Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2010, Blaðsíða 24
Valur bauð bjarna samning Valsmenn hafa
verið afar duglegir á leikmannamarkaðinum hingað til í Pepsi-deild karla
en fimm nýir leikmenn eru búnir að skrifa undir samning við félagið. Eru
Hlíðarendapiltar hvergi nærri hættir að safna liði og eiga von á fleiri Fær-
eyingum, en Kristján Guðmundsson, nýráðinn þjálfari liðsins, stýrði HB í
Færeyjum í sumar. Valsmenn virðast einnig vera að leita að markverði þrátt
fyrir að vera með landsliðsmarkvörð U21 árs liðsins, Harald Björnsson, í sín-
um röðum. Samkvæmt heimildum DV bauð Valur Bjarna Þórði Halldórssyni
samning sem hann neitaði en Bjarni fór aftur heim í Fylki á dögunum.
aftur tapa jón arnór og
félagar Færasti körfuknattleiksmaður landsins,
Jón Arnór Stefánsson, var enn og aftur í tapliði þegar hann
og félagar hans í Granada biðu lægri hlut gegn Menkorka,
60–57, í spænsku úrvalsdeildinni um helgina. Jón Arnór
skoraði ellefu stig fyrir Granada, öll í seinni hálfleik, og tók
að auki tvö fráköst og stal tveimur boltum. Granada hefur
aðeins unnið einn leik af sex á þessu tímabili og er í 14.–16.
sæti af átján liðum þegar sex umferðir eru búnar á Spáni.
molar
Engin fórn
n Steven Gerrard, fyrirliði Liver-
pool, hefur upplifað hæstu hæðir og
lægstu lægðir með Liverpool. Haf-
inn er enn einn
kaflinn á ferli
hans hjá félag-
inu undir eign
bandaríska eign-
arhaldsfélagsins
NESV. „Ég myndi
ekki segja að ég
væri að fórna mér
fyrir Liverpool að
vera hérna. Að spila fyrir Liverpool
og vera fyrirliði þess er ekki fórn. Ég
myndi kalla það að upplifa draum.
Mér hafa boðist tækifæri til að spila
annars staðar eins og til dæmis hjá
Chelsea. Ég vil vera hérna áfram og
vinna hluti því þegar að því kemur
mun það skipta mig mun meira máli
hér en annars staðar,“ segir Gerrard.
5,5 milljóna
dollara sEkt
n Síðustu ár hefur NBA-deildin tekið
gríðarlega hart á öllum fíflalátum
á vellinum og finnst mörgum ein-
faldlega verið að
taka ástríðuna úr
leiknum þegar
menn mega ekki
skamma sjálfa
sig án þess að fá
tæknivillu. Bak-
vörður Charlotte
Bobcats, Stephen
Jackson, gekk þó
skrefinu lengra og hundskammaði
einn dómarann í leik liðsins gegn
Detroit um helgina. Jackson fékk
heldur betur að súpa seyðið af nýjum
agareglum deildarinnar því hann
var sektaður um 50.000 dollara eða
sem nemur 5,5 milljónum króna.
Hörmung Hjá
HargrEavEs
n Miðjumaðurinn Owen Hargrea-
ves var afar óvænt í byrjunarliði
Manchester United um helgina þeg-
ar liðið lagði Úlfana, 2–1. Hargreaves
hefur ekki spilað
með aðalliðinu
í tvö ár og entist
endurkoma hans
aðeins í rétt tæp-
ar fimm mínútur.
Hargreaves yf-
irgaf þá völlinn,
tognaður í nára,
en það eru ný
meiðsli á listanum hans. „Þetta var
algjör hörmung fyrir hann. Núna
er hann meiddur aftan í læri sem er
alveg ótrúlegt. Við tókum áhætt-
una með hann. Við vildum fá meiri
reynslu inn á miðsvæðið en því
miður entist hann ekki nema í fimm
mínútur,“ segir Sir Alex Ferguson.
tEvEz mun fagna
gEgn unitEd
n Carlos Tevez hefur verið mikið í
umræðunni síðustu vikur en hann
hefur verið í fríi heima hjá sér í Arg-
entínu. Hann segist þó ætla að ná
nágrannaslag Manchester City og
Manchester Un-
ited á miðviku-
daginn. „Ég ætla
mér að vera klár
í grannaslag-
inn. Leikurinn er
mjög mikilvæg-
ur fyrir mig og
ekki síst liðið. Ég
hef lagt hart að
mér að undanförnu til að vera í góðu
standi þegar sá leikur hefst. Ég er
búin að gleyma Ferguson. Fyrir mér
er hann hluti af fortíðinni. Ef ég skora
mark í leiknum mun ég fagna, þó ég
beri virðingu fyrir United er þessi
leikur mjög sérstakur eftir það sem
gerðist í fyrra,“ segir Tevez.
24 sport UMSJón: TómAS þór þórðArSOn tomas@dv.is 8. nóvember 2010 mánudagur
Bardagaíþróttakappinn Gunn-
ar Nelson úr Mjölni varð Íslands-
meistari í brasilísku Jiu-Jitsu þriðja
árið í röð um helgina en þetta var í
þriðja skiptið sem Íslandsmótið er
haldið. Sigraði Gunnar bæði í sín-
um flokki og opnum flokki án þess
að tapa svo mikið sem einni glímu
en þannig hefur hann farið í gegn-
um öll þrjú Íslandsmeistaramótin.
Í úrslitaglímunni í opna flokkn-
um mætti Gunnar hinum risa-
vaxna Þráni Kolbeinssyni sem
keppir í -94kg flokki, tveimur flokk-
um fyrir ofan Gunnar, en hvorki
honum né öðrum tókst að skáka
Gunnari. Mjölnismenn áttu einn-
ig sigurvegarann í kvennaflokki
en þar varð Auður Olga Skúladótt-
ir hlutskörpust í sínum þyngdar-
flokki sem og í opna flokknum.
