Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Blaðsíða 8
Neyta vímuefNa
á meðgöNguNNi
8 Fréttir 16. apríl 2012 Mánudagur
„Ættu að skammast sín“
n Björn Valur Gíslason er harðorður í garð Sjálfstæðisflokksins
V
iðbrögð sumra stjórnmála-
manna við kröfu fram-
kvæmdastjórnar ESB um
aðkomu að dómsmáli gegn
Íslandi vegna Icesave-ósómans eru
vægast sagt furðuleg.“ Þetta skrifar
Björn Valur Gíslason, þingmaður
Vinstrigrænna, í pistli á bloggsíðu
sinni. Björn er harðorður í garð
Sjálfstæðisflokksins. Hann segir
að ef litið sé til nýliðinnar sögu, og
þurfi ekki að fara langt aftur í tím-
ann til þess, komi það í ljós „hve
miklir hræsnarar þeir stjórnmála-
menn eru sem hér um ræðir“.
Björn Valur er afar harðorður í
garð þeirra sem hafa gagnrýnt að-
komu Evrópusambandsins að Ice-
save-málaferlunum og segir annað
hljóð hafa verið í Bjarna Benedikts-
syni, formanni Sjálfstæðisflokks-
ins, þegar Icesave-málið kom fyrst
upp. Hann bendir á að í upphafi
deilunnar hafi íslensk íslensk yf-
irvöld gert samkomulag við ESB
sem nefndist „Brussel-viðmiðin“.
„Í því fólst m.a. að íslensk stjórn-
völd myndu ábyrgjast lágmarks-
tryggingu á innstæðum í útibúum
íslenskra banka erlendis. […] Sem
sagt: Íslenskir stjórnmálamenn
þess tíma viðurkenndu ábyrgð Ís-
lands vegna Icesave-málsins og
óskuðu eftir ríkari aðkomu ESB að
málinu,“ skrifar Björn Valur.
Formaður utanríkismálanefnd-
ar, sem leiddi málið áfram á Al-
þingi, var Bjarni Benediktsson,
núverandi formaður Sjálfstæðis-
flokksins. „Undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins var því leitað til
ESB eftir aðkomu að Icesave-mál-
inu, málinu sem er skilgetið af-
kvæmi flokksins. Nú hneykslast
sjálfstæðismenn hinsvegar yfir því
að þeim hefur orðið að óskum sín-
um, bæði varðandi það að koma
Icesave-málinu í dóm og ESB sé
orðið beinn aðili að því og láta að
því liggja að við núverandi stjórn-
völd sé að sakast í þeim efnum.
Þeir áttu að skammast sín þá og
þeir ættu að skammast sín núna,“
segir Björn Valur.
Harðorður Björn Valur gagnrýnir viðbrögð sjálfstæðismanna harðlega.
n Ólétta hvati til að hætta neyslu n Ljósmóðir segir eftirfylgni vanta
V
algerður Lísa Sigurðardótt-
ir, hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðir á Landspítala
háskólasjúkrahúsi, sinnir
mæðravernd kvenna sem
teljast vera í sérstökum áhættuhópi
á meðgöngu. Til þeirra teljast meðal
annars þær konur sem eru í neyslu
eiturlyfja þegar þær uppgötva þung-
un eða eru nýlega hættar.
Valgerður Lísa telur að um þrjá-
tíu til fjörutíu konur komi árlega á
mæðravernd Landspítalans vegna
vímuefnavanda þeirra. Valgerður
segir að inni í þessari tölu séu líka
konur sem eru kannski nýlega hættar
í neyslu en þurfi aukið eftirlit. Ólétta
sé þó mikill hvati fyrir konur til þess
að hætta neyslu.
Flestar samstarfsfúsar
„Fyrsta markmið okkar er að reyna
með öllum ráðum að fá konuna til
að hætta neyslu. Sú leið sem er val-
in til að fylgja þeim eftir á meðgöng-
unni er þéttar heimsóknir. Þær koma
vikulega til okkar í mæðraverndina,
meðal annars til að fá stuðning og
hvatningu til að hætta og við mæl-
um líka með því að þær skili þvagi í
vímuefnaleit til að geta gripið fljótt
inn í ef að það kemur eitthvað upp á,
til dæmis ef þær falla.“
Valgerður segir konurnar í lang-
flestum tilvikum vera samstarfsfúsar
við ljósmæðurnar og þær segi sjálf-
ar að eftirlitið veiti þeim aðhald og
stuðning. Sé hins vegar grunur um
að kona sé í neyslu en ekki sé hægt
að staðfesta það með þvagprufu ber
samkvæmt barnalögum öllu heil-
brigðisstarfsfólki að tilkynna slíkan
grun til Barnaverndar.
