Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Blaðsíða 29
Skilnaðurinn
við Mueller
genginn í gegn
Fólk | 29Miðvikudagur 4. maí 2011
Fær háar meðlags-
greiðslur Mueller mun að
sögn TMZ fá 55 þúsund dali,
eða rúmar 6 milljónir, á mánuði
í meðlagsgreiðslur frá Sheen.
Lindsay Lohan ætlar hvorki að játa né neita sekt þegar ákæra vegna þjófnaðar gegn henni verður tekin fyrir í Bandaríkjunum. Sam-
kvæmt frétt bandaríska vefmiðilsins TMZ af mál-
inu mun lögfræðingur Hollywood-stjörnunnar fara á
fund með dómaranum í málinu og tilkynna henni um málið.
Eins og stendur er gert ráð fyrir því að málið verði tekið fyrir
snemma í næsta mánuði.
Lohan hefur þegar verið dæmd í 120 daga fangelsi og til 480
klukkustunda samfélagsþjónustu eftir að hafa gerst brotleg gegn
skilorði í þjófnaðarmálinu. Leikkonan og lögfræðingur hennar vonast
til að þess að ef Lindsey lýsi sig ekki saklausa af ákærunum sé hægt að
koma í veg fyrir að dómarinn dæmi hana til lengri fangelsisvistar.
Steve Whitmore, lögreglufulltrúi í Los Angeles, hefur látið hafa eftir
sér að Lohan muni þurfa að afplána 3 vikur af 4 mánaða dómi sínum
vegna plássleysis í fangelsum. Samkvæmt Lohan sjálfri er hún tilbúin
til að takast á við samfélagsþjónustu en hún vill halda áfram með líf sitt.
Þetta sagði hún í viðtali hjá Jay Leno í bandaríska spjallþættinum The
Tonight Show.
ReyniR að
foRðast
fangelsi
Lindsay Lohan ætlar hvorki að játa né neita:
Tilbúin í samfélagsþjónustu Í viðtali hjá Jay Leno
í bandaríska spjallþættinum The Tonight Show sagðist
Lohan vera tilbúin til að sinna samfélagsþjónustu.
Mariah Carey fæddi dóttur og son á sjúkra-
húsi í Los Angeles á laugardag – sama dag og
hún fagnaði brúðkaupsafmæli sínu og Nicks
Cannon. Samkvæmt heimildum people.
com fæddi hin 42 ára gamla poppsöngkona
börnin sín rétt eftir hádegi á laugardag.
Fjölmiðlafulltrúi Carey hefur staðfest
fréttirnar og að sögn hans heilsast öllum
vel. Stúlkan kom fyrst í heiminn en stuttu
síðar kom drengurinn, sem var örlítið stærri
og þyngri en systir sín. Þá sagði fjölmiðla-
fulltrúinn í samtali við erlenda fjölmiðla að
lagið We Belong Together, sungið af Mariuh
Carey, hafi verið spilað meðan á fæðingunni
stóð.
Mariah Carey fæðir tvíbura:
Eignaðist dóttur og son
Börn á brúðkaupsafmælinu Börnin komu í heim-
inn sama dag og hjónin fögnuðu brúðkaupsafmæli sínu.
Ó
látabelgurinn Charlie Sheen er nú lagalega
skilinn við eiginkonu sína Brooke Mueller.
Hjónakornin höfðu verið skilin að borði og
sæng um þó nokkurt skeið en skilnaðurinn
gekk formlega í gegn á mánudag, sex mánuðum eftir að
fyrstu skilnaðarpappírunum var skilað inn til yfirvalda.
Samkvæmt frétt bandaríska vefmiðilsins TMZ hefur
margt gerst síðan parið tókst á um skilnaðinn í kastljósi
fjölmiðlanna fyrir nokkrum mánuðum og er parið sagt
hafa komist að samkomulagi um skilnaðinn.
Mueller mun að sögn TMZ fá 55 þúsund dali, eða
rúmar 6 milljónir króna, á mánuði í meðlagsgreiðslur
frá Sheen fyrir tvíburasynina sem þau eignuðust á
meðan fremur skammlífu hjónabandi þeirra stóð. At-
hygli hefur vakið að í samningum Mueller og Sheen er
skýrt kveðið á um að meðlagsgreiðslur til tvíburanna
Bobs og Max megi aldrei verða lægri en þær greiðslur
sem Sheen greiðir með börnum sínum Sam og Lolu
sem hann eignaðist með annarri fyrrverandi eiginkonu
sinni, Denise Richards.
Auk meðlagsgreiðslnanna mun Mueller fá ein-
greiðslu upp á 757.698,70 dali, eða 84.369.750 krónur,
en Sheen hefur einnig samþykkt að kaupa hennar hlut í
heimili þeirra á milljón dali, eða 111,35 milljónir króna.
Dóttir fyrrverandi hjónanna og leikaranna Bruce Willis og Demi Moore, Tallulah Belle,
var handtekin með áfengi síðastliðið
sunnudagskvöld en hún er aðeins
17 ára og má því ekki neyta áfeng-
is samkvæmt bandarískum lögum.
Samkvæmt heimildum bandaríska
vefmiðilsins TMZ var Tallulah hand-
tekin ásamt tveimur öðrum vinum
sínum en hópurinn var með tvær
flöskur af áfengi með sér.
Öll þrjú eru þau undir lögaldri og
ákærði lögreglan þau öll. Lögregl-
an vildi ekki sleppa unglingunum
þremur eftir að hafa flutt þau niður á
lögreglustöð nema foreldrar þeirrar
sæktu þau og þurfti Demi Moore að
aka niður á lögreglustöð til að ná í
dóttur sína.
Dóttir
Willis og
Moore í
vanda
17 ára handtekin með áfengi:
Á fræga foreldra Dóttir fyrrverandi
hjónanna og leikaranna Bruce Willis og
Demi Moore, Tallulah Belle.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
Endurnærir og hreinsar ristilinn
allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
30+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox