Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2010, Síða 14
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 198,6 kr. verð á lítra 198,6 kr.
Algengt verð verð á lítra 192,4 kr. verð á lítra 192,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 199,9 kr. verð á lítra 199,7 kr.
bensín
Akureyri verð á lítra 198,3 kr. verð á lítra 198,3 kr.
Melabraut verð á lítra 198,4 kr. verð á lítra 198,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 198,6 kr. verð á lítra 198,6 kr.
Bíll ársins
rAfknúinn?
Nissan Leaf er á meðal þeirra sjö
bíla sem koma til greina í vali á bíl
ársins í Evrópu. FÍB greinir frá þessu
en á vef félagsins kemur fram að
verði hann valinn verði um tíma-
mótaviðburð í bílasögunni að ræða.
„Rafmagnsbíll hefur aldrei áður
komið til greina í þessu vali, hvað
þá náð jafnt langt og nú. Bíll ársins
í Evrópu hefur verið valinn allt frá
árinu 1964,“ segir á fib.is en úrslit
verða kunngjörð 29. nóvember.
Á vefnum segir enn fremur að 59
bílablaðamenn frá 23 löndum standi
að valinu en upphaflega hafi 41 bíll
komið til greina sem sigurvegari.
Hinir bílarnir eru Alfa Romeo Gi-
ulietta, Citroen C3/DS3 Dacia Dust-
er, Ford C-Max/Grand C-Max, Opel
Meriva og Volvo S/V60.
neitAð uM vAtn
n Viðskiptavinur Subway í Ártúns-
höfða var neitað um vatn eftir að
hafa keypt tvo báta á staðnum.
Starfsmaður sem sinnti afgreiðslu
bar fyrir sig að glös í réttri stærð
væru búin. Viðskiptavinurinn benti
þá starfsmanni á að um eitt þús-
und glös væru fyrir aftan hann, en
starfsmaðurinn neitaði samt að láta
viðskiptavininn fá vatnsglas. Eftir
nokkurt þref kallaði við-
skiptavinurinn á ann-
an starfsmann sem
loks lét undan. Glasið
sem hann fékk var þó
þannig í laginu að ekki
var hægt að setja lok á það -
en vatnsglasið fékk hann.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Góð viðBröGð
við kvörtun
n Lofið fær KFC fyrir góð viðbrögð
við kvörtun. Viðskiptavinur hafði
samband við KFC eftir að hafa keypt
tvær máltíðir í bílalúgu. Þegar heim
var komið reyndist gosið með
öllu bragðlaust, líkt og bragð-
efnin hafi verið búin. Aðeins
var vægur keimur af þeim
drykk sem átti að vera
í glasinu. Fyrirtækið
brást vel við kvörtun-
inni og bætti viðskipta-
vininum þetta upp á
sanngjarnan hátt.
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: baldur guðmundsson baldur@dv.is 8. nóvember 2010 mánudagur
BenSínLíTrinn háTT í 200 krónur Í lok
október hækkuðu allar bensínstöðvar á Íslandi verðið á olíu og bensíni
um þrjár krónur. Lítrinn af hvoru tveggja kostaði þá á bilinu 196,3 til 197,7
krónur; dýrast hjá Skeljungi en ódýrast hjá Orkunni. Um eða fyrir helgi
hækkuðu öll olíufélögin sem eitt lítraverð á bæði dísilolíu og bensíni um
nákvæmlega tvær krónur. Verðið er nú farið að slaga í 200 krónur fyrir
hvern lítra. Það þýðir að 10 þúsund krónur kostar að fylla tóman 50 lítra
tank. Verðið er sem fyrr hæst hjá Skeljungi, lítrinn kostar 199 krónur. Aðrir
seljendur eru litlu lægri.e
L
d
S
n
e
y
T
i
Þetta eru bestu raftækin
EISA eru samtök ritstjóra tímarita um margmiðl-
unarefni í Evrópu. Á hverju ári velja samtökin þau
tæki og tól sem skara fram úr á sínu sviði. DV hefur
tekið saman hvaða myndavélar, farsímar, prentarar
og sjónvörp voru valin best í ár.
besta myndavélin fyrir atvinnumenn:
Nikon DS3
Verð: 874.400 kr. hjá myndavélar.is
Nikon D3S er svo næm á ljós að hún getur
náð fókus og myndað við skilyrði sem
mannsaugað greinir ekki, að sögn EISA. Hún
er sögð halda fókusnum einstaklega vel á
myndefni sem er á mikilli hreyfingu. Hún
státar af ISO-sviði frá 200 til 12.800. Vélin
er búin háþróaðri hreinunsaraðferð fyrir
myndflöguna sem dregur úr áhrifum ryk-
bletta. EXPEED-myndvinnslutækni og mikið
biðminni vélarinnar gerir notandanum kleift
að taka allt að 9 ramma á sekúndu. Hönnun
vélarinnar er svo góð að hún er nánast vatns-
held og rafhlaðan endist lengur en gengur
og gerist. „Þetta er fullkomin DSLR-vél, jafnt
fyrir þá sem vinna við að mynda íþróttaviðburði
og þá sem mynda við léleg birtuskilyrði,“ segir í
rökstuðningi fyrir valinu.
