Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 30
Fólk| matur Ég hef alltaf verið áhugasamur um matargerð. Við erum fjórir bræðurnir og því voru fimm karlmenn á heimilinu á móti mömmu sem hafði lítinn áhuga á matreiðslu. Við strákarnir sáum mikið til um eldamennskuna og sér í lagi ég,“ segir Martin en meðan önnur börn lásu kvöldsögur las hann mat- reiðslubækur. Martin er framhaldsskólakennari í Verslunarskóla Íslands. Hann er þýskur en kom til Íslands fyrst fyrir 23 árum þar sem hann kynntist konu sinni. „Við bjuggum lengi í Þýskalandi en fluttum til Íslands aftur fyrir tíu árum.“ Martin þykir skemmtilegast að elda ítalskan mat en brauðbakstur er einnig mjög fyrirferðarmikill. „Ég baka brauð af öllu tagi, tvisvar til þrisvar í viku og hef gert í tuttugu ár.“ mismunandi jólahefðir Martin segir þýskar jólahefðir töluvert frábrugðnar þeim íslensku. „Matur skiptir mun minna máli í Þýska- landi um jólin. Heima hjá mér var til dæmis kartöflu- salat og pylsur. Þá er lögð meiri áhersla á helgihald, samverustundir, að hittast og syngja eða fara á tón- leika,“ segir Martin sem vill gjarnan blanda saman íslenskum og þýskum siðum. „Mér finnst líka frábært að fara í fín föt og vera með sérstakan mat á jólunum, vera með hangikjöt, appelsín, jólaöl og laufabrauð.“ Martin syngur með Mótettukór Hallgrímskirkju og er því ávallt upptekinn við messusöng klukkan sex á aðfangadag og öll fjölskyldan með honum. Þess vegna hefur orðið að hefð að borða raclette á að- fangadag. „Þá höfum við allt hráefnið tilbúið í skálum og getum sest beint til borðs þegar við komum úr messunni.“ ný útfærsla á klassískum ís Í eftirrétt hefur iðulega verið boðið upp á toblerone-ís en dálítil breyting verður á í ár. „Ég prófaði að útbúa þýskar möndlu-hunangskökur og notaði þær í ísinn. Það kom mjög vel út og ísinn fékk smá kanilkeim. Með þessu útbjó ég plómusósu en sýran í sósunni passar mjög vel við sætuna í ísnum.“ Þessi tilraun mæltist svo vel fyrir hjá fjölskyldunni að ákveðið var að hafa ísinn í eftirrétt á aðfangadag.n solveig@365.is jólaís með möndlu- hunangskexi eftirrÉttur Martin Kollmar prófaði nýja útfærslu á toblerone-ís sem ávallt hefur verið á borðum á heimili hans á aðfangadag. Hann útbjó þýskar möndlu-hunangskökur og notaði í ísinn. Að auki bjó hann til plómusósu. matgæðingur Martin hefur haft áhuga á eldamennsku frá unga aldri. Hann hefur bakað sín eigin brauð í tuttugu ár. girnilegt Möndlu-hunangskex, jólaís og og plómusósa. Mynd/Anton Brink möndlu-hunangskex 60 g sykur 60 g púðursykur 100 g smjör 100 ml rjómi 3 msk. hunang 1/2 tsk. kanill 1/2 tsk. vanilludropar 200 g heflaðar möndlur (má líka blanda með heslihnetum) 150 g rjómasúkkulaði, brætt Hitið allt nema möndlurnar að suðu í stórum potti og látið krauma í 5 mínútur. Bætið svo möndlunum við og látið sjóða í 5 mínútur til við- bótar. Hrærið í af og til. Dreifið möndlumassanum jafnt á bökunarpappír á ofnskúffu og bakið við 200°C neðarlega í ofninum í um 10 mínútur eða þar til röndin byrjar að vera brún. Hvolfið, takið bökunarpappírinn af og látið kólna aðeins áður en súkkulaðinu er dreift jafn yfir. Þegar platan er orðin köld má skera hana í bita, t.d. þríhyrninga eða tígla. Röndina er gott að nota í ísinn. jólaís með möndlu-hunangskexi 6 eggjarauður 1 dl púðursykur 4 msk. hunang 1 tsk. vanilludropar 1/2 tsk. kanill 1/2 l rjómi 50 g rjómasúkkulaði 1 bolli möndlu-hun- angskex Hitið hunangið upp í um 70°C og bræðið súkku- laðið. Þeytið sam- an púðursykur og eggjarauður ásamt vanilludropum og kanil, hellið hunanginu saman við í mjórri bunu og þeytið vel á meðan þar til blandan er létt og ljós. Léttþeytið rjómann. Blandið fyrst súkkulaðinu, svo rjómanum var- lega en hratt saman við eggjarauðu- blönduna. Brytjið kexið og blandið varlega út í. Setjið í skál og frystið (gott er að hafa skálina ískalda, og hræra svo á hálftíma fresti 5 sinnum; þá verður ísinn mýkri en það er ekki nauðsynlegt). Plómusósa 6 plómur 3 msk. hrásykur 1/2 kanilstöng 1 negulnagli 1 kardi- mommufræ 3 matskeiðar púrtvín (það má líka nota Ribena) 1 appelsínusneið og safi úr einni appelsínu Sjóðið allt saman í u. þ. b. 7 mín. Sjávarbarinn Grandagarði 9 sjavarbarinn.is 517 3131 Skötuhlaðborðið vinsæla er á Sjávarbarnum við Granda garð alla daga fram að jólum, jafnt í hádeginu sem á kvöld in og allan daginn á Þorláksmessu og dagana á undan. SKÖTUHLAÐBORÐ SJÁVARBARSINS Missterk skata – Saltfiskur – Siginn fiskur Skötustappa – Plokkfiskur – Fiskibollur Síldarréttir – Sviðasulta – Fjölbreytt meðlæti 2.900 KR. Á MANN SKÖTUHLAÐBORÐ FRAM AÐ JÓLUM 900 kr. afsláttur af skötuhlað- borðinu 9.-20. desember, aðeins 2.000 kr. á mann. Klipptu miðann út og hafðu hann með þér. Gildir ekki 21-22. des. og á Þorláksmessu. AFSLÁTT AR­ MIÐI Allt um skötuhlaðborðið á sjavarbarinn.is og á Facebook Nýbýlavegi 8 í Portinu 200 Kópavogur Tímalaus hönnun Lífstílsvörur winstonliving.is GRÍN, HASAR OG RÓMANTÍK Á BÍÓSTÖÐINNI Bíóstöðin er hluti af Skemmtipakkanum þar sem boðið er upp á kvikmyndir allan sólarhringinn. Með því að greiða 1.990 kr. aukalega færðu endalaust tal og 1 GB í GSM. 365.is | Sími 1817 BÍÓSTÖÐ IN ER Í SKEM MTI- PAKKAN UM 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -D 8 3 0 1 7 B B -D 6 F 4 1 7 B B -D 5 B 8 1 7 B B -D 4 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.