Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2010, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. maí 2010 FRÉTTIR
Sumarhúsaeigendur í Grímsnesi eru
ósáttir við nýjan veitingastað Ólafs
Laufdal veitingamanns sem stendur
nærri sumarhúsum þeirra. Veitinga-
húsið er hluti af ferðamannaþjón-
ustu Ólafs, en auk veitingahússins
rekur hann lúxusgistihús sem hann
leigir út allt árið.
Sigríður Björnsdóttir hefur átt
bústað á svæðinu í rúm sjö ár og er
hún ein þeirra sem eru ósáttir við
veitingastaðinn.„Þetta er algjörlega
óþolandi. Við byggjum sumarbústað
þarna í góðri trú um að við getum átt
þarna rólegar og kósí stundir með
fjölskyldunni en það segir sig sjálft
að það fylgir því talsvert ónæði að fá
þetta við bústaðinn hjá sér,“ segir Sig-
ríður.
Tveimur árum eftir að bústað-
ur hennar reis byrjuðu heilsárshús-
in að rísa rétt fyrir neðan. Hún segir
að það hafi ekki legið fyrir á skipulagi
og hugmyndin hafi aldrei verið kynnt
fyrir sumarhúsaeigendum á staðn-
um. Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri
Grímsnes- og Grafningshrepps, seg-
ir deiluskipulag hafa verið gert árið
2004 og ætti væntanlega að hafa ver-
ið kynnt fyrir nágrönnunum, það
hafi þó verið fyrir hans sveitarstjóra-
tíð. „Þetta fór bara í skipulagsferli á
sínum tíma og væntanlega ekki ver-
ið gerðar athugasemdir við það þá,“
segir Jón. Sigríður segir það þekkt
að þar sem svona staðir hafi risið í
sumarhúsabyggð hafi það raskað
friðnum á staðnum og tekur Flúðir
og Úthlíð sem dæmi. Sigríður segir
óánægjuna fyrst og fremst snúa að
sveitarstjóranum þar sem þetta hafi
aldrei verið kynnt fyrir sumarhúsa-
eigendum á staðnum.
Ólafur Laufdal segir að áhyggj-
ur sumarhúsaeigenda séu óþarfar:
„Þetta verður bara rólegt kaffihús
með opið til ellefu á kvöldin. Þetta
verður ekki bar, dansstaður eða neitt
slíkt. Við erum með vínveitingaleyfi
en það er bara svo fólk eigi kost á að
fá sér eitt glas með matnum,“ segir
hann og bætir við að veitingastaður-
inn muni koma sér vel fyrir sveitarfé-
lagið. viktoria@dv.is
Sumarhúsaeigendur í Grímsnesi ósáttir við gistihús og veitingastað Ólafs Laufdal:
Ósætti um veitingastað
Óþarfa áhyggjur Ólafur Laufdal
ásamt Kristínu Ketilsdóttur,
eiginkonu sinni. MYND BJÖRN BLÖNDAL
Óskar Hrafn hættur
Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur látið
af störfum sem fréttastjóri Stöðv-
ar 2 og Vísis. Er ástæðan frétt um
meinta fjármagnsflutninga fjögurra
athafnamanna í júlí á síðasta ári en á
mánudag var fréttin dregin til baka.
Kveðst Óskar með uppsögn sinni
vera að axla ábyrgð á þeim mistök-
um. Í kjölfar uppsagnarinnar sendu
starfsmenn Stöðvar 2 og Vísis frá
sér yfirlýsingu þar sem uppsögnin
var hörmuð. Skoruðu starfsmenn á
hann að draga uppsögnina til baka.
Risalúða á Flateyri
Sjóstangaveiðimenn frá Þýskalandi
duttu í lukkupottinn á Flateyri á
mánudag þegar þeir veiddu 108
kílóa lúðu. Veiðimennirnir voru á
vegum ferðaþjónustunnar Hvíldar-
kletts á Flateyri sem er fyrirferðar-
mikil í ferðaþjónustunni á Vestfjörð-
um. Þjóðverjarnir voru fjórir saman
og tók það þá um klukkustund með
aðstoð leiðsögumanns að draga fisk-
inn um borð. Lúðan var rúmir tveir
metrar á lengd og tæplega hundrað
kíló eftir að hreinsað hafði verið inn-
an úr henni.
Hámark á styrki
Enginn frambjóðandi Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs er með
meira en 300 þúsund krónur í styrki
vegna forvals flokksins fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar.
Forval var haldið á fjórum stöð-
um; í Reykjavík, á Akureyri, á Akra-
nesi og í Kópavogi. Alls tók fjörutíu
og einn frambjóðandi þátt og hafa
þeir allir skilað inn upplýsingum
til ríkisendurskoðanda og staðfest
að kostnaður hafi ekki farið yfir 300
þúsund krónur. Auglýsingabann rík-
ir meðal frambjóðenda VG í forvali
flokksins.
Mikið hrun
úr Bjarnarey
Talið er að mörg þúsund tonn af
grjóti hafi hrunið úr Bjarnarey í
Vestmannaeyjum í fyrrinótt. Það var
Haraldur Sverrisson trillusjómaður
sem varð vitni að atburðinum um
fjögurleytið í fyrrinótt og lét vita. Í
samtali við Eyjafréttir í gær sagði
Gunnlaugur Erlendsson, skipstjóri
á björgunarbátnum Þór, að um
gríðarlega mikið hrun væri að ræða.
Gunnlaugur sigldi fram hjá eynni
í gærmorgun til að kanna aðstæð-
ur. Er þetta í annað sinn á stuttum
tíma sem mikið grjóthrun verður úr
Bjarnarey.
