Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Qupperneq 3
Fréttir 3Mánudagur 16. apríl 2012 ESB-viðræður á endastöð Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri- grænna, segir aðildarviðræður við ESB komnar að leiðarlokum og nú sé mál að slíta þeim. Flokksmenn Vinstrigrænna séu komnir með nóg af viðræðunum og að aðild ESB að Icesave-málssókninni hafi verið kornið sem fyllti mælinn. Jón vill taka málið upp á Alþingi. „Mér finnst alveg einboðið að Alþingi fari yfir það nú og kanni vilja til þess að það sé afturkallað. Ég geri ráð fyrir að þessi mál verði skoðuð og hvort ég legg fram til- lögu eða aðrir, það er meirihluti Alþingis sem hefur ráðið þessari vegferð frá byrjun og ég treysti því að meirihluti Alþingis sjái að það sé komið að endapunkti þarna.“ RÚV greindi frá þessu á sunnudag. Gekk berserksgang við Seljavallalaug Karlmaður um tvítugt gekk ber- serksgang við Seljavallalaug undir Eyjafjöllum um tíuleytið á sunnu- dagsmorgun. Hann rústaði bíl sem var við sundlaugina og braut allar rúður í honum. Lögregla var kölluð á vettvang og var maðurinn handtekinn að því er RÚV greindi frá á sunnudag. Ekki er vitað hvað honum gekk til, en svo virðist sem maðurinn hafi verið að drykkju lengi og skyndilega fyllst heift sem hann hafi tekið út á bílnum. Fjöldi vitna var að atvikinu og telur lög- regla málið liggja ljóst fyrir. Steig í hver Erlend kona hlaut annars stigs brunasár á fæti þegar hún steig í hver í Grænadal, fyrir innan Hveragerði, um tíuleytið á sunnu- dagsmorgun. Samferðafólk henn- ar kom henni til aðstoðar en hún brenndist upp að ökkla. Konan var flutt á sjúkrahús í Reykjavík til að- hlynningar. Gleði á Húsavík Fjöldi fólks var samankominn á Húsavíkurflugvelli um miðjan dag á sunnudag en þá lenti vél flugfélagsins Ernis á vellinum. Er þetta fyrsta áætlunarflug frá Reykjavík til Húsavíkur í tólf ár og voru viðtökur heimamanna við fluginu frábærar. Flogið verður sjö sinnum í viku fjóra daga vikunnar og er það von forsvarsmanna Ernis að hægt verði að gera út flug til Húsa- víkur allt árið um kring. Í til- kynningu kemur fram að bók- anir fari vel af stað og allt líti út fyrir mikinn straum ferða- manna til Húsavíkur í sumar. Þ etta er bara kjötgripasýn- ing,“ segir hin 22 ára gamla Andrea Rún Carlsdóttir um keppni í módelfitness. Hún tók sjálf þátt í slíkri keppni fyrir þremur árum og segir reynsl- una ekki hafa verið góða að öllu leyti. Andreu finnst ekki nógu mikið tal- að um óheilbrigða fylgifiska slíkra keppna og vill vekja athygli á nei- kvæðum hliðum þeirra. Hún er ekki á móti keppnunum sem slíkum en setur spurningamerki við tilgang þeirra. Keppendum fjölgar Íslandsmót í módelfitness fór fram í Háskólabíói um páskahelgina og tóku um 80 konur þátt í mótinu. Er það mikil aukning frá því fyrir þrem- ur árum þegar Andrea tók þátt en þá voru keppendur aðeins um 20 tals- ins. Fyrst var keppt í módelfitness hér á landi árið 2006, en keppnin er eingöngu ætluð konum. „Mér finnst svo skrýtið að sjá hvað þetta hefur vaxið mikið í vinsældum á síðustu árum. Mér finnst sorglegt að sjá hvað margir fara þessa leið án þess að gera sér kannski grein fyrir hvað tekur við eftir keppni.“ Eingöngu útlitssamanburður Á heimasíðunni fitness.is er lýsing á framkvæmd og reglum módelfit- nesskeppna og þar segir meðal ann- ars: „Í megindráttum eru áherslur dómara í þessari nýju keppnisgrein þær að mun minni áhersla er lögð á vöðvamassa og skurði og horft er til fegurðar.“ Þá segir þar einnig: „Kepp- endur eiga að sýna fram á fallega kvenlega líkamsbyggingu, hóflega stæltan sem og fallega tónaðan og samræmdan vöxt.“ Andrea bendir á að í fyrstu hafi í fitness einnig verið keppt í hreysti með ýmsum þrautum. Þá hafi útlits- samanburðurinn aðeins verið hluti af því hvernig keppendur voru metn- ir. Nú sé eingöngu borið saman út- lit keppenda. „Þetta snýst ekki um hreysti eða líkamlega getu til að gera ákveðið margar armbeygjur eða slá eitthvert met. Þetta er eingöngu hrós fyrir útlit, svona: „Þú ert ógeðslega flott, vel gert.““ Hætta á blæðingum Í fyrra tók Andrea þátt í rannsókn sem var hluti af BSc-verkefni Sig- urðar Heiðars Höskuldssonar og Sigurðar Kristjáns Nikulássonar í íþróttafræði við Háskólann í Reykja- vík, „Áhrif þátttöku kvenna í Fitness á andlega og líkamlega heilsu þeirra“. Rannsóknin leiddi meðal ann- ars í ljós að allt að 90 prósent kepp- enda í fitness hætta á blæðingum í að minnsta kosti tvo mánuði í kringum keppnina. Jafnvel allt upp í níu mán- uði. „Fituprósentan er bara orðin það lág að líkamsstarfsemi er ekki leng- ur eðlileg. Það er merki um árangur: „Jess ég er komin þangað, ég er hætt að fara á túr.