Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Blaðsíða 8
„Ég er rosalega ósáttur við að mega ekki skíra son minn þessu nafni. Ég veit satt best að segja ekki hvern­ ig við eigum að leysa þetta,“ segir Magnús Ninni Reykdalsson, íbúi á Selfossi. Mannanafnanefnd hefur synjað þeim Magnúsi og Sóleyju Hólmarsdóttur ósk þeirra um að fá að skíra son sinn Reykdal Mána. Fær ekki svar ráðherra Dagskráin, fréttablað Suðurlands, greindi fyrst frá málinu á forsíðu síðasta tölublaðs en þar kom meðal annars fram að þau Sóley og Magn­ ús hafa skrifað Ögmundi Jónas­ syni innanríkisráðherra bréf vegna málsins. Magnús segir í samtali við DV að svar við því hafi ekki borist, þrátt fyrir að meira en mánuður sé síðan bréfið var sent, og raunar bú­ ist hann ekki við svari úr þessu. Magnús segir að hvað sem niður­ stöðu mannanafnanefndar líði muni sonur hans bera nafnið Reyk­ dal Máni, jafnvel þó hann fái ekki að skíra hann því nafni. Hann segir raunar að það hafi ekki hvarflað að þeim að þau mættu ekki skíra hann þessu nafni, fyrr en presturinn hafi til öryggis stungið upp á því að þau hefðu samband við þjóðskrá. „Allir ættingjar hans fengu SMS­skilaboð þegar hann fæddist um að Reyk­ dal Máni Magnússon væri fæddur. Við vorum alveg grunlaus um að við þyrftum að sækja um þetta til mannanafnanefndar.“ Hvorki -dal né -fjörð Mannanafnanefnd segir í úrskurði sínum að eiginnafnið Reykdal myndi brjóta í bága við íslenskt málkerfi – eiginnöfn megi til dæm­ is ekki enda á ­dal, ­fjörð, ­fell, eða ­holt. Reykdal sé ekki á manna­ nafnaskrá þó nafnið eigi sér ein­ hverja sögu í íslensku máli. Þess má geta að 90 núlifandi Íslending­ ar heita Reykdal í þjóðskrá, enginn ber þó nafnið sem eiginnafn. Magnús er afar ósáttur við að mega ekki skíra son sinn Reykdal Mána. Hann ætlar ekki að hlíta niðurstöðu nefndarinnar og segir að hann verði aldrei kallaður ann­ að en Reykdal Máni. „Mér var bent á að ég gæti skírt hann Mána Reyk­ dal en það kemur ekki til greina. Það er allt annað nafn.“ Hann bend­ ir einnig á að árið 1978 hafi fæðst drengur sem heiti Heiðdal Jónsson og annar árið 1964 sem hafi feng­ ið eiginnafnið Reykdal. Því hljóti reglurnar sem mannanafnanefnd vinnur eftir að vera nýjar. Afinn kallaður Reykdal Faðir Magnúsar heitir Guðni Reyk­ dal Magnússon en notast aldrei við nafnið Guðni. Hann hefur allt­ af verið kallaður Reykdal Magnús­ son. Synir hans eru því Reykdals­ synir. Magnús spurði þá þjóðskrá hvort hann mætti skíra strákinn Guðna Reykdal Mána Magnús­ son – og nota þá ekki Guðna nafn­ ið – en það má heldur ekki. „Máni má ekki vera á eftir Reykdal,“ seg­ ir hann og bætir við: „Ég skil ekki reglurnar sem unnið er eftir. Heið­ dal er til sem eiginnafn og meira að segja Kjarval. Hver er munurinn á endingunni ­dal og ­val?“ spyr hann. Magnús fór upp á endurupp­ töku málsins en því var hafnað. Pattstaða er því uppi í málinu og 8 | Fréttir 4. maí 2011 Miðvikudagur Fíkniefnamál Erlings Arnar fyrir dóm í Litháen: Gæti fengið allt að 12 ára fangelsi Erlingur Örn Arnarson gæti átt yfir höfði sér 12 ára fangelsisvist í Litháen, verði hann fundinn sekur fyrir litháískum dómstólum um stór­ fellt fíkniefnabrot. Um það bil kíló af fíkniefnum fannst í fórum hans í fyrra. Fram kemur í litháískum fjöl­ miðli að um 733 grömm af kannabis­ efnum, sjö grömm af kókaíni og 10 grömm af amfetamíni sé að ræða. Er­ lingur Örn, sem er 41 