„Já, það var hringt í mig á föstudags-
morgun og mér boðin vinna,“ seg-
ir Ágúst Oddur Kjartansson. Ágúst
sagði í helgarblaði DV frá reynslu
sinni af margra mánaða atvinnuleysi.
Hann á að baki um 50 ára starfsævi
en hafði fyrir helgi verið atvinnulaus
í um 16 mánuði.
Í viðtalinu lýsti hann því hvernig
hann væri niðurbrotinn maður og
sæi ekki fyrir sér bjarta framtíð. Eft-
ir viðtalið hefur orðið viðsnúningur á
högum Ágústar því honum var boð-
in vinna sama dag og viðtalið birtist.
Það höfðu nokkrir aðilar samband
við hann í kjölfarið en hann ákvað að
taka boði eins þeirra um starf.
Starfið er hjá banka í bænum.
Þar kemur hann til með að vinna
við þjónustudeild bankans. „Þetta er
reyndar sumarvinna til að byrja með
en það er betra en ekkert,“ segir Ág-
úst léttur í bragði.
Hann segir það líka skemmtilega
tilviljun að hann sé að fara að vinna
á þessum stað því á þessari sömu
lóð og nýi vinnustaðurinn stendur
á hafi hann byrjað sinn vinnuferil
fyrir 50 árum. Þá hafi frystihús ver-
ið á lóðinni. Þar var hann ráðinn í
sína fyrstu vinnu, 13 ára gamall, og
starfaði hann þar við hin ýmsu fisk-
vinnslustörf.
Það er von
Ágúst segist hafa fengið mjög mikil
og sterk viðbrögð í kjölfar viðtalsins.
Hann er þakklátur fyrir þá miklu um-
fjöllun sem mál hans hefur hlotið.
Fjölmargir höfðu samband við
hann og voru þakklátir honum fyr-
ir að stíga fram því það séu ekki all-
ir sem þora að tala um jafnviðkvæmt
mál. „Viðtalið vakti fólk til umhugs-
unar um stöðu atvinnulausra,“ seg-
ir hann og bætir við: „Það er ekkert
grín að vera í þessari stöðu, þetta tek-
ur svo á fólk.“ Þrátt fyrir að Ágúst sé
þakklátur að vera kominn með vinnu
segir hann að það sé vissulega erfitt
að vita af mörgum sem séu í sömu
stöðu og hann var í. Hann segir at-
vinnuleysið vera mikið og sérstak-
lega sé erfitt fyrir fólk sem komið er
á vissan aldur að fá vinnu. Það sé þó
ekki vonlaust eins og sýni sig í hans
tilviki.
Ráðherra lofar úrbótum
Ágúst sagði líka frá því í viðtalinu að
ranglega hefði verið tekið af hon-
um bætur vegna séreignasparnaðs
sem hann tók út til að borga skuld-
ir. Hann taldi sig í fullum rétti til að
taka út séreignarsparnað sinn í ein-
greiðslu án þess að verða fyrir tekju-
skerðingu. Ágúst hafði ráðfært sig við
lífeyrissjóðinn sinn þar sem hann
fékk þær upplýsingar að hann myndi
ekki verða fyrir tekjuskerðingu þó
hann tæki út séreignarsparnaðinn í
einni greiðslu.
Annað kom á daginn því stuttu
seinna fékk hann bréf frá Vinnumála-
stofnun þar sem honum var tilkynnt
að bætur hans yrðu skertar vegna
þess að hann hafi tekið út sparnað-
inn. Hann segist hafa hitt Árna Pál
Árnason félagsmálaráðherra á ráð-
stefnu um fátækt um helgina. Hann
sagði Árna frá því ranglæti sem hann
telur sig hafa sætt. Ráðherrann lofaði
honum úrbótum og sagðist vera bú-
inn að leggja fram frumvarp til að fá
þessu breytt. Hann gaf Ágústi líka lof-
orð um að hann myndi fá peningana,
sem ranglega voru teknir af honum,
til baka næði frumvarpið fram að
ganga.
Allt á uppleið
Það hefur svo sannarlega orðið við-
snúningur á lífi Ágústs síðan fyrir
helgi. Þá var hann atvinnulaus og sá
ekkert bjart fram undan.
Í dag er hann kominn með vinnu
og er bjartsýnn á framhaldið. „Eins
og er þá er allt á uppleið hjá manni,
það er miklu léttara að vera í kring-
um mann,“ segir Ágúst sem horfir nú
björtum augum til framtíðar. Hann
segir vissulega vera mikinn létti að
vera loksins kominn með vinnu enda
hafi hann verið algjörlega að niður-
lotum kominn.
Nýja vinnan leggst vel í hann en
fyrsti dagurinn hans var á þriðjudag.
„Maður er bara glaður að komast út á
vinnumarkaðinn aftur.“
„GLAÐUR AÐ KOMAST
Á VINNUMARKAÐINN“
Ágúst Oddur er kominn með vinnu eftir að hafa verið atvinnulaus í rúma 16 mán-
uði. Ágúst grét vegna aðstæðna sinna í sjónvarpsviðtali í síðustu viku og opnaði sig
í helgarviðtali við DV. Hann segist hafa verið að niðurlotum kominn en nú líti hann
björtum augum til framtíðar.
VIKTORÍA HERMANNSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: viktoria@dv.is
Eins og er þá er allt á uppleið
hjá manni, það er miklu
léttara að vera í kring-
um mann.
Bjartsýnn Ágúst Oddur
horfir björtum augum til
framtíðar eftir erfiða mánuði
frá bankahruninu 2008.