“ Það er svona jákvæð vísbending sem er reyndar bara mjög neikvæð og eitthvað sem an- orexíusjúklingar þurfa að kljást við,“ segir Andrea. Átröskun algeng Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu einnig að hitaeiningafjöldi matar- áætlana fitnesskeppenda var langt undir æskilegum viðmiðum fyr- ir konur samkvæmt Lýðheilsustöð. Áætlanirnar voru mismunandi en hitaeiningafjöldinn var frá 1.139 til 1.477. Samkvæmt Lýðheilsustöð er æskilegur hitaeiningafjöldi fyrir kon- ur sem æfa allt að sjö sinnum í viku um 2.600 hitaeiningar á dag. Miðað við þessar tölur er ekki óeðlilegt að um 70 prósent þátttakenda í rann- sókninni sögðust hafa fundið fyrir einkennum átröskunarsjúkdóma í kringum fitnesskeppni. Þá taldi rúmur helmingur þátt- takenda að steranotkun væri algeng á meðal fitnesskeppenda. Ekki allt neikvætt Þótt Andrea setji spurningamerki við tilgang módelfitnesskeppna og sé á móti öfgunum sem þeim fylgja seg- ir hún almennan undirbúning fyr- ir keppnina alls ekki hafa verið nei- kvæðan. Undirbúningurinn snúist mikið um heilbrigðan lífsstíl sem sé jákvætt að fólk tileinki sér. „Það eru aðallega bara þessar öfgar sem bloss- uðu upp fyrir og eftir keppni sem mér finnst vera óheilbrigðar.“ Þegar hún var komin niður í fjór- tán prósenta líkamsfitu fyrir keppn- ina leið henni ótrúlega vel. Hún gat til dæmis hlaupið mjög mikið og var virkilega ánægð með það. „Ég var geðveikt létt á mér. En svo kárn- aði gamanið þegar ég steig á svið, þá einhvern veginn hrundi allt,“ segir Andrea en á þó erfitt með að útskýra hvers vegna. „Ég vissi ekki alveg við hverju ég bjóst en það var allavega ekki það sem ég upplifði.“ Slæmar andlegar afleiðingar Í BSc-ritgerðinni er tekið fram að fyrri rannsóknir sýni að kolvetnas- velti, vatnslosun og aðrar leiðir sem fitnesskeppendur fari í átt að mark- miðum sínum geti haft mikil áhrif á andlega heilsu. Má þetta meðal ann- ars rekja til þess að vöðvarnir hætta að vera jafn sýnilegir eftir að keppni lýkur og það getur lagst á sálina hjá mörgum. Andrea segir að í sínu tilfelli hafi líkaminn orðið fyrir miklu áfalli eft- ir keppnina. Hún hafði engin lang- tímamarkmið heldur var þátttaka í mótinu eina markmiðið. „Svo var keppnin búin og þá stóð maður bara eftir eins og í einhverju tómarúmi. Það var ekkert.“ Lægðin kom þó ekki alveg strax. Hún hafði í nógu að snúast eftir keppnina; var í prófalestri, útskrif- aðist úr menntaskóla og fór í út- skriftarferð. Þegar fór að róast um hjá henni, þá kom lægðin. Hún steig til að mynda ekki á vigt í átta mánuði. Vill vekja stúlkur til umhugsunar Andrea telur að einhverjar stelpur sjái módelfitness sem einhvers kon- ar lausn. Sumar séu jafnvel yfir kjör- þyngd og setji sér óraunhæf mark- mið. Hún telur að þátttaka í slíkum keppnum hafi mest áhrif á þær, enda þurfi þær að hafa meira fyrir hlut- unum en stelpur sem æfa mikið að staðaldri. Sjálf var hún þó ekki of þung heldur bara venjuleg, eins og hún orðar það. Andrea tekur fram að eftirköst keppn- innar séu horfin í dag, hún hreyfi sig, borði hollan mat og líði mjög vel, þrátt fyrir að þátttaka í keppninni fyrir þremur árum hafi tekið á. Hún vonast til að geta vakið stúlkur til umhugsunar áður en þær ákveða að fara þessa leið. „Að fólk spyrji sig: Af hverju?“ „Þú ert ógeðslega flott, vel gert“ n Andrea vill vekja athygli á neikvæðum hliðum módelfitnesskeppna Heimild n BSc-ritgerð Sigurðar Heiðars Hösk- uldssonar og Sigurðar Kristjáns Nikulás- sonar í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík frá árinu 2011: Áhrif þátttöku kvenna í fitness á andlega og líkamlega heilsu þeirra. Eftirköstin horfin Líkami Andreu varð fyrir hálfgerðu áfalli eftir keppnina en rann- sókn sýnir að fitnesskeppendur glíma oft við erfiðar andlegar afleiðingar eftir keppnir. Keppti í módelfitness Andreu finnst skrýtið að sjá hvað vinsældir módelfitness hafa vaxið á síðustu árum. Fyrir henni er þetta hálfgerð „kjötgripasýning“. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Mér finnst sorglegt að sjá hvað margir fara þessa leið án þess að gera sér kannski grein fyrir hvað tek- ur við eftir keppni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.