Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Blaðsíða 18
18 Neytendur 16.apríl 2012 Mánudagur Endurvinnum rafhlöðurnar n Engin afsökun er fyrir því að henda þeim í ruslið Þ rátt fyrir að rafhlöður séu orðnar vistvænni en áður var er jafn mikilvægt að koma þeim í endurvinnslu og áður. Þær innihalda spilliefni og hafa skað- leg áhrif á heilsu og umhverfi og inni- halda efni sem geta haft alvarlegar afleiðingar, sleppi þau út í náttúruna. Um þetta má lesa á síðu Úrvinnslu- sjóðs en þar er fjallað um skaðsemi rafhlöðunnar og hvernig við get- um komið í veg fyrir að skaða nátt- úruna. Þar segir að þungmálmarnir blý, kvikasilfur og kadmíum séu allir eitraðir og eigi það sameiginlegt að safnast upp í líkamanum. Í stað þess að skiljast út úr líkamanum í formi þvags, hægða eða svita verði þeir eft- ir í líkama manna og dýra og safnast upp.  Kvikasilfur  geti valdið skaða á miðtaugakerfi og nýrum og safnist fyrir í vöðvum og taugakerfi. Kadmí- um  geti valdið nýrnaskaða og van- sköpun á beinagrind.  Blý  safnist upp í lifur, nýrum og milta en aukið magn af blýi í heila barna hefur í för með sér minnkandi getu til að læra og náttblindu. Auk þess valdi krón- ísk blýeitrun blóðleysi og truflunum í taugakerfi. Það ætti aldrei að henda rafhlöð- um í ruslið og engin afsökun er fyr- ir því. Það er einfalt að koma þeim í endurvinnslu þar sem söfnunar- stöðvar sveitarfélaga, söluaðilar raf- hlaðna og bensínstöðvar taka á móti rafhlöðum. Auk þess sem hægt er að setja þær í endurvinnslutunnur fyrir flokkað heimilissorp. Þaðan fara þær til fagaðila til flokkunar eftir inni- haldi og möguleikum til endurnýt- ingar. E ld sn ey ti Algengt verð 268,3 kr. 265,3 kr. Algengt verð 268,1 kr. 265,2 kr. Algengt verð 268,0 kr. 265,0 kr. Algengt verð 268,3 kr. 265,3 kr. Algengt verð 269,9 kr. 265,3 kr. Melabraut 268,1 kr. 265,2 kr. Heiðarleikinn ekki útdauður n Lofið að þessu sinni fær Bílasala Guðfinns en viðskiptavinur sem keypti nýverið bíl hjá henni vill fá að lofa þjónustuna sem hann fékk. „Þegar ég var búinn að borga bílinn átti ég að eiga eftir 140.000 krónur en þegar ég kom heim kom í ljós að ég var ekki með nema 40.000 krón- ur. Ég þóttist viss um að hafa ekki greitt of mikið svo það virtist sem ég hefði týnt peningnum. Skömmu eftir að ég kom heim hringdi Guð- finnur bílasali í mig, hann sagðist ánægður með viðskiptin en ekki vera viss um að ég væri jafn ánægð- ur þar sem ég hefði borgað 100.000 krónum of mikið. Hann sagði að ég gæti sótt peningana þegar mér sýnd- ist. Það virðist vera að heiðarleikinn sé ekki með öllu útdauður hjá okkur Íslending- um.“ Vonsviknir ferðalangar n Lastið fær sundlaugin á Hvamms tanga en DV fékk eftirfar- andi sent: „Sundlaugin á Hvamms- tanga hætti að hleypa ofan í kl. 13.30 á laugardaginn um páska- helgina. Það voru því heldur betur vonsviknir og skítugir ferðalangar sem var vísað frá. Þeir hefðu betur sleppt því að auglýsa opið hjá sér,“ segir vonsvikinn sundlaugargestur. Haft var samband við sundlaugina Hvammstanga og fengust þau svör að laugardagurinn um páskana hefði verið venjulegur laugardagur eins og hjá flestum öðrum stofnun- um og því venjulegur vetraropnun- artími frá 10.00–14.00. „Við höfum auglýst opnunartíma hjá okkur vel undanfarin ár í blöðum, tímaritum, veggspjöldum og á heimasíðum og hefur þessi ferðalangur því miður ekki kynnt sér þann opnunartíma nógu vel. Í þeim auglýsingum kem- ur fram að hætt er að selja ofan í sundlaug 30 mínútum fyrir auglýst- an lokunartíma. Vil ég því benda vonsvikna sundlaugar- gestinum á sundlaug. is eða hunathing.is þar sem hægt er að afla sér upplýsinga um opnunartíma sundlaugarinnar.“ SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last E f þú ert enn að borga 4 prósent í viðbótarlífeyrissparnað þá er verið að tvískatta lífeyrissparn- aðinn þinn. Þú borgar skatt þegar þú setur peninginn þinn inn og þú borgar skatt þegar þú tekur hann út,“ segir Þorsteinn Pétursson, sölustjóri Tryggingavaktarinnar, sem hvetur fólk til að ganga úr skugga um að ekki séu tekin meira en 2 prósent af launum. Einfaldasta leiðin til þess er að skoða launaseðilinn þinn. Skoðum launaseðlana Ástæðan fyrir þessu er að um áramót- in var tekjuskattslögum breytt á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekju- skattstofni lækkaði úr 4 prósentum í 2 prósent. Með lagasetningunni ber launagreiðendum að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyris- sparnað verði ekki umfram 2 prósent- in. Hann segir launabókhald hvers fyrirtækis eiga að sjá um að breyta þessu en hvetur þó fólk til að skoða launaseðla sína og ganga úr skugga um að það hafi verið gert. „Öll stærri fyrirtækin hugsa fyrir þessu en kannski ekki þau minni. Það er allur gangur á því, eins og við vitum.“ Peningurinn bundinn til sextugs Þorsteinn segir að komist fólk að því að enn sé verið að taka 4 prósent skuli bregðast hratt við. Þá sé mikil- vægt að hafa samband við vinnuveit- anda og láta lækka þetta hið snarasta. Aðspurður hvort hægt sé að leiðrétta þetta afturvirkt segir hann það vera erfitt. „Ekki nema með stórkostlegu veseni. Við þurfum að hafa í huga að þegar þú greiðir í lífeyrissparnað, hvort sem það er af skattlögðu fé eða ekki, þá er sá peningur bundinn til sextugs. Leggja peninginn í sparnað „Við höfum verið að hvetja fólk til að taka það sem samsvarar þessum auka 2 prósentum og leggja í annan sparn- að. Sem dæmi má nefna þá leið að leggja peninginn í söfnunarlíftrygg- ingu. Þá verður þetta sparnaður sem fer í gegnum tryggingarumhverfið og er góður að því leyti að þú getur ánefnt peningana eins og í líftryggingu. Þú greiðir ekki erfðafjárskatt eins og í líf- eyrissjóðum og borgar ekki eigna- skatt og ekki er um neina tekjuskatta að ræða við útgreiðslu,“ segir hann og bætir við að erlendis sé þessi sparnað- arleið vinsæl. Endurskoðaðu sparnaðinn reglulega Hann hvetur fólk til að fá ráðgjöf við þetta þar sem þetta fari ansi mikið eft- ir hverjum og einum og ekki hægt að segja að eitthvað eitt henti best fyrir alla. Fólk þurfi að hugsa út í hvernig það vill ávaxta eftirlaunasjóði sína og hvaða áhættu það vilji taka. „Sjaldn- ast veit fólk hvaða ávöxtunarleið það er með í sínum lífeyrismálum og ég hvet fólk til að skoða þau mál reglu- lega, helst á 2 til 5 ára fresti. Þetta á við allan lífeyrissparnað, hvort sem þú ert hjá banka, tryggingarfélagi eða lífeyr- issjóði.“ Komdu í veg fyrir tvísköttun n Aðeins er leyfilegt að greiða 2 prósent í viðbótarlífeyrissparnað „Við höfum verið að hvetja fólk til að taka það sem samsvar- ar þessum auka 2 pró- sentum og leggja í annan sparnað. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Þorsteinn Pétursson Markaðsstjóri Tryggingavaktarinnar hvetur fólk til að skoða launaseðla sína með lífeyrissparnað í huga. Lífeyrissparnaður Mælt er með að launþegar athugi hvort enn sé verið að taka 4 prósent í viðbótarlífeyrissparnað. Rafhlöður Innihalda efni sem eru hættuleg heilsu manna, dýra og náttúru. MYND PhOTOS.cOM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.