Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Blaðsíða 22
Þ
etta var magnað,“ sagði Ail
een Svensdóttir um sam
starfið við Sigrúnu Hjálm
týsdóttur en þær stöllur
tóku lagið saman á opnunarhátíð
listahátíðarinnar List án landa
mæra sem var opnuð í Ráðhúsi
Reykjavíkur á föstudaginn. Það
hafði verið langþráður draumur
hjá Aileen að fá að taka lagið með
Sigrúnu eða Diddú eins og hún er
jafnan kölluð. Húsfyllir var í Ráð
húsinu en auk Aileen og Diddúar
voru fjölmörg önnur atriði á opn
unarhátíðinni. Leikarinn Björn
Thors og listamaðurinn Gunnar
Þorkell Þorgrímsson voru kynnar í
þetta skiptið.
Á hátíðinni má upplifa margs
konar samstarf á milli fatlaðra
og ófatlaðra listamanna og fengu
gestir hátíðarinnar forsmekk af því
í Ráðhúsinu. Táknmálskórinn tók
þrjú lög í samstarfi við karlakór
inn Fjallabræður við mikinn fögn
uð viðstaddra. Fjöllistahópurinn
Mikið fyrir bítið tók einnig lagið en
það var gert í samstarfi við rappar
ann Birki Halldórsson úr Forgot
ten Lores og raftónlistarmanninn
Guðna „Impulze“ Einarsson.
„Þetta var alveg yndislegt, enda
frábært listafólk sem kom hérna
fram í dag. Virkilega byrjunin á
skemmtilegri hátíð,“ sagði Mar
grét M. Norðdahl framkvæmda
stýra um setningu hátíðarinnar.
Markmið hátíðarinnar er að opna
á samstarf og búa til vettvang fyrir
listamenn að hennar sögn.
List án landamæra stendur yfir
næstu vikurnar en þar má finna
gríðarlegt magn viðburða út um
alla borg og um allt land en frítt er
inn á alla viðburði.
gudni@dv.is
22 | Fókus 4. maí 2011 Miðvikudagur
Öðruvísi skemmtun
Það verður að viðurkennast að rennt
var heldur blint í sjóinn þegar Yakuza
4 var prufukeyrður í fyrsta skipti. Hér
er á ferðinni leikur sem notið hefur
mikillar velgengni í Japan, enda ger
ist hann í Japan og eru aðalsögupers
ónurnar japanskar. Í stuttu máli seg
ir leikurinn frá ævintýrum nokkurra
glæpamanna í borginni Kamurocho.
Leiðtogi Tojoglæpaklíkunnar finnst
myrtur og fara spilarar í hlutverk
fjögurra ólíkra glæpamanna sem
reyna að feta sig upp metorðastigann
– með blóðugum afleiðingum.
Leikurinn byggir að miklu leyti á
leiknum senum, eða svokölluðum
„cut scenes“, sem eiga það til að vera
býsna langdregnar – nánast eins og
að horfa á bíómynd. Þess á milli get
ur þú nánast flakkað um alla borgina
að vild og hittir gjarnan á gangandi
vegfarendur sem hafa eitthvað að
segja. En í stað þess að hlusta á sam
ræður fólks kemur samtalið í ramma
á skjáinn. Minnir að nokkru leyti á
gömlu Nintendoleikina.
Sagan í leiknum er þó klárlega
sterkasti hlekkurinn og þar er varla
veikan blett að finna. Spilun leiks
ins er þó heldur klunnaleg á köflum
og grafíkin ekki eins og við þekkjum
hana besta. Í því samhengi má nefna
slagsmálasenur sem eiga það til að
vera heldur gervilegar. Það er þó
kostur að slagsmálakunnátta þeirra
persóna sem þú spilar er mismun
andi.
Yakuza 4 er mjög frábrugðinn
flestum þeim leikjum sem eiga upp
á pallborðið í dag. Það er skemmti
legt að spila leik sem gerist á jap
anskri grundu og með japanskri tal
setningu. Þá er einnig áhugavert að
setja sig inn í japanska menningu,
þó það kunni að teljast ómenning
arlegt að gera það í gegnum tölvu
leik. Yakuza 4 er ekki leikur fyrir þá
sem vilja stanslausan hasar. Hann
er leikur fyrir þá sem þyrstir í til
breytingu og vilja upplifa eitthvað
öðruvísi.