Í fréttatilkynningu frá móts-
höldurum segir að áttatíu kepp-
endur frá fimm félögum víðs veg-
ar af landinu hafi tekið þátt og var
mikill áhorfendafjöldi mættur til
að fylgjast með glímunum.
tomas@dv.is
Íslandsmeistaramótið í BJJ:
gunnar nelson ósigrandi
n Sigurvegarar karla eftir flokkum
Flokkur nafn Félag
-64 kg Axel Kristinsson Mjölnir
-70 kg Jón Þór Árnason Mjölnir
-76 kg Arnar Freyr Vigfússon Combat Gym
-82 kg Gunnar Nelson Mjölnir
-88 kg Sighvatur Helgason Mjölnir
-94 kg Þráinn Kolbeinsson Mjölnir
-100 kg Ingþór Örn Valdimarsson Fenrir
+100 kg Sigurjón Viðar Svavarsson Mjölnir
n Sigurvegarar kvenna eftir flokkum
Flokkur nafn Félag
-64 kg Helga Kristín Jóhannsdóttir Mjölnir
+64 kg Auður Olga Skúladóttir Mjölnir
sigurvEgarar:
ósigrandi Gunnar nelson hefur ekki
enn tapað glímu á Íslandsmeistaramót-
inu í BJJ mynd KriSTinn mAGnúSSOn
„Þetta er ekki hægt, við getum ekki
snert þá,“ sagði Fernando Alonso,
ökumaður Ferrari, þegar keppnin í
Brasilíu, sú næstsíðasta á árinu, var
hálfnuð í gær. Var Alonso þar að tala
um Red Bull-liðið sem var ósnert-
anlegt í keppninni, þá sérstaklega
Sebastian Vettel sem landaði auð-
veldum sigri. Mark Webber, liðsfé-
lagi Vettels, náði öðru sætinu og með
því varð Red Bull heimsmeistari bíla-
smiða í fyrsta skipti í sögunni. Alonso
hefur átta stiga forskot á Webber fyr-
ir lokamótið og sextán stig á Vett-
el. Dugar Alonso því annað sætið ef
Webber vinnur í Abu Dhabi eftir viku
til að verða heimsmeistari en fimmta
sætið vinni Vettel aftur.
Gott ef Ferrari
bilar eftir viku
Sebastian Vettel keyrði eins og sá
sem valdið hefur í gær
og hafði hann sinn ní-
unda sigur í Formúlu 1
og þann fjórða á árinu.
Hann hóf leik annar
á ráslínu á eftir Niko
Hulkenberg á Willi-
ams en tók forystuna
strax í fyrstu beygju
og leit aldrei um öxl.
„Ég sá að Niko spól-
aði aðeins þannig ég
nýtti hraðann minn
og kom mér fram úr
Niko,“ sagði sigur-
reifur Vettel á blaða-
mannafundi eftir sig-
urinn.
„Ég stýrði keppn-
inni frá a-ö. Eina
hættan var þegar öryggisbíllinn kom
út en ég var skynsamur þar, sparaði
dekkin og kom bílnum bara í mark.
Þetta var frábær dagur fyrir mig og
sérstaklega allt fólkið á bak við tjöld-
in, að ná að landa heimsmeistara-
titlinum,“ sagði Vettel en á hann
möguleika í Alonso eftir viku? „Það
munar sextán stig-
um, ekki tuttugu og
sex þannig að auð-
vitað á ég möguleika.
Það væri samt fínt að
sjá reyk koma upp úr
bílnum hjá Alonso
eftir viku en að öllu
gamni slepptu verð-
um við bara að vinna,
helst tvöfalt og sjá
hverju það skilar okk-
ur.“
Fær enga hjálp
Hefði Red Bull gert
Mark Webber að ökumanni númer
eitt fyrir mótið og hjálpað honum að
verða meistari væri hann í mun betri
stöðu í dag. Hefði Vettel leyft Webber
að taka fram úr sér væri hann aðeins
einu stigi á eftir Alonso en ekki átta.
„Svona er þetta bara,“ sagði Webber
stuttorður á blaðamannafundinum.
„Það hefði getað munað einu stigi en
ég þarf að vinna upp átta. Við eigum
samt góðan möguleika,“ sagði hann.
Fernando Alonso hlakkar til
næstu helgi. „Það getur allt gerst í
Formúlunni. Þetta verður stressandi
helgi fyrir okkur en það byrja allir
á núlli þannig við sjáum bara hver
verður meistari eftir viku. Ég vil samt
nýta tækifærið og óska Red Bull til
hamingju með heimsmeistaratitil
bílasmiða. Að vinna hann eftir að-
eins sex ár í Formúlu 1 er einstakt af-
rek,“ sagði Fernando Alonso.
Sebastian Vettel á Red Bull fór létt með að vinna Brasilíukappaksturinn í Formúlu 1 í
gær en liðsfélagi hans, mark Webber, landaði öðru sæti. Red Bull er því heimsmeistari
bílasmiða. Fernando Alonso varð þriðji og hefur því enn pálmann í höndunum fyrir
lokamótið um næstu helgi.
vEttEl ósnErtan-
lEgur í Brasilíu
TómAS þór þórðArSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Frábær sigur Vettel vann
í Brasilíu og á möguleika
á heimsmeistaratitlinum.
myndir reuTerS
með pálmann í höndunum Alonso verður meistari lendi hann í fyrsta eða öðru sæti í Abu Dhabi.