Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2010, Qupperneq 26
Mottukeppni auglýsingastofunnar Pipar/TBWA:
Með flottar Mottur
26 fólkið 8. nóvember 2010 Mánudagur
María Sigrún:
Steindi og
Bent á UFC
Þeir Steinþór H. Steinþórsson og
Ágúst Bent Sigbertsson eru á leiðinni
til Þýskalands næstu helgi til þess
að vera viðstaddir bardagakeppnina
UCF 122. Steindi og Bent hafa slegið í
gegn með þáttunum Steindinn okkar
en þeir félagar taka sér frí frá tökum
annarrar þáttaraðar til þess að sjá
viðburðinn. Í Þýsklandi hitta þeir fyrir
Halldór Halldórsson, eða Dóra DNA,
sem sá um lýsa UFC-keppnum á Stöð
2 Sport áður en hann hélt utan í nám.
UFC er stærsta bardagakeppni heims
og mun íslenska bardagahetjan
Gunnar Nelson líklega keppa þar
innan fáeinna ára ef sigurganga hans
heldur áfram.
Tobba ætt-
leiddi grís
Þorbjörg Marinósdóttir, stjörnublaða-
kona og rithöfundur, var kvödd á
Séð og heyrt fyrir helgi með gjöfum
og kossum. Ragnheiður M. Kristj-
ónsdóttir gaf samstarfskonu sinni
tuskugrís að skilnaðargjöf en honum
fylgdu ættleiðingarskjöl. Tobba
sagði starfi sínu lausu á blaðinu
eftir að Eiríkur Jónsson ritstjóri þess
var rekinn. Tobba var þó ekki lengi
atvinnulaus því hún mun í beinu
framhaldi taka til starfa hjá Skjá
Einum sem kynningarfulltrúi.
Árleg mottukeppni auglýsingastofunnar Pip-
ars/TBWA fór fram á föstudaginn en þetta er í
fimmta skiptið sem keppnin er haldin.
Allir starfsmenn stofunnar sem státa af
skeggvexti tóku þátt og mikið var um flott-
ar og frumlegar mottur. Sá sem þótti skarta
glæsilegustu mottunni var Guðmundur Páls-
son en mottan hans þótti sérstaklega þykk og
mikil en minnti um leið á hina frægu mottu
sem huldumaðurinn og alþýðuhetjan Zorro
bar með mikilli prýði.
Annað sætið hreppti Tryggvi Tryggvason
og Helgi Helgason það þriðja. Kosningin um
vinsælustu mottuna fór fram á Facebook-
síðu Pipars/TBWA og vann sá sem fékk flestu
„like“ á mottumynd af sér. Sá sem hreppti tit-
ilinn „vinsælasta mottan“ var enginn annar
en Valli Sport en það var þó eftir að Siggi Hlö
hafði dregið sig úr keppni eftir að hafa upp-
haflega sigrað þann flokk. Sigurvegarinn fékk
meðal annars rakvél í verðlaun en ekki er vit-
að hvort hún verði brúkuð þegar mottan fær
að fjúka.
É g hef alltaf verið mikið fyrir að baka. Allt frá því ég var smákrakki leyfði mamma mér að sitja uppi
á eldhúsborðinu og vera með í mat-
argerð og bakstri.“ segir María Sig-
rún Hilmarsdóttir, en hún fór ásamt
nokkrum vinkonum á námskeið til
að læra að gera múffur eða „cup-
cakes“ eins og þær kallast. Það var
Friðrika Geirsdóttir sem stóð fyrir
námskeiðinu en hún er nýkomin frá
London þar sem hún mfullkomn-
aði listina að baka þær og skreyta.
„Ég hef nú dálítið verið að baka
svona kökur sjálf og á margar bæk-
ur með hugmyndum að skreytingum
og svona, en Rikka er komin aðeins
lengra í þessu ég.“
Múffur hafa yfir sér eilítin fiftís-
blæ þar sem mikill metnaður er lagð-
ur í skreytingar og útlit og líta marg-
ar þeirra út eins og lítil listaverk. Nú
eru þessar kökur aftur orðnar gífur-
lega vinsælar og er orðið uppselt á
öll námskeiðin sem Friðrika stend-
ur fyrir. „Það er alveg hrikalega gam-
an að fara með vinkonum sínum á
svona námskeið, við vorum bara að
spjalla saman og svona á meðan við
skreyttum kökurnar. Ég mæli hik-
laust með þessu.“
María Sigrún vann sem flugfreyja
með námi áður en hún gerðist frétta-
kona og segist hún hafa nýtt ferð-
irnar út til að kaupa sér búsáhöld:
„Fyrir mér eru búsáhaldabúðir
eins og dótabúðir fyrir krakka, seg-
ir María Sigrún og hlær. „Ég keypti
mér alls konar kökuskreytingardót,
bleikar sleifar og skálar, ógeðslega
væmið alveg. En mér finnst alveg
ofboðslega skemmtilegt að baka og
það mætti segja að eldamennska og
bakstur séu mitt helsta áhugamál.“
María Sigrún hefur sankað að sér
fjölda matreiðslubóka í gegnum tíð-
ina og á orðið gott safn sem fær ekki
að rykfalla upp í hillu. „Ég les mat-
reiðslubækur eins og spennusögur
uppi í rúmi á kvöldin. Það gefur mér
mikið að eiga svona gott áhugamál
og það skemmtilegasta við það er að
aðrir fá að njóta þess með mér þegar
ég býð í mat, bröns eða kaffi.“
hanna@dv.is
Bakstur og eldamennska eru helstu
áhugamál Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur
fréttakonu og skellti hún sér á námskeið
hjá Friðriku Geirsdóttur í „cupcake“-gerð
á dögunum. María elskar búsáhaldabúð-
ir og segist líða eins og krakka í dótabúð
þegar hún fer í eina slíka.
„Les matreiðslubækur eins og
spennusögur“
ÁnæGð Með aFrakSturinn „Það
skemmtilegasta við baksturinn sem áhuga-
mál er að aðrir fá að njóta þess með mér.“
SkeMMtileGt nÁMSkeið María Sigrún
ásamt Svanhvíti Friðriksdóttur og Friðriku
Geirsdóttur sem stóð fyrir námskeiðinu.
Vinsælasta mottan Valli Sport fékk flest stigin í
keppninni um vinsælustu mottuna.
Vegleg motta Guðmundur
Pálsson þótti vera með
flottustu mottuna.