Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Síða 4
4 | Fréttir 5. september 2011 Mánudagur Fyrrverandi eiginkona stefnir Karli Wernerssyni: Takast á fyrir dómstólum Karl Wernersson, fyrrverandi eig- andi Milestone, og Sigríður Jóns- dóttir, fyrrverandi eiginkona hans, takast á fyrir dómstólum um þessar mundir. Sigríður hefur stefnt fyrr- verandi eiginmanni sínum. Fyr- irtaka í skuldamáli Sigríðar gegn Karli, fór fram í Héraðsdómi Reykja- víkur síðastliðinn föstudag. Hjónin skildu árið 2004 og sam- kvæmt heimildum DV gerðu þau samninga sín á milli við skilnaðinn sem kváðu á um skiptingu eigna þeirra og líklegt er að samningarn- ir hafi náð nokkur ár fram í tímann. Hugsanlegt er að Karl hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Sigríði eða að forsendur samninganna sem þau gerðu sín á milli séu brostnar og því þurfi að endurmeta þá og að umrætt dóms- mál sé höfðað vegna brota á þessum samningum. Við fyrirtökuna lagði Þórður Bogason, lögmaður Sigríðar, fram matsgerð og sagði skjólstæðing sinn ekki sjá ástæðu til að breyta kröfugerð í málinu. Matsmenn voru kvaddir til í héraðsdómi þann 8. apríl og má nánast fullyrða að til- gangur þeirra hafi verið endurmeta einhverjar eignir sem komu til skiptanna við skilnað Karls og Sig- ríðar á sínum tíma. Matsgerðin sem lögð var fram er því væntanlega nið- urstaða þeirrar vinnu. DV greindi frá því í vor að með- al þess sem var hluti af skilnaðar- samningi þeirra hjóna var að Karl átti að tryggja Sigríði nokkrar flug- ferðir á ári með einkaþotu, sam- kvæmt heimildum blaðsins. Þá herma sömu heimildir að meðal eigna í sameiginlegu búi þeirra hafi verið íbúð í borginni Lucca í Tosk- ana á Ítalíu. Ólafur Eiríksson, lögmaður Karls, óskaði eftir fresti til 6. október næstkomandi til að kynna sér ný gögn í málinu, en hvorki Sigríður né Karl voru viðstödd fyrirtökuna. solrun@dv.is Karli stefnt Fyrirtaka í málinu fór fram síðastliðinn föstudag. Bauhaus opnar á Íslandi: Bauhaus fylgist með keppinautum Nokkur titringur er á byggingavöru- markaðnum eftir fréttir í síðustu viku um að verslunarkeðjan Bau- haus hafi í hyggju að opna versl- un sína á næstunni. Líkt og flestir þekkja á Bauhaus 20 þúsund fer- metra húsnæði undir Úlfarsfelli sem byggt var fyrir bankahrunið. Hætt var við opnun verslunarinnar vegna hrunsins á Íslandi en nú telja for- svarsmenn Bauhaus að rétti tíminn gæti verið til að fara í samkeppni við BYKO og Húsasmiðjuna. Fréttablaðið greindi frá því á mið- vikudaginn að Mads Jørgensen, for- stjóri Bauhaus á Norðurlöndunum, hefði verið staddur hérlendis fyrir stuttu ásamt Kenn Pedersen, sölu- og markaðsstjóra Bauhaus á Norð- urlöndunum. Greindi blaðið frá því að þeir hefðu verið hér til að meta stöðuna í hagkerfinu og hafi upp frá því skoðað opnun verslunar Bau- haus hérlendis á næstunni. Samkvæmt heimildum DV sást til þeirra Mads Jørgensen og Kenns Pedersen í verslunum Húsasmiðj- unnar og BYKO. Segir heimildar- maður DV að þeir hafi eiginlega litið út fyrir að vera að njósna í verslun- unum. Þeir hafi verið með bílstjóra sem hafi ekið þeim á milli verslana. Í samtali við DV segir Grethe Juhl, aðstoðarmaður Mads Jørgen- sen að forsvarsmenn Bauhaus hafi komið hingað til lands til að kanna aðstæður. Hluti af því hafi verið að skoða önnur fyrirtæki sem selja byggingavörur. „Við heimsækjum margar búðir á Íslandi til að meta stöðuna. Öðruvísi er ekki hægt að greina markaðinn. Það gerum við líka hérna í Danmörku sem dæmi til að meta stöðu fyrirtækisins,“ segir Grethe Juhl. „Það er ekki búið að taka neina ákvörðun varðandi opnun á Íslandi. Við höfum verið í heimsókn á Ís- landi og þangað förum við nokkuð oft. Höfum við verið að meta stöð- una og teljum að nú sé útlit fyrir að stöðugleiki sé að komast á í efna- hagsmálum á Íslandi,“ segir hún. Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu 16 lífeyrissjóða, er eigandi Húsasmiðjunnar í dag. Hefur bygg- ingavörufyrirtækið verið sett í sölu- ferli. Er fyrirtækjaráðgjöf Lands- bankans ætlað að sjá um söluferlið og gefst fjárfestum kostur á að bjóða í fyrirtækið til 29. september. Sam- kvæmt heimildum DV er talið að Framtakssjóðurinn muni þurfa að bókfæra töluvert mikið tap vegna sölu Húsasmiðjunnar. Rekstur fyrir- tækisins dróst verulega saman við bankahrunið enda má segja að framkvæmdir á fasteignamarkaði hafi nánast verið við frostmark í meira en tvö ár. Heimildarmaður sem DV ræddi við segir að það sem sé helst að sliga Húsasmiðjuna um þessar mund- ir, auk lítillar