Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Síða 4
4 | Fréttir 4. maí 2011 Miðvikudagur Lagaflækjur í riftunarmáli Steingríms Kárasonar: Fari fyrir dóm í Lúxemborg Steingrímur Páll Kárason, fyrr- verandi forstöðumaður áhættu- stýringar Kaupþings, hefur kraf- ist frávísunar í riftunarmáli sem slitastjórn Kaupþings höfðaði á hendur honum. Málið snýst um að stjórn Kaupþings banka sendi starfsmönnum bankans bréf þann 25. september 2008 þess efnis að þeir væru ekki lengur í persónu- legum ábyrgðum vegna lána sem þeir höfðu tekið til hlutabréfa- kaupa. Bankinn féll skömmu síð- ar. Slitastjórn Kaupþings ákvað hins vegar að rifta þessum gjörn- ingi og höfðaði riftunarmál á hendur Steingrími og fleiri starfs- mönnum Kaupþings. Steingrímur krefst þess hins vegar að málinu verði vísað frá dómi hér þar sem hann hafi lögheimili í Lúxemborg. Munnlegur málflutningur í frávís- unarkröfunni fer fram í dag mið- vikudag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Guðni Ásþór Haraldsson, lög- maður slitastjórnar Kaupþings, segir að ekki sé úrskurðað um efnishlið stefnunnar heldur muni dómurinn taka afstöðu til þess hvort flytja megi málið á Íslandi. Ef dómari fellst ekki á það þurfi að fara með málið til Lúxemborgar og flytja það þar. Steingrímur var lykilmaður í Kaupþingi og fékk samtals 628 milljónir króna í laun á árunum 2004 til 2008. Þegar persónuleg- ar ábyrgðir Steingríms á lánum frá Kaupþingi til hlutabréfakaupa voru felldar niður skuldaði hann bankanum alls tæpa 2,3 milljarða króna. Hann var handtekinn í maí í fyrra á sama tíma og Hreiðar Már Sigurðsson og fleiri lykilstarfs- menn Kaupþings í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á málum bankans. Hann var í kjöl- farið úrskurðaður í gæsluvarðhald og síðar í farbann. valgeir@dv.is Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 Æfingaboltar Bjóðum gott úrval æfingabolta í mörgum stærðum Henta vel í margskonar æfingar Verð frá: 2.980 kr. Steingrímur Kárason Krefst þess að riftunarmál slitastjórnar Kaupþings á hendur honum verði fellt niður þar sem hann hefur ekki lögheimili á Íslandi. Margrét Karlsdóttir, verslunarkona í Krílinu á Ísafirði, rak upp stór augu á dögunum þegar hún fékk inn- heimtubréf frá Súðavíkurhreppi vegna ógreiddra leikskólagjalda frá því í september 2003 með gjaldaga 1. maí síðastliðinn. Margrét var skilj- anlega mjög hissa á þessari inn- heimtu frá sveitarfélaginu enda eru synir hennar allir löngu uppkomn- ir, nánar tiltekið á fimmtugsaldri, og því nokkrir áratugir síðan þeir voru á leikskólaaldri. „Þetta er eiginlega broslegt af því að það er ekki 1. apríl. Synir mínir eru fæddir á árunum 1963 til 1967. Nú eiga þeir að borga leikskólagjöld. Þó þetta séu einhvern veginn mann- leg mistök þá er það nú þess virði að segja frá þessu,“ segir hún. Sonurinn hissa Margrét segir að í bréfinu frá Súða- víkurhreppi komi fram að við van- skil verði krafan send til innheimtu- fyrirtækis. Sjálf hefur Margrét ekki átt heima í Súðavíkurhreppi frá því árið 2002. „Ég bjó í Reykjanesi þar sem ég var með ferðaþjónustu til 2002 en ég hef búið á Ísafirði síðan.“ Aðspurð hvort hún hafi sagt hálf- fimmtugum sonum sínum að hún hafi verið rukkuð um leikskólagjöld vegna þeirra segir Margrét hlæjandi: „Já, já, ég sagði einum frá því og hann náði þessu ekki alveg. Ég hef ekki heyrt í hinum með þetta.