Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2009, Page 36
Miðvikudagur 14. október 200936 norðurland
LipoSan
Náttúruleg íslensk vara, framleidd hjá sjávarlíftæknifyrirtækinu Prímex á Siglufirði
-inniheldur Kítosan, trefjar sem binda fitu úr fæðunni
-gott fyrir meltinguna
-áhrifarík leið til þyngdarstjórnunar
20 % afsláttur í október
Verð áður 4990 - Verð nú 3990-
NutriLenk
Þúsundir Íslendinga nota NutriLenk með góðum árangri við aumum og slitnum liðum.
- inniheldur náttúrulegt kondróitín súlfat sem er mikilvægt byggingarefni brjóskvefs.
- er unnið úr sérvöldum fiskibeinagrindum aðallega úr hárkarlsbeinum.
20% afsláttur
210 stk. verð áður 7.690.- verð nú 6.150.-
90 stk. verð áður 4.390.- verð nú 3.500.-
Aðalgötu 34, 580 Siglufirði. Sími 467-2222 Fax 467-1905
OKTÓBERTILBOÐ
- Eina einkarekna apótekið
á Norðurlandi
Hlíðarfjall er á meðal vinsælustu skíðasvæða landsins. Aðstaðan og tækifæri til að hafa opið breyttust til muna
fyrir nokkrum árum þegar snjóframleiðslutæki voru tekin þar í gagnið og hefur gestafjöldinn aldrei verið jafn-
mikill og síðasta vetur. Stefnt er að opnun Hlíðarfjalls seinni hluta nóvember.
„Stemningin er góð í Hlíðarfjalli.
Það kom smá snjór um daginn og
hann er ennþá og við ætlum svo
að byrja að framleiða snjó í næsta
kuldakasti. Við þurfum svona tvö
kuldaköst og stefnum að því að
opna síðan seinni partinn í nóvem-
ber,“ segir Guðmundur Karl Jóns-
son, framkvæmdastjóri Skíðastaða
í Hlíðarfjalli.
Venjan er að Hlíðarfjall opni um
það leyti en þó getur óvenju mikil
snjókoma flýtt aðeins fyrir. Í fyrra til
að mynda var opnað 1. nóvember.
„Það var hægt af því að það snjóaði
svo hressilega í lok október í fyrra,“
segir Guðmundur. Snjóframleiðslu-
tæki hafa verið til taks í Hlíðarfjalli
frá árinu 2005 og segir Guðmund-
ur reynsluna af þeim virkilega góða.
„Þau hafa tryggt okkur samfellda
opnun út veturinn. Ef það kom hláka
hér áður fyrr misstum við mikið af
snjónum og gátum þurft að loka, en
það hefur ekki gerst síðan við feng-
um við tækin,“ segir Guðmundur.
160 opnunardagar metið
Meðalfjöldi opnunardaga á ári í
Hlíðarfjalli eftir að tækin góðu komu
til sögunnar hefur verið hundrað
og tuttugu á meðan þeir voru áður
75-80. Í fyrra voru dagarnir tæp-
lega hundrað og fimmtíu. „Met-
ið er hundrað og sextíu dagar árið
2006 eða 2007. Annars horfum við
svo sem ekki til þess hversu mikið er
opið heldur hversu góðir dagarnir
eru,“ segir Guðmundur. Gestafjöld-
inn í fyrra var hins vegar met þegar
ríflega sjötíu þúsund manns mættu
á svæðið en aðsóknin hefur farið
stigvaxandi frá því sjóframleiðslan
hófst.
Spítali Sem varð
fjallahótel
Saga Hlíðarfjalls sem skíðasvæðis á
upphaf sitt að rekja til þess þegar þar
var opnað hótel árið 1956. „Þetta var
mjög framúrstefnulegt hótel með
um tuttugu herbergjum,“ segir Guð-
mundur. „Þetta var ekta fjallahótel
og tók tíma sinn að komast þang-
að. Þetta var reyndar gamli spítalinn
á Akureyri og átti að rífa hann þeg-
ar nýi spítalinn var byggður. Hópur
framsækinna manna ákvað hins veg-
ar að taka húsið niður og flytja það
hingað upp eftir. Það tók þá fjögur,
fimm ár að að reisa húsið aftur. Svo
voru settar upp toglyftur til að byrja
með en fyrsta stólalyftan var sett hér
upp árið 1967 sem var á meðal fyrstu
skíðalyfta á Íslandi. Við horfum því á
árið 1967 sem upphafsár Hlíðarfjalls
metaðSókn í fyrra
Hlíðarfjall Ófáir
Íslendingar eiga ljúfar
minningar frá Hlíðarfjalli.