Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2010, Side 30
Eftir hrunið hefur margur Ís-
lendingurinn verið duglegur
að semja lög um hina og þessa
útrásarvíkinga og aðra sem því
tengjast. Nú hefur einhver mæt-
ur maður soðið saman texta um
Sigurð Einarsson, fyrrverandi
forstjóra Kaupþings, við lagið
Siggi var úti með ærnar í haga.
Í þessum texta sem hefur farið
eins og eldur í sinu um veraldar-
vefinn þorir Siggi ekki heim að
mæta sérstökum saksóknara.
Siggi í London með fé sitt í haga,
sem allt var falið á Tortóla þó.
Smeykur um King’s Road var hann að vaga,
vissi hann að Sérstakur dældirnar smó.
Gagg, gagg, gagg segir Siggi hinn ljóti,
Gagg, gagg, gagg segir Óli á móti. –
Gráleitin græðgin hún dofnar í grjóti,
aumingja Siggi hann þorir ekki heim.
SIGGI ÞORIR
EKKI HEIM
„Þetta er bara í þetta eina skipti,“ segir Eg-
ill Gillzenegger Einarsson, einnig kallað-
ur Þykki, um endurkomu hljómsveitarinn-
ar Mercedez Club í þrítugsafmæli hans á
Players í kvöld. „Fólk myndi nú ekki hata ef
þessi frábæra hljómsveit kæmi saman aftur
en í dag er ég rithöfundur. Óreglan sem fylg-
ir tónlistarbransanum er líka slæm fyrir lík-
amsræktarferil minn svo ég held að það sé
óhætt að segja að tónlistarferill minn sé bú-
inn.“
Eurovision-aðdáendur muna vel eftir
Mercedez Club sem sló eftirminnilega í gegn
með laginu Hey, Hey, Hey, We Say Ho, Ho,
Ho. „Mér finnst mjög líklegt að við munum
taka þrjú lög en alls ekki meira. Þrátt fyrir allt
uppklapp.“ Egill segir þó skarð fyrir skildi að
hinn vöðvamikla og taktfasta Gasman muni
vanta á sviðið. „Það verður 100% mæting fyr-
ir utan Gasman. Hann er staddur í æfinga-
búðum í Bretlandi og kemst því miður ekki.“
Egill leitar nú að mjög mössuðum stað-
gengli og hefur Magnús Bess verið nefnd-
ur til sögunnar. „Maggi er náttúrlega einn
fremsti vaxtarræktarmaður heims og myndi
svo sannarlega fylla það skarð. En ann-
ars þyrfti ég svona fjóra til fimm venjulega
massa gaura í staðinn fyrir Gas.“
Aðrir skemmtikraftar sem koma fram í af-
mælsiveislu Egils eru Auddi og Sveppi, Erp-
ur Eyvindarson, Ultra Mega Technobandið
Stefán og margir fleiri. Auk þess munu einn
til átta uppistandarar stíga á svið og er því
lofað að útvarpsmaðurinn Þorkell Máni úr
Harmageddon fari úr að ofan.
asgeir@dv.is
RITSTÖRFIN FRAM YFIR TÓNLISTINA
MERCEDEZ CLUB SNÝR AFTUR FYRIR ÞRÍTUGSAFMÆLI GILLZ:
Þingmaður Samfylkingarinnar,
Sigmundur Ernir Rúnarsson, fer
með hlutverk í stuttmyndinni
Þrautseigja. Myndin var gerð af
tveimur ungum strákum fyrir
stuttmyndakeppnina Taka 2010.
Söguþráður myndarinnar er á
þann veg að ungur drengur fer
að vinna fyrir sér til þess að bæta
tjón sem hann olli heima hjá
sér. Hann og félagi hans fá vinnu
hjá Sigmundi til þess að taka til
á skrifstofu hans. Þeim félögum
tekst hins vegar að eyðileggja
frumrit Sigmars að nýrri stjórn-
arskrá. Hægt er að sjá hvernig
ósköpin enda á myndbanda-
vefnum youtube.com
30 MIÐVIKUDAGUR 12. maí 2010 FÓLKIÐ
Við erum fyrst og fremst sorg-mædd yfir að hann sé farinn. Það eru held ég allir starfs-mennirnir á því að hann sé
frábær fréttastjóri, og sennilega sá
besti sem við höfum haft, alla vega
fyrir mitt leyti,“ segir Gunnar Reynir
Valþórsson, starfandi trúnaðarmað-
ur fréttamanna á Fréttastofu Stöðvar
2 og Vísis. Eins og kunnugt er sagði
Óskar Hrafn Þorvaldsson starfi sínu
sem fréttastjóri þar lausu í gærmorg-
un. Ástæðuna sagði hann vera þá að
fréttastofan hefði þurft að leiðrétta og
biðjast afsökunar í fyrrakvöld á frétt
um meinta fjármagnsflutninga fjög-
urra íslenskra athafnamanna sem
send var út í fyrrasumar.