Valdís Thor ljósmyndari í Ljósmyndasafni Reykjavíkur:
Rígheldur í gömlu Minolta-vélina
Fimmtudaginn 5. maí klukkan 17 opn
ar Valdís Thor ljósmyndasýninguna II í
Skotinu, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, í
Grófarhúsinu við Tryggagötu. Sýningin
stendur til 29. júní.
Á sýningunni II gefur að líta ljós
myndir sem Valdís tók á síðasta ára
tug í nágrenni sínu í Reykjavík og víðar.
Valdís tekur allar myndir sínar á gamla
Minoltavél sem hún hefur notað síð
an hún var unglingur. „Ég fór að taka
myndir af alvöru þegar ég var aðeins
14 ára. Þá komst ég í tæri við Minolta
vél sem mamma átti, ég hef notað hana
alla daga síðan og kann vel við hana. Ég
er mjög hrifin af því að nota filmur og
prenta myndirnar út í myndaalbúms
formi. Ég geri það bæði vegna þess að
ég er hrifin af því formi en líka til þess
að minna fólk á að eiga ljósmyndir sín
ar prentaðar út. Það er flestu fólki kært
að eiga hjá sér ljósmyndir en vegna
tækninnar gleymir fólk þessu og missir
mörg ár af ljósmynduðum minningum
úr lífi sínu. Þannig að þetta er svolítil
tilfinningasemi líka.
Á sýningu Valdísar eru samtals um
100 myndir og verða þær settar fram á
ansi frumlegan hátt. Valdís fær nefni
lega gesti sýningarinnar til að taka þátt
í verkinu og skoða ljósmyndirnar sem
áþreifanlegan hlut.
„Markmið sýningarinnar er að fá
áhorfandann til að taka þátt í verkinu
og upplifa ljósmynd sem áþreifan
legan hlut. Ég notast við segulstál og
leyfi gestum að færa til myndirnar svo
þeir fái annað sjónarhorn á myndefni
hverrar ljósmyndar.“
Valdís lærði ljósmyndun við Iðn
skólann í Reykjavík. Eftir að hafa
starfað sem ljósmyndari hjá Morgun
blaðinu í eitt ár lauk hún sveinspróf
haustið 2008. Þetta er önnur einkasýn
ing Valdísar en í desember hélt hún
sýninguna 101 heimsókn auk þess að
gefa út samnefnda bók.
kristjana@dv.is
Sungið og leikið
um krabbamein
Sýningar á Ótuktinni, verki byggðu á bók
Önnu Pálínu Árnadóttur um glímu hennar
við krabbamein, standa nú yfir í Iðnó.
Verkið er í leikgerð Valgeirs Skagfjörð og er
einleikur fluttur af Kötlu Margréti Þorgeirs-
dóttur. Einleikurinn er sagður einlæg lýsing
á glímunni við óboðinn gest sem setur lífið í
uppnám. Anna Pálína var þekkt vísnasöng-
kona sem lést úr krabbameini fyrir nokkrum
árum og kallaði krabbameinið Kröbbu
frænku.
Mynd Anitu
Briem floppar
Myndin Dylan Dog: Dead of Night sem
skartar hinni íslensku Anitu Briem í einu
aðalhlutverkanna, var frumsýnd á landsvísu
í Bandaríkjunum um helgina. Hún virðist
ætla að verða algert flopp, halaði inn litla
885 þúsund dollara í tekjur yfir frum-
sýningarhelgina og er í 16. sæti yfir aðsókn
þessa helgi.
Vatnsmýrar-
hátíðin 2011
Norræna húsið heldur Vatnsmýrar hátíðina
2011 þann 7. maí næstkomandi. Þann
dag verður útlistaverkið Blómabreiða
eftir Ásgarð vígt en það verkefni er unnið
í samstarfi við List án landamæra. Margt
skemmtilegt verður í boði fyrir alla fjöl-
skylduna, tónlist, myndlistarsýningar,
pylsur á grilli og hollustunammi, hjólafærni,
Íslandshestar, krítar og sápukúlur, sand-
kastalakeppni og margt, margt fleira.
„Þetta var magnað“
List án landmæra opnuð í Ráðhúsinu:
Björn Thors og Gunnar Þorkell Þorgrímsson Kynntu listamennina til leiks.
Aileen Svensdóttir og
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Tóku lagið saman.
Yakuza 4
Tegund: Hasarleikur
Spilast á: PS3
Tölvuleikur
Einar Þór
Sigurðsson
Þokkalegt fjör Yakuza er ekki leikur fyrir
þá sem vilja stanslausan hasar. Sagan er
góð en heldur langdregin.