árs, hefur verið búsettur í Litháen. Hann var leiddur fyrir rétt í vikunni. Hann viðurkenndi að hafa átt efnin en ekki að hafa ætl­ að að selja þau. „Á þeim tíma var ég háður eiturlyfjum,“ er haft eftir hon­ um úr dómssal á vefmiðlimum. Fram kemur að hann hafi verið tekinn með efnin á rútustöð í Vilníus. Í kjölfarið var gerð húsleit í íbúð sem talin er hafa tilheyrt Erlingi og þar mun hafa fundist meira af fíkniefnum. Saksóknarinn, Tom Cepelionis, sagði fyrir dómi að fíkniefnabrot­ ið væri stórfellt og jafnvel þó Er­ lingur hefði ekki ætlað að selja efn­ in hefði hann viðurkennt fyrir dómi að hafa átt þau. Hann taldi að 12 ára fangelsis vist væri hæfileg refsing. Fram kom í fjölmiðlum þegar Er­ lingur var handtekinn í fyrra að al­ þjóðadeild ríkislögreglustjóra hér á landi hefði fengið fregnir af handtök­ unni. Ekki er vitað hvort málið teygi anga sína til Íslands að öðru leyti. Fyrir dóm Erlingur Örn Arnarson er ákærður í Litháen fyrir stórfellt fíkni- efnabrot og gæti átt yfir höfði sér langan fangelsisdóm verði hann fundinn sekur. n Magnús Ninni Reykdalsson er ósáttur við mannanafnanefnd n Fær ekki að skíra Reykdal en má skíra Reykdalur eða Reyk- dallur n Skrifaði Ögmundi bréf en fékk ekki svar„Mér var bent á að ég gæti skírt hann Mána Reykdal en það kemur ekki til greina. Það er allt annað nafn. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is St. 41-46 Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 SKÓMARKAÐUR St. 40-46 St. 41-50 St. 40-46 St. 41-46 Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 SKÓMARKAÐUR St. 40-46 St. 41-50 St. 40-46 Góðir skór Gott verð St. 23-35 kr. 1.995 St. 29-35 kr. 3.895 St. 19-24 kr. 4.595 St. 23-35 kr. 1.995 Gott að vera móðir á Íslandi Það er gott að vera móðir á Ís­ landi. Það sýna að minnsta kosti niðurstöður árlegrar rannsóknar á því hvar best sé að vera móðir í heiminum. Noregur er í efsta sæti á listanum en Ástralía og Ísland fylgja þar fast á eftir. Öll Norður­ löndin komast í topp­10 sætin á listanum en Svíþjóð og Danmörk eru í fjórða og fimmta sæti og Finnland í sjöunda sæti. Samtökin Save the Children standa fyrir rannsókninni sem framkvæmd er á hverju ári og tek­ ur til flestra ríkja heims. Það land sem kemur verst út samkvæmt rannsókninni er Afganistan en ríki í Mið­Austurlöndum og Afríku eru áberandi neðarlega á listanum. Forseti Slóveníu á Bessastöðum Danilo Türk, forseti Slóveníu, er þessa dagana í opinberri heimsókn á Ís­ landi. Heimsóknin hófst formlega á þriðjudag með heimsókn hans á Bessastaði. Með forsetan­ um í för eru þrír ráðherrar í ríkis­ stjórn Slóveníu auk embættis­ manna. Ólafur Ragnar og Türk funduðu saman á þriðjudag og héldu sameiginlegan blaðamannafund að fundi loknum. Forsetarnir munu sækja málþing í Hellisheiðarvirkjun í dag, miðvikudag, um reynsluna af nýtingu jarðhita á Íslandi og þann lær­ dóm sem Slóvenar gætu af henni dreg­ ið við framkvæmdir í Slóveníu. Þeir munu og verða viðstaddir opnunar­ tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu á miðvikudagskvöld. Sonurinn má ekki heita Reykdal Máni Karlkyns: n Elvis n Þórbjörn n Stapi n Berni n Kjárr n Vakur n Eivin Kvenkyns: n Mundína n Einína n Dóris n Maía n Lilla n Rósinkransa n Carla Samþykkt nöfn Þessi nöfn hafa verið samþykkt á árinu Falleg fjölskylda Sóley, Reykdal Máni og Magnús Ninni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.