Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2011, Page 16
16 | Erlent 4. júlí 2011 Mánudagur
Dominique Strauss-Kahn gæti snúið aftur í frönsk stjórnmál:
Forsetaframboð enn hugsanlegt
Dominique Strauss-Kahn gæti snú-
ið aftur í frönsk stjórnmál verði hann
sýknaður af ákærum um kynferðis-
lega áreitni og tilraun til nauðgunar.
Könnun í Frakklandi sýndi að 49 pró-
sent aðspurðra vildu sjá hann aftur í
stjórnmálum og gæti Strauss-Kahn
jafnvel ógnað Sarkozy Frakklands-
forseta.
Endurkoma Strauss-Kahn myndi
setja allt á annan endann í Sósíal-
istaflokknum í Frakklandi en áður
en hótelþernumálið kom upp þótti
hann langlíklegastur til að hljóta til-
nefningu Sósíalistaflokksins sem
frambjóðandi í forsetakosningun-
um 2012. Eftir málið hafi flokkurinn
gert ráð fyrir því að hann væri úr leik.
Frestur til að bjóða sig fram í forvali
flokksins er til 13. júlí en næsta yfir-
heyrsla yfir Strauss-Kahn á að vera
18. júlí. François Hollande, fram-
bjóðandi sem þykir sigurstranglegur,
sagði að það væri ekki vandamál fyrir
sig að lengja frestinn fram í ágúst til
að gera Strauss-Kahn kleift að bjóða
sig fram ef ákærur gegn honum yrðu
dregnar til baka.
Jafnvel þótt ákærurnar gegn
Strauss-Kahn standi gæti hann notið
töluverðs stuðnings á meðal Frakka
sem myndu álíta hann fórnarlamb
pólitískrar aðfarar og jafnvel písl-
arvott. Hins vegar getur hann ekki
snúið aftur og látið sem ekkert hafi
í skorist því ákveðið orðspor mun
fylgja honum enda þykir Strauss-
Kahn alræmdur í hegðun sinni gagn-
vart konum og hefur áður komið sér í
vandræði af þeim sökum.
Hvernig sem fer í máli Strauss-
Kahns er þó ljóst að ákveðinni bann-
helgi hefur verið létt af umræðu um
kynferðisbrotamál franskra stjórn-
málamanna og má ætla að kynferð-
isleg áreitni verður ekki litin jafn-
léttvægum augum og áður í franskri
orðræðu.
C
asey Anthony, 25 ára gömul
kona frá Orlando, ákvað að
bera ekki vitni í máli á hend-
ur sér en hún er ákærð fyr-
ir að hafa myrt tveggja ára
gamla dóttur sína Caylee. Casey hef-
ur lýst yfir sakleysi sínu og ber við að
barnið hafi drukknað af slysförum.
Málflutningi er nú lokið og hefur
málið verið lagt fyrir kviðdóm. Sak-
sóknarar fara fram á dauðarefsingu
verði Casey fundin sek.
Lík barns fannst í skógi eftir
fimm mánaða leit
Það var 15. júlí 2008 sem Cindy Anth-
ony, móðir Casey, hringdi í neyðar-
línuna og taldi að Caylee hefði verið
rænt en þá hafði ekki sést til hennar
í mánuð. Mikil leit var gerð í kjölfarið
og var það svo loks í desember það
ár sem líkamsleifar hennar fundust
í skógi nálægt heimili þeirra. Lím-
band var þá enn fyrir munn Caylee
og vöknuðu þá upp grunsemdir um
að hún hefði verið myrt.
Saksóknarar halda því fram að
Anthony hafi svæft dótturina með
klóróformi og límt fyrir öndunar-
færi hennar. Hún hafi komið líkinu
fyrir í skottinu á bílnum og hent því
svo í skóginn nokkrum dögum síð-
ar. Margir kvörtuðu yfir undarlegri
lykt sem kom úr skottinu á bíln-
um skömmu eftir að hvarf Caylee
en Cindy sagði hins vegar að skott-
ið hefði verið fullt af rusli sem ætti
að fara með á haugana. Dómarinn í
málinu varð þó ekki við beiðni nokk-
urra einstaklinga sem vildu tjá sig
um lyktina fyrir réttinum.
Hvorki verjandi né saksóknarar
hafa þótt sannfærandi
Lögfræðispekingar vestra eru sam-
mála um að verjandi Casey, Jóse Baez,
hafi ekki staðið sig vel við vörn henn-
ar. Hann þykir hafa fullyrt of mikið í
opnunarávarpi sínu og hafi ekki getað
sýnt nægilega vel fram á að fullyrðing-
arnar stæðust nánari skoðun. Vörnin
fólst í því að Caylee hefði drukknað
af slysförum í laug fjölskyldunnar og
faðir hennar, George Anthony sem
áður á að hafa misnotað hana kyn-
ferðislega, hafi vitað um drukknunina
og hjálpað til við að breiða yfir líkið.