“ Er það þá nokkuð hennar mál að greiða leikskólagjöld fyrir syni sína sem eru löngu orðnir fjárráða ef þeir kjósa að vera enn á leikskóla? „Já, þetta er nú alveg með hreinum ólík- indum,“ segir hún og skellir upp úr. Það voru fleiri en Margrét sem fengu svona bréf frá Súðarvíkur- hreppi í vikunni. Þannig fengu ríg- fullorðnir bændur slíka rukkun og veiðihús í hreppnum var einnig sagt skulda leikskólagjöld. Fer fram á afsökunarbeiðni Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, segir að bréfin hafi verið send út vegna mistaka hjá Landsbankanum. „Sveitarfélagið hef- ur fengið mjög sterk viðbrögð vegna þessara mistaka sem gerð voru hjá Landsbankanum þar sem nánast öllum fasteignaeigendum í Súða- víkurhreppi voru sendir greiðslu- seðlar fyrir leikskólagjöldum, þess- ir greiðsluseðlar hafa enga lögmæta kröfu á bak við sig og hafa verið felldir niður. Landsbankinn hefur beðist af- sökunar og hefur Súðavíkurhreppur jafnframt farið fram á að Landsbank- inn sendi öllum viðskiptavinum sveit- arfélagsins afsökunarbeiðni þar sem þetta vakti mikil viðbrögð og hafði í einhverjm tilfellum óþægindi í för með sér,“ segir Ómar Már. Rukkuð vegna sona á fimmtugsaldri n Margrét Karlsdóttir var rukkuð um vangoldin leikskólagjöld n Hissa þar sem synirnir eru á fimmtugsaldri n Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps segir Landsbankann hafa gert mistök Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is „Þetta er eiginlega broslegt af því að það er ekki 1. apríl. Synir mínir eru fæddir á árun- um 1963 til 1967. Margrét Karlsdóttir Verslunarkonan fékk bréf frá Súðavíkurhreppi þar sem hún var rukkuð um leikskólagjöld frá árinu 2003. Synir hennar þrír eru fæddir á árunum 1963 til 1967. Hún varð því nokkuð undrandi. Mynd HaLLdór SveinbjörnSSon Hörpu bjartar minnst Minningarathöfn um Hörpu Björt Guðbjartsdóttur fór fram í Mennta- skólanum í Kópavogi á mánudag. Harpa sem var 21 árs fannst látin í íbúð í fjölbýlishúsi í Árbæ á laugardaginn. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar hafa ekki varpað frekara ljósi á dánar- orsök. Talið er að hún hafi látist af of- skammti fíkniefna og rannsakar lög- reglan hvort rekja megi andlát hennar til svokallaðs PMMA-amfetamíns. Blóð- og þvagsýni hafa verið send til flýtimeðferðar vegna lyfjarannsókna en það getur tekið allt að þrjár vikur að fá niðurstöður úr slíkri rannsókn. rottweiler-tík numin á brott Lögreglan á Selfossi rannsakar hvarf á Rottweiler-tíkurinnar Crystel, sem var í haldi lögreglunnar eftir að hafa bitið konu í Hveragerði 4. mars síð- astliðinn. Tíkin var í haldi á viður- kenndu hundahóteli á Arnarstöðum í Flóa. Þar átti tíkin að vera þar til fyrir lægi niðurstaða stjórnsýslukæru sem eigandi lagði fram. Af verksummerkj- um að dæma leikur sterkur grunur á að tíkin hafi verið numin á brott, segir í tilkynningu frá lögreglu.  Konan sem varð fyrir bitinu þurfti að leita sér læknisaðstoðar og láta sauma nokkur spor í höndina. Eftir að málið kom upp var tíkin tekin í vörslu lögreglu. Vegna ákvæða í samþykkt um hundahald í Hvera- gerðisbæ var hundeigandanum gef- inn kostur á leita álits héraðsdýra- læknis áður en ákvörðun um aflífun yrði tekin. Nokkrum dögum síðar lá fyrir álit héraðsdýralæknis um að rétt væri að aflífa tíkina. Að þeirri niður- stöðu fenginni ákvað lögreglustjóri að tíkin skyldi aflífuð.     Eigandi tíkurinnar kærði þá ákvörðun lögreglustjóra til innanrík- isráðuneytisins þann 25. mars.  Ráðu- neytið frestaði réttaráhrifum ákvörð- unar lögreglustjóra og sendi kæruna samdægurs til úrlausnar úrskurðar- nefndar hollustuhátta og mengunar- varna. Úrlausnar nefndarinnar hefur verið beðið og tíkin verið í haldi þar til hún hvarf aðfaranótt þriðjudags.  Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem orðið hafa varir mannaferða við Arnarstaði, austan við Selfoss, í nótt eða geta veitt upplýsingar um hvarf tíkurinnar að hafa samband í síma lögreglunnar 480 1010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.