Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Blaðsíða 17
Erlent | 17Miðvikudagur 4. maí 2011 Skotárás í híbýlum Osama bin Laden Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is BIN LADEN DREPINN g r a fí k r EU TE r S Osama bin Laden, leiðtogi alþjóð- legu hryðjuverkasamtakanna al- Kaída, var drepinn aðfaranótt mánu- dags. Sérsveit bandarískra sjóliða, Navy Seals, réðst að felustað bin La- dens, en hann hafðist við í afgirtu risahúsnæði í bænum Abbottobad í Pakistan, í um 60 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Islamabad. Í sér- sveitinni, sem ber nafnið „Teymi sex,“ voru 24 hermenn sem voru fluttir að risahúsnæðinu í Abbottobad í tveim- ur þyrlum. Varðmenn bin Ladens hófu skothríð að þyrlunum er þær nálguðust og tókst þeim að valda annarri þyrlunni svo miklum skaða að hún þurfti að nauðlenda. Áður en yfir lauk hafði sérsveitin sprengt sína eigin þyrlu í loft upp þar sem hún var ekki nothæf. Miklir skotbardagar Þrátt fyrir að varðmenn bin Ladens hafi náð að skaða aðra þyrluna varð engum sérsveitarmannanna meint af. Réðust þeir að húsnæðinu sem þeir höfðu kortlagt vandlega, en bandarísk yfirvöld hafa vaktað hús- ið með gervihnattamyndum und- anfarna mánuði. Árásin tók um 40 mínútur og fylgdist Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, með öllu því sem fram fór ásamt lykilfólki í ríkis- stjórn sinni í Washington. Í áhlaupi sérsveitarinnar féllu að minnsta kosti fjórir fyrir utan bin Laden sjálfan. Þar á meðal var bróðir hryðjuverkafor- ingjans, yngsta eiginkona hans og tveir sendiboðar. Samkvæmt fréttum sem birtust í gær kom fram að bin Laden hefði lát- ið það vera sitt síðasta verk að nota yngstu eiginkonu sína, hina 27 ára Amal al-Sadeh, sem skjöld. Var hún skotin niður af meðlimi sérsveitar- innar og því næst bin Laden, með skoti í höfuðið. Síðar voru þessar aðalbyggingin Osama bin Laden og fjölskylda hans höfðust við á annarri og þriðju hæð hússins. Fylgismenn bin Ladens gerðu skothríð að þyrlum úr- valsliðsins frá þakinu og tókst að hæfa aðra þyrluna. fréttir dregnar til baka en Bandaríkja- stjórn á enn eftir að útskýra áhlaup sérsveitarinnar í smáatriðum. Líkinu kastað í sjóinn Eftir að bin Laden hafði verið drep- inn komust allir 24 meðlimir sér- sveitarinnar undan í þyrlunni sem stóð eftir ósködduð. Samkvæmt yfir- lýsingu frá Bandaríkjastjórn var far- ið með lík bin Ladens af virðingu „í samræmi við íslamska hefð.“ Tekin voru lífsýni úr líkinu svo unnt væri að staðfesta að um bin Laden væri að ræða. Farið var með líkið á flugmóð- urskipið USS Carl Vinson þar sem því var kastað fyrir borð og fékk bin Laden því vota gröf. fagnaðarkoss Dauða bin Ladens var fagnað af ákefð í Bandaríkjunum. Þetta par sá ástæðu til að kyssast í tilefni dagsins. USS Carl Vinson Síðasti áfangastaður jarðneskra leifa Osama bin Laden áður en hann fékk vota gröf. Osama bin Laden Var ákaft leitað í stríðinu gegn hryðju- verkum undanfarinn áratug. fylgjast með í beinni Á myndinni má sjá lengst til vinstri Joe Biden varaforseta og Barack Obama forseta. Lengst til hægri er Robert Gates varnarmálaráðherra og við hlið hans situr Hillary Clinton utanríkisráðherra. Svefnherbergið Þar mun bin Laden hafa verið skotinn í höfuðið. Herbergið var blóði drifið eftir áhlaupið. n Áfangi í stríðinu gegn hryðjuverkum, segir Obama.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.