Casey hélt því fram að hún og George
hefðu farið yfir um og ákveðið að fela
líkið en George neitar þeirri frásögn
hins vegar. Þá sagði Cindy fyrir rétti
að hún hefði leitað uppi klóróform á
Google í því skyni að svæfa hundinn
sem var orðinn veikur.
Baez þykir ekki hafa verið trú-
verðugur í vörninni og ekki sannað
mál sitt nógu vel. Á hinn bóginn þyk-
ir ákæruvaldið ekki hafa sýnt nægi-
lega vel fram á að Casey hafi myrt
dóttur sína og Baez hefði getað notað
það betur í vörninni. Þá hefur Baez
kvartað yfr því að saksóknarar væru
að leggja fram ný gögn eftir að hann
lauk máli sínu.
Afinn skrifaði sjálfsmorðsbréf
George reyndi að fyrirfara sér
skömmu eftir að lík Caylee fannst og
skrifaði sjálfsmorðsbréf til fjölskyld-
unnar. „Það hefði átt að vera ég sem
yfirgaf þessa jörð en ekki hún,“ skrif-
aði George í mikilli sorg yfir andláti
Caylee. „Ég mun sjá um Caylee þegar
ég kemst (vonandi) til Guðs“
Bréfinu var varpað á skjá til að
kviðdómendur gætu lesið það en
George og kona hans Cindy viku hins
vegar úr réttarsal á meðan bréfið var
lesið upp. Saksóknarar notuðu bréfið
máli sínu til stuðnings og sögðu það
sýna fram á að George hefði ekki vit-
að neitt um andlát Caylee.
Casey Anthony Fylgist með lokaræðu saksóknara.
Casey Anthony Og dóttirin Caylee á góðri
stundu.
Casey neitaði
að bera vitni
n Talin hafa svæft barnið með klóróformi og límt fyrir vitin n Segir
barnið hafa drukknað n Afinn reyndi að fremja sjálfsmorð
Dominique Strauss-Kahn Gæti mögulega snúið aftur í frönsk stjórnmál.
Olía í Yellow-
stone-á
Olíulögn fyrirtækisins ExxonMo-
bil rofnaði með þeim afleiðingum
að mikil olía rann í ána Yellow-
stone í Montana-ríki í Bandaríkj-
unum. Áætlað er að allt að 159 þús-
und lítrar af olíu hafi lekið og þurfti
um tíma að rýma íbúasvæði nálægt
mengunarslysinu en íbúar fengu þó
að snúa aftur fljótlega. Ríkisstjóri
Montana sagði að þeir sem ábyrgir
væru myndu sjá um að hreinsa ána
en Exxon hefur heitið rannsókn á
slysinu.
Slysið þykir koma á versta tíma
árs en áin er í vexti og erfiðara fyrir
vikið að gera nokkuð í málinu. Óttast
er að olían hafi áhrif á líf fiska í ánni.
Þá er ekki vitað hve langt olían mun
ná en engar stíflur eru í ánni þar til
hún rennur í Missouri-á
Flokkur
Shinawatra
með stórsigur
Yingluck Shinawatra verður fyrsti
kvenkyns forsætisráðherra Taílands
eftir að flokkur hennar sigraði í þing-
kosningum í Taílandi. Abhisit Vejja-
jiva, forsætisráðherra hefur viður-
kennt ósigur.
Shinawatra er systir Thaksins
Shinawatra sem steypt var af stóli
sem forsætisráðherra árið 2006
þegar herinn tók völdin í landinu.
Thaksin fór svo sjálfur í útlegð 2008
eftir að hafa verið ákærður fyrir spill-
ingu og býr nú í Dúbaí.
Mikil spenna hefur ríkt í landinu
síðan þá og komið til mannskæðra
átaka á milli hersins og stuðnings-
manna Thaksins.
Bæði Yingluck og Abhisit vonuð-
ust til að úrslit kosninganna myndu
leiða til sátta í landinu og sagði Abh-
isit flokk sinn tilbúinn til að vera í
stjórnarandstöðu
Þúsundir
dauðra rottna
Hundruð þúsunda dauðra rottna
hafa fundist dauðar í Kaupmanna-
höfn eftir að flæddi yfir götur í úr-
hellisrigningu á laugardaginn. Rott-
urnar drukknuðu eftir að vatn flæddi
yfir þær í skólpkerfinu þar sem þær
hafast við en þó tókst sumum þeirra
að finna sér leið út úr skólpkerfinu
í gegnum klósett í íbúðarhúsum og
bjargast þannig. Skólpvatn hefur
flætt í höfnina við Kaupmannahöfn
og hefur hafnarböðunum, vinsælum
sundstöðum í höfninni, verið lokað.
Björn Reynir Halldórsson
blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is