besta myndavélin í öllum veðrum:
Olympus µ Tough-8010
Verð: 69.990 kr. hjá camera.is
Þessi skarar fram úr þegar
kemur að veðurþolnum
myndavélum. Hún er ekki
bara vatnsheld heldur líka
höggheld og þolir allt að tíu
gráðu frost. „Hún er framúr-
skarandi til nota við krefjandi
aðstæður,“ segir EISA í um-
sögn um vélina. Hún hentar
sérlega vel þeim sem stunda
jaðaríþróttir sem og fjölskyldum þar sem lítil og forvitin börn
eru á heimili. Hún er búin tvöfaldri hristivörn sem hjálpar til við að
taka skarpar myndir, jafnvel við léleg birtuskilyrði. Upplausnin er
14 megapixlar, aðdrátturinn á linsunni er fimmfaldur og bjartur
LCD-skjár er á vélinni. Innbyggt í vélina er 2 GB minni svo þú þarft
ekki einu sinni að eiga minniskort.
besti prentarinn:
Epson Stylus Pro 3880
Verð: 319.989 hjá Þór hf.
Þessi prentari þykir skara fram úr, ekki síst vegna þess að hann
framkvæmir hágæða prentun þrátt fyrir að vera jafn lítill og raun
ber vitni. Þessi 17 tommu prentari getur prentað í allt að
2.880x1.440 punkta upplausn. Tveimur litahylkjum hefur
verið bætt við prentarann frá fyrri gerðum, ljósrauð-
bláum litum, og gefa þeir að sögn EISA betri
gæði þegar kemur að ljósmyndaprentun,
sérstaklega dökkum rauðum og fjólublá-
um litum. „Epson Sylus PRO 3880 er
frábær kostur fyrir afkastamikla
ljósmyndara, því hvert litahylki
inniheldur 80 ml af lit,“ segir í
umsögn um prentarann.
bestu kaupin:
LG 42LE5300
Verð: 249.000 kr. hjá Hátækni
EISA segir að fáir framleiðendur bjóði 42 tommu LED-háskerpu-sjón-
varp á jafn góðu verði. Tækið kostar undir 1.000 evrum (um 150 þúsund
krónur) í Evrópu en er þó nokkuð dýrara hér. Í umsögn um tækið segir
að litirnir í sjónvarpinu séu frábærir og valmyndin sérlega aðgengileg
fyrir notendur. Tækið hafi ótal tengimöguleika, meðal annars USB-tengi
sem geri fólki auðvelt að skoða myndir, hlusta á tónlist eða spila
myndbönd úr tölvum. myndrammarnir séu auk þess sérlega skýrir
og myndin þar af leiðandi góð. Sambærilegt sjónvarp fæst hjá
Hátækni og kostar 249.900 krónur en nákvæmlega þessi gerð
er ekki fáanleg enn sem komið er.
n EISA stendur fyrir European
Imaging and Sound Association.
Um er að ræða samtök ritstjóra
hljóð-, myndatöku-, ljósmynd-
unar-, heimabíó- og bílaraf-
tímarita. Samtökin, sem hafa
verið starfrækt frá árinu 1982,
verðlauna ár hvert á haustin
bestu raftækin á hverju sviði,
bæði fyrir nýjungar og gæði auk
þess sem umhverfisverðlaun eru veitt. Innan vébanda
EISA eru 50 tímarit frá 20 löndum víðs vegar um Evrópu.
hvAð er eisA?
besti snjallsíminn:
Samsung
Galaxy S
GT-i9000
Verð: 109.990 kr. hjá Símanum.
i9000 er demantur farsímanna að
mati EISA. Hann sé með Android-
stýrikerfi sem sé fyrir kröfuharða
neytendur sem geri kröfu um það
allra besta þegar kemur að tækni
og afþreyingu. Síminn er með
AmOLED 800x480 punkta skjá
sem er einn sá besti sem völ er
á. Fimm megapixla myndavélin
sé reyndar án flass en sé frábær
upptökuvél. Þá séu tengimögu-
leikar símans frábærir; auðvelt
sé að tengja hann við Samsung
myndspilara og sjónvarpstæki
og deila þar gögnum. „Þetta
er gott símtæki sem ætti að
fanga athygli allra farsíma-
unnanda,“ segir EISA.