Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Page 26
26 | Fólk 4. maí 2011 Miðvikudagur
Mundi opnar vinnustofu og litla búð í Pósthússtræti:
Með sjö í vinnu
Mundi er 24 ára og er, þrátt fyrir ungan aldur, á góðri
leið með að slá í gegn sem fatahönnuður. Fyrsta fata-
lína hans var sýnd á tískuviku í París og seldist strax
til 20 verslana í Asíu, Bandaríkjunum og Evrópu.
Hann er nú með sjö manns í vinnu við framleiðslu
og sölu fatanna. Mundi var líka einn af fáum sem
vöktu athygli gesta á Reykjavik Fashion Festival ný-
verið og fékk afar jákvæða umfjöllun. Hann er hrein-
skilinn og hneykslar gjarnan með ummælum sínum
en í viðtali við Dazed sagði hann undirbúning undir
íslensku tískuvikuna hafa farið fram í miklu óða-
goti. „Við vitum ekkert hvað við erum að gera,“ sagði
Mundi og sprakk úr hlátri. Hann virðist þó vel vita
hvað hann er að gera því velgengni hans er með
ágætum. Mundi opnar stúdíó sitt í Pósthússtræti
13 á fimmtudagskvöldið og býður alla velkomna að
samgleðjast honum. Þar má líta sýnishorn af haust-
og vetrarlínu hans. Í húsnæðinu opnar Mundi líka
litla afsláttarbúð og má þar finna eitthvað fallegt
með góðum afslætti.
Á vinnustofunni í Pósthússtræti Mundi opnar vinnustofu sína og litla afsláttarbúð innan hennar á fimmtudags-
kvöldið. Þar má líta sýnishorn af haust- og vetrarlínu hans og kaupa eitthvað fallegt með góðum afslætti. Mynd björn blöndal
Úr sumarlínu Munda Sumarlína
Munda fékk góða dóma. Mundi er á
hraðri uppleið sem fatahönnuður og
er með sjö manns í vinnu.
Frægir í
sólinni
Það var ekki bara sólin sem lét sjá sig í
miðbæ Reykjavíkur á miðvikudag því
fjöldi þekktra Íslendinga var mættur
með bros á vör í miðbæinn. Meðal
þeirra sem létu sjá sig voru fjölmiðla- og
athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson,
eigandi Austurs Steikhúss í Austur-
stræti, Vala Matt, arkitekt og fagurkeri,
og agnes bragadóttir, blaðakona
á Morgunblaðinu. Rétt eins og aðrir
vegfarendur í miðbænum brostu þessir
þekktu Íslendingar framan í sólina og
virtust sáttir við góða veðrið.
Glamúrpíur
bætast í hópinn
Fleiri þekktar glamúrpíur hafa bæst
í hóp þeirra leikara sem leika í kyn-
lífshópsenu í myndinni Svartur á
leik. Heimildir DV herma að jórunn
Steinsson, frænka Unnar birnu
Steinsson, og Móheiður Sif verði
þeirra á meðal. Þær bætast því í hóp
leikkvennanna Maríu birtu og lilju
Ingibjargardóttur.
M
y
n
d
b
jö
r
n
b
lö
n
d
a
l
E
inbýlishús athafna- og vísinda-
mannsins Kára Stefánssonar
hefur verið sett á sölu. Húsið
er 379 fermetrar að stærð og
er fasteignamat þess 64,3 milljónir
króna. Húsið stendur við Hávallagötu
24 í Reykjavík en Kári hefur verið bú-
settur þar um nokkurn tíma.
Samkvæmt lýsingu á húsinu hjá
fasteignasölunni Eignamiðlun, sem
annast sölu á húsinu, kemur fram að
það sé á tveimur hæðum auk kjall-
ara og að því fylgi 27 fermetra bílskúr.
Húsið er teiknað af Guðjóni Sam-
úelssyni, húsameistara ríkisins, en
hann teiknaði meðal annars aðal-
byggingu Háskóla Íslands, Þjóðleik-
húsið og Hallgrímskirkju. Í lýsing-
unni kemur einnig fram að húsið sé
nýverið endurnýjað á „smekklegan og
vandaðan hátt“ og að lofthæð á aðal-
hæð hússins sé yfir 3 metrar. Húsið er
sögufrægt en það var byggt af engum
öðrum en hinum umdeilda Jónasi
frá Hriflu sem var meðal annars for-
maður Framsóknarflokksins fyrir
margt löngu.
Að undanskildum kjallaranum,
sem er í raun séríbúð með eldhúsi,
stofu og svefnherbergi, eru þrjú
svefnherbergi í húsinu og þrjú bað-
herbergi. Úr hjónaherberginu er inn-
angengt í baðherbergi þar sem bæði
er að finna sturtu og frístandandi
baðkar. Í húsinu er einnig rúmgóð
skrifstofa með sérsmíðuðum innrétt-
ingum. Ljóst er að Kári hefur ekkert til
sparað við endurbætur á húsinu sem
var byggt árið 1941.
Kári Stefánsson er hvað þekktastur
fyrir að hafa stofnað og að stjórna
rannsóknarfyrirtækinu Decode
Genetics, sem á móðurmálinu heitir
Íslensk erfðagreining. Hann hefur
verið í sviðsljósi íslenskra fjölmiðla í
tengslum við fyrirtæki sitt sem hefur
sveiflast mikið í verðmæti í gegnum
árin.
Kári Stefánsson, athafna- og vísindamaður:
n Glæsihús Kára Stefánssonar til sölu n Uppsett verð ekki gefið
upp en fasteignamatið er 64,3 milljónir n Húsið teiknað af Guðjóni
Samúelssyni, sem teiknaði meðal annars Hallgrímskirkju
Óskað eftir
tilboðum í
glæsihús kára
Glæsihús Kára Húsið
teiknaði Guðjón Samúelsson
en hann teiknaði meðal annars
aðalbyggingu Háskóla Íslands,
Þjóðleikhúsið og Hallgríms-
kirkju. Mynd róbErt rEynISSon