Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Side 6
6 | Fréttir 5. september 2011 Mánudagur Frístundakor t Ástvaldur Traustason skólastjóri Tónheima Upplýsingar og skráning á tonheimar.is og í síma 846 8888 Haustönn hefst 12. september Tónheimar - Síðumúla 8 - tonheimar@tonheimar.is Píanó eftir eyranu Djasspíanó (kennari Agnar Már Magnússon) Ukulele (kennari Svavar Knútur) Kassagítar/partýgítar (kennari Svavar Knútur) Rafmagnsgítar (kennari Tóti í Agent Fresco) Hjá Tónheimum er boðið upp á tónlistarnám fyrir alla aldurshópa sniðið að þörfum og áhugasviði hvers og eins. Láttu drauminn rætast og lærðu að spila þín uppáhaldslög eftir eyranu. Allir velkomnir! Tónlistarnám fyrir þig blús djass sönglögpopp H ann keypti upp jarðirnar og þar með veiðiréttind- in og fékk því yfirráð yfir þeim,“ segir Gunnar Jak- ob Óskarsson, formaður Stangaveiðifélags Keflavíkur og vís- ar þar til svissneska auðkýfingsins Rudolfs Lamprecht. „Veiðiréttindin sem við vorum með á leigu, fóru út um gluggann því þegar hann eign- aðist þau þá vildi hann ekki endur- nýja samninginn við okkur.“ Árið 2003 keypti Lamprecht allar jarð- irnar sem liggja að Heiðarvatni í Mýrdal og silungs- og laxveiði- ánni Vatnsá sem rennur úr vatn- inu í Kerlingadalsá. Árið 2009 bætti hann svo um betur og keypti tvær jarðir í Geithellnadal í Álftafirði fyr- ir austan. Húsið flutt af jörðinni Stangaveiðifélag Keflavíkur átti stórt veiðihús á jörðinni Stóru Heiði við Heiðarvatn um árabil og leigði félagið veiðiréttindi af þeim land- eigendum sem áttu jörðina á und- an Lamprecht. Veiðihús stanga- veiðifélagsins hefur staðið ónotað á jörðinni frá árinu 2003. „Þá var okk- ar veru lokið þarna og okkar veiði. Þá var hann kominn með þetta allt saman,“ segir Gunnar. Stangaveiði- félagið stendur nú í stórræðum við að flytja húsið af jörðinni alla leið norður að Vestur-Hóp en Gunn- ar segir þó fullkomna sátt ríkja um flutningana. Getur lokað Heiðardalnum DV fjallaði um kaup Lamprecht á landsvæðunum árið 2009 og kom þá fram að margir óttuðust að hann væri að kaupa upp íslenskar nátt- úruperlur og ætlaði sér að gera þær óaðgengilegar fyrir Íslendinga. En lögum samkvæmt er honum heim- ilt að gera það. „Hann gæti nátt- úrulega ef hann langaði til í gríni sett hlið á vegina þarna og það færi enginn inn í Heiðardalinn, hann á hann,“ segir Gunnar kankvís. Fram kom í umfjöllun DV um málið árið 2009 að samkvæmt heimildum blaðsins hefði Lamprecht greitt um hálfan milljarð íslenskra króna fyrir jarðirnar í Heiðardalnum. Margir uggandi Það er ef til vill eðlilegt að marg- ir hafi verið uggandi vegna mikilla umsvifa Lamprechts en hann lok- aði fyrir alla veiði í Heiðarvatni og Vatnsá þegar hann keypti jarðirnar árið 2003. Gunnar segist vita til að sumir hafi orðið hræddir um hvað myndi gerast í framhaldinu. Lamp- recht opnaði þó aftur fyrir veiði bæði í vatninu og ánni árið 2009. Gunnar telur þó að heimamönnum upp til hópa standi enn ekki á sama um þennan ráðahag. Lamprecht er umsvifamik- ill í fiskeldi víða um heim og hef- ur hann sleppt seiðum og ræktað fiskistofna bæði í Heiðarvatni og Vatnsá. Kauptilboð Kínverjans Eðlilegt er að setja bindandi kaup- tilboð kínverska auðkýfingsins Huangs Nubo á 72,19 prósenta hlut í jörðinni á Grímsstöðum á Fjöll- um í samhengi við kaup Rudolfs Lamprecht á jörðunum á Austur- landi. Nubo vill reisa fimm stjörnu glæsihótel með átján holu golfvelli og hestabúgarði á Grímsstöðum og mikið hefur verið verið fjallað um áhuga hans á svæðinu, bæði hér á landi og erlendis. Nubo er tilbúinn að greiða einn milljarð íslenskra króna fyrir jörðina en kauptilboð hans er háð samþykki íslenskra og kínverskra yfirvalda. Afsalar sér vatnsréttindum Margir hafa verið uggandi yfir áætl- unum Nubos líkt og yfir kaupum Lamprechts á jörðunum á Austur- og Suðausturlandi á sínum tíma. Nubo sjálfur hefur þó viljað taka af öll tvímæli um að hann ásæl- ist auðlindir Íslendinga með því að bjóða stjórnvöldum samstarfs- samning þar sem hann afsalar sér öllum vatnsréttindum á