„Við neyðum engan til að skila
þvagprufu en ef það er grunur um að
konan sé að neyta vímuefna á með-
göngu leggur Barnavernd áherslu
á að tilkynnt sé um slíkan grun. Öll
vímuefni geta haft skaðleg áhrif á
barn í móðurkviði, þá er ég að tala
um áfengi, misnotkun á lyfseðils-
skyldum lyfjum og ólöglegum lyfj-
um. Flest vímuefni geta haft áhrif á
vöxt barna í móðurkviði, það er að
þau vaxi ekki, það er einnig hætta á
að þau fæðist fyrir tímann og svo er
auðvitað líka áhætta á ýmiss konar
skaða á taugakerfi og öðru. Það er
svo margt að myndast á meðgöng-
unni, sérstaklega á fyrstu mánuðun-
um.“
Vantar meiri eftirfylgni
Valgerður segir konurnar sem komi
í mæðraverndina vegna neyslu vera
á ýmsum aldri en segir að án þess
að hafa hjá sér tölfræðilegar upp-
lýsingar um aldur þeirra sé henn-
ar tilfinning sé að meirihluti þeirra
sé í yngri kantinum. Aðspurð hvort
henni finnst algengara að konur séu
í harðari efnum nú en áður segir hún
að það sé erfitt fyrir sig að meta. „Ég
held að svona almennt hafi orðið
aukning á neyslu harðari efna í sam-
félaginu og ég hugsa að það skili sér í
þennan hóp líka.“
Það er von Valgerðar að hægt
verði að efla þjónustu við konur í
áhættuhópi sem þessum með auk-
inni eftirfylgni eftir fæðingu, en þjón-
usta mæðraverndar nær aðeins til
fæðingar. „Það hefur ekki verið form-
leg eftirfylgni af hálfu Landspítal-
ans, nema kannski frá félagsráðgjöf-
um. Eftirfylgnin er í raun á vegum
heilsugæslunnar og þá Barnavernd-
ar ef Barnavernd er inni í málun-
um. Ef maður horfir til framtíðar þá
tel ég að best væri að það væri sam-
felld þjónusta og eftirfylgni af ein-
hverju ákveðnu teymi, eins og er gert
til dæmis í Danmörku. Þá er konum
fylgt eftir af sama teyminu frá byrjun
meðgöngu þar til börnin eru orðin
sex ára.“
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Sautján ára
tekinn á 160
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
elti á laugardagskvöld bifreið sem
ekið var á Þingvallavegi. Var hún
mæld á rúmlega 160 kílómetra
hraða á klukkustund á vegarkafla
þar sem leyfilegur hámarkshraði
er aðeins 70 og því rúmlega tvö-
faldur hámarkshraði sem öku-
maðurinn ók á.
Hann reyndi að komast undan
lögreglunni og stakk af. Hann náð-
ist í íbúðahverfi í Mosfellsbæ eftir
skamma stund en þá kom í ljós að
ökumaðurinn var aðeins sautján
ára. Var hann umsvifalaust sviptur
ökuleyfi og fær háa sekt sem hann
þarf að greiða.
Afhjúpuðu mynd
af Sólveigu
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, afhjúpaði á föstu-
dag málverk af Sólveigu Pétursdótt-
ur, fyrrverandi forseta Alþingis, að
viðstöddum alþingismönnum, fjöl-
skyldu Sólveigar, fyrrverandi sam-
þingmönnum og fleiri gestum. Það
var Stephen Lárus Stephen listmál-
ari sem málaði myndina og hefur
henni verið komið fyrir í efrideild-
arsal. Ekki kemur fram í tilkynningu
frá Alþingi hvað verkið kostaði.
Sólveig Pétursdóttir var forseti
Alþingis frá árinu 2005 til ársins
2007. Hún sat á Alþingi í 16 ár, frá
febrúar 1991 til vors 2007. Hún
hafði áður setið nokkur skipti á
Alþingi sem varamaður, en sem
slíkur settist hún fyrst á þing í októ-
ber 1987. Sólveig gegndi emb-
ætti dóms- og kirkjumálaráðherra
1999–2003.
Safna undir-
skriftum vegna
nýrra ganga
Næstu daga verður gengið í
hvert hús í Fjarðabyggð til að
safna undirskriftum til að skora
á Alþingi og ríkisstjórnina að
sjá til þess að framkvæmdir
hefjist nú þegar við gerð Norð-
fjarðarganga. Í tilkynningu frá
sveitarfélaginu kemur fram að
íbúar séu hvattir til að taka vel á
móti því fólki sem bankar upp
á. „Verklegar framkvæmdir við
Norðfjarðargöng áttu að hefj-
ast árið 2009, var frestað til 2011
og í drögum að nýrri samgön-
guáætlun er gert ráð fyrir frekari
frestun, eða allt til 2015,“ segir í
áskoruninni en að mati sveitar-
félagsins eru þessar tafir óásætt-
anlegar fyrir íbúa og atvinnulíf
vegna þeirra hamlandi og skað-
legu áhrifa sem núverandi vegur
hefur á framþróun samfélagsins
í Fjarðabyggð og lífsgæði íbúa á
Austurlandi. „Það er óforsvaran-
legt að eitt öflugasta sveitarfélag
landsins sé klofið í herðar niður
með þeim hætti sem fjallgarður-
inn um Oddsskarð gerir.
Við, undirrituð, skorum hér
með á ríkisstjórn Íslands og
Alþingi að gera nú þegar þær
ráðstafanir, sem nauðsynlegar
eru til að framkvæmdir við gerð
Norðfjarðarganga megi hefjast
svo fljótt sem auðið er, en eigi
síðar en fyrir lok þessa árs, 2012,“
segir að lokum í áskoruninni
sem íbúar geta skrifað undir.
„Við neyðum engan
til að skila þvag-
prufu en ef það er grunur
um að konan sé að neyta
lyfja á meðgöngu leggur
Barnavernd áherslu á að
tilkynnt sé um slíkan grun.
Áhættumeðganga Valgerður Lísa
Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðir, sinnir meðal annars þunguðum
konum sem eru eða hafa verið í neyslu.
30 til 40 konur á ári Sumar þeirra kvenna sem Valgerður aðstoðar eru nýlega hættar neyslu og þurfa eftirlit.