sölu, séu leigusamn- ingar vegna verslana fyrirtækisins víðs vegar um landið. Húsasmiðj- an er með leigusamninga við Eik Fasteignafélag en þriðjungur af leigutekjum Eikar koma frá bygg- ingavörufyrirtækinu. Þrátt fyrir að fasteignafélagið hafi veitt tíma- bundna leigulækkun árið 2009 sem að hluta til var tengd árangri Húsa- smiðjunnar á næstu árum er talið að leigan sé enn of há. Umræddir leigu- samningar gætu komið í veg fyrir áhuga fjárfesta á að kaupa Húsa- smiðjuna. E ftir tæplega fjögurra mán- aða frí kom þing aftur sam- an á fimmtudaginn, eða þann 1. september. Dag- inn eftir tilkynnti Þórunn Sveinbjarnardóttir félögum sínum í þingflokki Samfylkingarinnar að hún ætlaði að láta af störfum sem þingmaður og fara í nám. Þórunn fór fyrst á þing árið 1999 og var umhverfisráðherra 2007– 2009. Líkt og lög gera ráð fyrir verð- ur Þórunn á fullum launum út mánuðinn. Frá og með 1. október mun Þórunn svo fá biðlaun í sex mánuði, jafnhá þingfararkaupi eða 520.000 krónur á mánuði, þar sem hún hefur setið lengur en tvö kjör- tímabil. Aðrir fráfarandi þingmenn fá biðlaun í þrjá mánuði. Einnig eiga þeir ráðherrar sem hafa starfað samfellt í eitt ár eða lengur rétt á biðlaunum jafnháum ráðherralaunum í sex mánuði láti þeir af störfum. Á kafi í nefndarstörfum Nefndarstörfum Alþingis lauk 26. maí en eldhúsumræður voru þann 8. júní samkvæmt áætlun og mörk- uðu upphaf sumarsins fyrir flesta þingmenn. Helgi Bernódusson seg- ir það hins vegar útbreiddan mis- skilning að starf þingmanna fari aðeins fram í þingsölum og efast um að Þórunn hafi fengið langt frí í sumar. „Hún er búin að vera á kafi í nefndarstörfum og skipulagningu þinghalds frá því í byrjun ágúst. Hún kom einnig að frágangi þing- mála í sumar og var aðalmanneskj- an í sambandi við þingsköpin,“ seg- ir Helgi. Þórunn var í félags- og trygg- ingamálanefnd, kjörbréfanefnd, heilbrigðisnefnd og þingskapa- nefnd auk þess sem hún var í Ís- landsdeild þingmannaráðstefn- unnar um norðurskautsmál. Hún var einnig þingflokksformaður Samfylkingarinnar og fékk fyrir það fimmtán prósenta álag á þingfarar- kaupið, en slíkar greiðslur falla nið- ur nú þegar hún lætur af störfum. Endanleg ákvörðun Líklegast hefur Þórunn vitað það í talsverðan tíma að hún væri á leið í nám, þar sem umsóknarfrestur í Háskóla Íslands rann út þann 15. apríl fyrir framhaldsnám. Þórunn er stjórnmálafræðingur að mennt og lauk námi við Háskóla Íslands árið 1989 og Johns Hopkins Univer- sity, Paul H. Nitze School of Adv- anced International Studies 1990. Hún fer nú í siðfræði. Þórunn vildi ekki tjá sig um mál- ið er blaðamaður ræddi við hana á sunnudagskvöld en játti því að hún ætlaði sér að þiggja biðlaun og sagði að aðrir yrðu að meta það hvort heppilegra hefði verið að hætta fyrir frí. „Ég ætla ekki að svara þessum spurningum. Hvern- ig ég ráðstafa mínu einkalífi er mitt einkamál,“ sagði Þórunn um leið og hún baðst undan viðtali. Vísaði hún í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér á föstudag þar sem segir meðal annars: „Ég held áfram pólitísku starfi í þágu kvenfrels- is, umhverfisverndar og jafnaðar- stefnu innan Samfylkingarinnar en ákvörðun mín um að láta af þing- mennsku eftir hafa fjórum sinnum hlotið kosningu er endanleg og tek- in eftir vandlega íhugun.“ Tekur sér laun í siðfræðinámi n Þórunn Sveinbjarnardóttir heldur launum frá ríkinu næstu sjö mánuðina n Hún kveður stjórnmálin með hálfa milljón á mánuði í siðfræðinámi Getur unað sátt við sitt Þórunn Sveinbjarnardóttir lætur af störfum eftir áralangan stjórnmálaferil og fær full laun næstu sex mánuði. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is Ef Þórunn væri á námslánum Þá hefði hún mun minna á milli handanna en sem fyrrverandi alþingismaður. Á heimasíðu Lánasjóðs íslenskra náms- manna er hægt að reikna út hversu há lán hægt er að fá ef til stendur að hefja nám. Ef miðað er við að Þórunn hafi starfað síðustu tólf mánuði á þeim launum sem hún fékk á þingi, eða 520.000 krónum á mánuði, sé einstæð með eitt barn og ætli sér í fullt nám gæti hún fengið námslán upp á 1.683.660 kr. Það gerir 841.830 krónur á önn, eða 210.457 kr. á mánuði. Að auki gæti hún líka fengið bókastyrk upp á 48.000 krónur á ári, eða um 24.000 krónur á önn. En þar sem hún er þingmaður fær hún biðlaun frá Alþingi sem samsvara þingfarar- kaupi eða 520.000 kr. á mánuði. Og af því að hún hefur starfað lengur en í tvö kjörtímabil fær hún biðlaun í sex mánuði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.