Gunnar Reynir segir að þrátt fyrir
að starfsmenn harmi uppsögn Ósk-
ars virði þeir ákvörðun hans og rök
í málinu. „Við skoruðum á hann að
endurskoða þessa ákvörðun. En hon-
um varð ekki haggað.“ Óskar tilkynnti
samstarfsfólki sínu ákvörðun sína á
fundi í gærmorgun. „Þetta var tilfinn-
ingaþrunginn fundur,“ segir Gunnar
og bætir við aðspurður að hjá sumum
hafi sést tár á hvarmi. „Enda ekki skrít-
ið, Óskar er frábær samstarfsmaður og
frábær yfirmaður.“
Helga Arnardóttir, fréttakona á Stöð
2, tekur undir þessa lýsingu Gunnars.
„Hann hefur líka tekið slaginn út á
við og gert okkur kleift að vinna vinn-
una okkar. Hann ber alltaf fullt traust
til starfsmanna sinna sem er ótrúleg-
ur kostur hjá yfirmönnum. Það er því
ofboðslega sorglegt að missa hann.“
Helga bætir við að ákvörðun Óskars sé
aðdáunarverð. „Hann axlar ábyrgð á
frétt sem var röng. Þetta ættu kannski
aðrir í samfélaginu að taka sér til fyr-
irmyndar.“
Freyr Einarsson, ritstjóri Íslands
í dag, mun gegna starfi Óskars tíma-
bundið. Hann er ekki alls ókunnug-
ur starfinu þar sem hann hefur sinnt
ýmsum verkefnum Óskars þegar sá
síðarnefndi hefur verið í fríi. Freyr býst
ekki við að taka á nokkurn hátt annan
kúrs í stjórnun fréttastofunnar frá því
sem verið hefur undanfarin misseri.
„Nei, enda hefur Óskar náttúrlega
verið að gera frábæra hluti hérna,“
segir Freyr. „Áhorfið hefur aukist gríð-
arlega eftir að hann tók við og hann
mótaði nýja stefnu fyrir þessa frétta-
stofu. Hann hefur líka sett saman
sterkan hóp fréttamanna og ég held
að það sé farsælast fyrir alla að gerðar
séu sem minnstar breytingar á þeirri
góðu vinnu sem hann hefur verið að
vinna hérna.“
Spurður hvort Freyr hyggist sækj-
ast eftir fastráðningu í starf frétta stjóra
kveðst hann líta á þetta sem tíma-
bundið verkefni. „Við Óskar höfum
alltaf verið eins konar „team“, hann
hefur meira unnið að daglegum verk-
efnum en ég í stefnumálum til lengri
tíma litið. Það er meira mitt að halda
því áfram en vaktstjórar reka svo
fréttatímana frá degi til dags. En Ósk-
ar er einstakur maður og það er eng-
inn að fara að vinna þessa vinnu með
sama hætti og hann. Ég vona bara að
það takist að finna manneskju sem
getur með einhverjum hætti fylllt hans
skarð.“
Gunnar Reynir kannast ekki við
áhyggjur hjá starfsfólki fréttastofunn-
ar af því hver verði ráðinn í starfið, til
að mynda einhver sem sé eigendum
365, sem Stöð 2 heyrir undir, hand-
genginn. „Nei, ég hef ekki orðið var við
það. En þetta eru stór spor til að ganga
í. Það verður bara að koma í ljós hver
verður fenginn til þess og við starfs-
fólkið vonum það besta.“ kristjanh@dv.is
FRÉTTASTJÓRASKIPTIN Á STÖÐ 2:
SORGMÆDD
VEGNAuppsagnar Óskars
Óskar Hrafn Þorvaldsson sagði í gær
upp sem fréttastjóri Stöðvar 2 og Vísis.
Sorg ríkir á fréttastofunni vegna þessa.
Starfandi fréttastjóri segist ekki ætla að
taka annan kúrs en Óskar. Hann sé enda
einstakur maður.
Freyr Einarsson
Verður fréttastjóri
Stöðvar 2 fyrst um sinn
eftir brotthvarf Óskars.
Óskar Hrafn
Þorvaldsson Tár
sáust á hvarmi
sumra starfsmanna
eftir fundinn þar
sem Óskar tilkynnti
uppsögn sína. MYND
GUNNAR GUNNARSSON
STJÓRNARSKRÁ
Í VASKINN
Egill Einarsson Er rithöfundur í dag og
má því ekki vera að því að sinna tónlistinni.