Fréttablaðið - 18.12.2015, Side 30
Fólk| matur
Ég hef alltaf verið áhugasamur um matargerð. Við erum fjórir bræðurnir og því voru fimm karlmenn á heimilinu á móti mömmu sem hafði
lítinn áhuga á matreiðslu. Við strákarnir sáum mikið
til um eldamennskuna og sér í lagi ég,“ segir Martin
en meðan önnur börn lásu kvöldsögur las hann mat-
reiðslubækur.
Martin er framhaldsskólakennari í Verslunarskóla
Íslands. Hann er þýskur en kom til Íslands fyrst fyrir
23 árum þar sem hann kynntist konu sinni. „Við
bjuggum lengi í Þýskalandi en fluttum til Íslands aftur
fyrir tíu árum.“
Martin þykir skemmtilegast að elda ítalskan mat
en brauðbakstur er einnig mjög fyrirferðarmikill. „Ég
baka brauð af öllu tagi, tvisvar til þrisvar í viku og hef
gert í tuttugu ár.“
mismunandi jólahefðir
Martin segir þýskar jólahefðir töluvert frábrugðnar
þeim íslensku. „Matur skiptir mun minna máli í Þýska-
landi um jólin. Heima hjá mér var til dæmis kartöflu-
salat og pylsur. Þá er lögð meiri áhersla á helgihald,
samverustundir, að hittast og syngja eða fara á tón-
leika,“ segir Martin sem vill gjarnan blanda saman
íslenskum og þýskum siðum. „Mér finnst líka frábært
að fara í fín föt og vera með sérstakan mat á jólunum,
vera með hangikjöt, appelsín, jólaöl og laufabrauð.“
Martin syngur með Mótettukór Hallgrímskirkju og
er því ávallt upptekinn við messusöng klukkan sex
á aðfangadag og öll fjölskyldan með honum. Þess
vegna hefur orðið að hefð að borða raclette á að-
fangadag. „Þá höfum við allt hráefnið tilbúið í skálum
og getum sest beint til borðs þegar við komum úr
messunni.“
ný útfærsla á klassískum ís
Í eftirrétt hefur iðulega verið boðið upp á toblerone-ís
en dálítil breyting verður á í ár. „Ég prófaði að útbúa
þýskar möndlu-hunangskökur og notaði þær í ísinn.
Það kom mjög vel út og ísinn fékk smá kanilkeim.
Með þessu útbjó ég plómusósu en sýran í sósunni
passar mjög vel við sætuna í ísnum.“ Þessi tilraun
mæltist svo vel fyrir hjá fjölskyldunni að ákveðið var
að hafa ísinn í eftirrétt á aðfangadag.n solveig@365.is
jólaís með möndlu-
hunangskexi
eftirrÉttur Martin Kollmar prófaði nýja útfærslu á toblerone-ís sem
ávallt hefur verið á borðum á heimili hans á aðfangadag. Hann útbjó þýskar
möndlu-hunangskökur og notaði í ísinn. Að auki bjó hann til plómusósu.
matgæðingur Martin hefur haft áhuga á eldamennsku frá
unga aldri. Hann hefur bakað sín eigin brauð í tuttugu ár.
girnilegt Möndlu-hunangskex, jólaís og og plómusósa. Mynd/Anton Brink
möndlu-hunangskex
60 g sykur
60 g púðursykur
100 g smjör
100 ml rjómi
3 msk. hunang
1/2 tsk. kanill
1/2 tsk. vanilludropar
200 g heflaðar möndlur (má líka
blanda með heslihnetum)
150 g rjómasúkkulaði, brætt
Hitið allt nema möndlurnar að suðu
í stórum potti og látið krauma í 5
mínútur. Bætið svo möndlunum
við og látið sjóða í 5 mínútur til við-
bótar. Hrærið í af og til.
Dreifið möndlumassanum jafnt
á bökunarpappír á ofnskúffu og
bakið við 200°C neðarlega í ofninum
í um 10 mínútur eða þar til röndin
byrjar að vera brún. Hvolfið, takið
bökunarpappírinn af og látið kólna
aðeins áður en súkkulaðinu er dreift
jafn yfir. Þegar platan er orðin köld
má skera hana í bita, t.d. þríhyrninga
eða tígla. Röndina er gott að nota í
ísinn.
jólaís með möndlu-hunangskexi
6 eggjarauður
1 dl púðursykur
4 msk. hunang
1 tsk. vanilludropar
1/2 tsk. kanill
1/2 l rjómi
50 g rjómasúkkulaði
1 bolli möndlu-hun-
angskex
Hitið hunangið
upp í um 70°C og
bræðið súkku-
laðið. Þeytið sam-
an púðursykur og
eggjarauður ásamt
vanilludropum og kanil,
hellið hunanginu saman
við í mjórri bunu og þeytið vel á
meðan þar til blandan er létt og ljós.
Léttþeytið rjómann. Blandið fyrst
súkkulaðinu, svo rjómanum var-
lega en hratt saman við eggjarauðu-
blönduna. Brytjið kexið og blandið
varlega út í. Setjið í skál og frystið
(gott er að hafa skálina ískalda, og
hræra svo á hálftíma fresti 5 sinnum;
þá verður ísinn mýkri en það er ekki
nauðsynlegt).
Plómusósa
6 plómur
3 msk. hrásykur
1/2 kanilstöng
1 negulnagli
1 kardi-
mommufræ
3 matskeiðar
púrtvín (það
má líka nota
Ribena)
1 appelsínusneið og
safi úr einni appelsínu
Sjóðið allt saman í u. þ. b. 7 mín.
Sjávarbarinn
Grandagarði 9
sjavarbarinn.is
517 3131
Skötuhlaðborðið vinsæla er á Sjávarbarnum
við Granda garð alla daga fram að jólum, jafnt
í hádeginu sem á kvöld in og allan daginn á
Þorláksmessu og dagana á undan.
SKÖTUHLAÐBORÐ
SJÁVARBARSINS
Missterk skata – Saltfiskur – Siginn fiskur
Skötustappa – Plokkfiskur – Fiskibollur
Síldarréttir – Sviðasulta – Fjölbreytt meðlæti
2.900 KR. Á MANN
SKÖTUHLAÐBORÐ
FRAM AÐ JÓLUM
900 kr. afsláttur
af skötuhlað-
borðinu
9.-20. desember,
aðeins 2.000 kr.
á mann.
Klipptu miðann
út og hafðu
hann með þér.
Gildir ekki
21-22. des. og á
Þorláksmessu.
AFSLÁTT AR
MIÐI
Allt um skötuhlaðborðið á sjavarbarinn.is og á Facebook
Nýbýlavegi 8 í Portinu 200 Kópavogur
Tímalaus hönnun Lífstílsvörur winstonliving.is
GRÍN, HASAR OG RÓMANTÍK
Á BÍÓSTÖÐINNI
Bíóstöðin er hluti af Skemmtipakkanum þar sem boðið er upp
á kvikmyndir allan sólarhringinn. Með því að greiða 1.990 kr.
aukalega færðu endalaust tal og 1 GB í GSM.
365.is | Sími 1817
BÍÓSTÖÐ
IN
ER Í SKEM
MTI-
PAKKAN
UM
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
B
B
-D
8
3
0
1
7
B
B
-D
6
F
4
1
7
B
B
-D
5
B
8
1
7
B
B
-D
4
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K