hugsanlega geta verið að
kaupa fyrir ungt fólk eða einhvern
sem ekki getur fært sönnur á aldur
sinn,“ sagði talsmaður Morrisons, en
þar á bæ hafa ekki verið bornar brigð-
ur á frásögn Jackie Slater. Reyndar
viðurkenndi afgreiðslustúlkan að hún
hefði, ef til þess hefði komið, selt vín
móður sem hefði haft yngri börn með
sér því „enginn myndi kaupa vín fyrir
tólf ára“.
Eins og glæpamaður
í verslunarleiðangri
Jackie Slater var eðli málsins sam-
kvæmt ekki sátt við það viðmót sem
hún varð fyrir, löng röð hefði myndast
fyrir aftan hana og dóttur hennar liðið
ömurlega á meðan þessu stóð. Slater
lýsti atvikinu sem þeirri „heimskuleg-
ustu vinnutengdu vitleysu“ sem hún
hafði nokkurn tímann lent í.
„Fyrr en varir getur móðir ekki farið
í verslunarleiðangur með dóttur sinni
án þess að henni sé látið líða eins og
glæpamanni,“ sagði Jackie Slater.
Þingmaðurinn Greg Mulholland,
sem er fulltrúi þess kjördæmis sem
Jackie Slater býr í og talsmaður heil-
brigðismála fyrir frjálslynda demó-
krata, var ómyrkur í máli þegar hann
heyrði af atvikinu. „Sá sem heldur að
þessi stefna muni hafa einhver áhrif á
ofdrykkju unglinga býr í skýja-gauks-
landi,“ sagði Mulholland.
Bannað að bera poka út í bíl
Það er víðar sem heimskan virðist
ekki ríða við einteyming. Í síðustu
viku þurftu fulltrúar verslunarkeðj-
unnar Asda að biðja breska móð-
ur, Gill Power, afsökunar, en henni
var sagt að fjórtán ára sonur hennar
mætti undir engum kringumstæð-
um bera innkaupapoka út í bíl því í
þeim væri að finna vínflöskur. „Mér
þykir það miður, hann má ekki taka
þá [pokana] því hann er undir aldri,“
sagði gjaldkerinn við Gill Power.
Afsökunarbeiðni Asda til Gill
Power fylgdi sú útskýring að starfs-
fólkið hefði farið „offari í varkárni“.
Sem fyrr segir var þingmaðurinn
Greg Mulholland ekki hlátur í hug
þegar hann heyrði af raunum Jack-
ie Slater. „Þetta er einfaldlega fárán-
legt og þeir ættu að skammast sín
hjá Morrisons,“ sagði Mulholland
og bætti við að þörf væri á þrosk-
aðra og skynsamlegra viðhorfi til
áfengis almennt. „Að banna móð-
ur að kaupa vínflösku með vikuinn-
kaupunum vegna þess að sautján
ára dóttir hennar er með í för er fá-
ránlegt.“
Uppnán vegna áfeng-
iskaUpa HúsmóðUr
Það er ekki öll vitleysan eins, eins og breska húsmóðirin Jackie Slater komst að raun
um þegar hún hugðist kaupa vín í verslun Morrisons í Leeds á Englandi. Slater fór
bónleið til búðar því með henni í för var dóttir hennar á unglingsaldri.
Móðir og dóttir setja poka í bíl, en
hvað skyldi vera í pokunum?
Fólk sem tekur unglinga með sér í verslun-
arleiðangra í Bretlandi gæti lent í vandræð-
um við áfengiskaup. Konan og barnið eru
ekki umfjöllunarefni greinarinnar.
MYND PHOTOS.COM
KOlBEiNN þOrSTEiNSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
„Þú gætir verið að
kaupa vínið fyrir þær.
Þetta er vinnuregla.“