svæð- inu. Þá hefur hann einnig boðist til að friðlýsa hluta af Grímsstöð- um. Hann hefur jafnframt lýst því yfir að hann vilji vinna verkefnið í sátt og í samstarfi við stjórnvöld og sveitarstjórnina á svæðinu. Hann hefur nú þegar skrifað undir viljayfirlýsingu ásamt Bergi Elíasi Ágústssyni, sveitarstjóra í Norður- þingi, um samstarf. Auðkýfingur frá Sviss lokaði ám og vötnum n Rudolf Lamprecht keypti upp fjölda jarða á Austurlandi n Á allan Heiðardalinn n Margir uggandi yfir hugsanlegum kaupum Kínverja á Grímsstöðum á Fjöllum „Hann gæti nátt- úrulega ef hann langaði til í gríni sett hlið á vegina þarna og það færi enginn inn í Heiðar- dalinn, hann á hann. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Vík í Mýrdal Rudolf Lamprecht keypti árið 2003 allar jarðirnar sem liggja að Heiðarvatni í Mýrdal og lokaði á tímabili fyrir veiði í vatninu. Seiðarannsóknir Rudolf sést hér við seiðarannsóknir í Vatnsá. SKjÁSKot AF AnGLinG.iS. Garðurinn brast Vaxið hefur svo mikið í Múlakvísl að áin náði á laugardaginn að brjóta sig í gegnum varnargarð við ána. Raf- magnsmastur í garðinum féll í ána þegar garðurinn brast en Rafmagns- veita ríkisins (Rarik) tók rafmagnið af línunni áður en þetta gerðist. Því urðu engar rafmagnstruflanir vegna þessa. Vegagerðarmenn fylgdust grannt með Múlakvísl þar sem mikil úrkoma hefur verið á Suður- og Suð- austurlandi um helgina. Þegar það þótti ljóst að garðurinn mundi bresta var rafmagnið tekið af línunni. Rafmagnslínan yfir Múlakvísl fór þegar brúin yfir Múlakvísl eyðilagðist í sumar og í kjölfarið setti Rarik upp bráðabirgðalínu, byggða á mastri sem var sett upp í varnargarð við ána. Sá garður brast um helgina. Eftir að varnargarðurinn brast hóf áin að renna til vesturs í átt að veg- inum eins og hún gerði fyrir eyðilegg- ingu brúarinnar. Verkalýðsfélagið Framsýn á Húsa- vík hefur samþykkt að óska eftir við- ræðum við Kínverjann Huang Nubo. Eins og fjallað hefur verið um ætlar Kínverjinn að byggja fimm stjörnu lúxushótel á Grímsstöðum á Fjöllum og bíður eftir að fá leyfi til að kaupa jörðina, sem þekur 0,3 prósent af flatarmáli Íslands. Í ályktun sem samþykkt var á fundi verkalýðsfélagsins í gær eru stjórnvöld hvött til að vinna þétt og styðja við þá aðila sem vinna að því að efla atvinnu- og mannlíf í Þing- eyjarsýslum. Aðalsteinn Baldursson, formaður félagsins sagði eftir fund- inn að óskað verði eftir kynningar- fundi með Kínverjunum til þess að sjá hvað þeir ætla sér að gera. Hann telur jákvætt að fá þessa fjárfestingu í héraðið. „Í Þingeyjarsýslum er geysifögur náttúra, gott framtakssamt fólk og gnægð annarra auðlinda. Mikil und- irbúningsvinna í atvinnumálum hef- ur staðið yfir á svæðinu á vettvangi heimamanna, stjórnvalda, sveitarfé- laga og fyrirtækja sem nú virðist ætla að skila tilætluðum árangri.  Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar – stéttarfélags fagnar já- kvæðum fréttum um áhuga fram- takssamra aðila á að auka umsvif á svæðinu og nýta til þess umhverfi, hugvit og auðlindir svæðisins í sátt við umhverfið,“ segir meðal annars í ályktuninni sem fundurinn sam- þykkti. Framsýn á Húsavík fagnar hugmyndum um hótel: Vilja ræða við Huang Nubo Fagnar hugmyndunum Aðalsteinn segir jákvætt að fá fjárfestingu í héraðið. Mynd SiGtRyGGuR ARi Landsdómur kemur saman Á mánudag kemur Landsdómur saman í Þjóðmenningarhúsinu. Fjallað verður um kröfu lögmanns Geirs H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra, um að málinu gegn honum verði vísað frá. Landsdóm- ur hefur áður hafnað frávísunar- kröfu Geirs, sem byggði á því að Landsdómur hefði ekki verið rétt skipaður. Á morgun mun Lands- dómur þó hlýða á munnlegan mál- flutning og á sjónarmið saksóknara Alþingis sem vill að málið fái efnis- lega umfjöllun. Tæpt ár er liðið frá því að Alþingi samþykkti tillögu um að ákæra Geir H. Haarde með 33 atkvæðum gegn 30 en efnis- legur málflutningur hefur ekki enn farið fram og alls óvíst hvenær nið- urstaða málsins mun liggja fyrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.