Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Page 9
Fréttir | 9Mánudagur 5. september 2011 kosningabaráttan er hafin É g hef drukkið marga kaffibolla með mörgu fólki,“ segir Guð­ mundur Steingrímsson, sem vinnur um þessar mundir að stofnun nýs stjórnmálaflokks á miðju stjórnmálanna. Ástæðuna fyrir stofnun nýs flokks hefur hann sagt vera óánægju sína og hóps sem telur sig tilheyra frjálslyndari armi flokksins. Nokkrar deilur hafa verið innan Framsóknarflokksins undanfarið og hefur Sigmundur Davíð Gunn­ laugsson formaður verið gagn­ rýndur af eigin flokksmönnum fyrir að leiða flokkinn í átt til einangr­ unar og þjóðernishyggju. Af þess­ um ástæðum hafa nokkrir sagt sig úr flokknum, þeirra á meðal Andr­ és Pétursson, varaformaður Fram­ sóknarfélagsins í Kópavogi og for­ maður Evrópusamtakanna, Gestur Guðjónsson og Heiðar Lind Hans­ son, sem hefur starfað með unglið­ um. Vill ekki nefna nein nöfn Við hverja hefur Guðmundur rætt og er það rétt að hann hafi rætt við aðila úr stjórnlagaráði? „Ég hef rætt við margt fólk, bæði sem ég hef verið í samstarfi við og þá líka hópa og einstaklinga sem ég vona að eigi samleið hver með öðrum. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn en jú, á meðal þeirra sem ég hef rætt við er fólk úr stjórnlagaráði. Það fólk sem kemur til með að vera með á það sameiginlegt að hafa löngun til að gera eitthvað uppbyggilegt. Það verður bara gaman að tilkynna það þegar það gerist hverjir munu end­ anlega standa að þessu, en ég ætla ekki nefna nein nöfn umfram önn­ ur.“ En er eitthvert nafn komið á flokkinn? „Nei, það er ekkert nafn komið enn,“ segir Guðmundur. „Tja, við eigum engan verkamannaflokk, en það virðist ekki ganga í íslensk­ um kúltúr. Ég myndi gjarnan vilja tengja við frjálslyndishugsjónir sem mér finnst ekki eiga sér málsvara á Alþingi. Þar er íhaldsstefnan ráð­ andi.“ kristjana@dv.is Ræðir við fulltrúa stjórnlagaráðs Vill ekki nefna nein nöfn Guðmundur Steingrímsson segist hafa rætt við mikinn fjölda fólks en vill ekki nefna nein nöfn. Hann hefur meðal annars rætt við fulltrúa stjórnlagaráðs. F ramboð Besta flokksins var yfirlýst grínframboð og það kom mörgum á óvart þeg­ ar fylgi hans tók kipp eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis var birt. Besti flokkurinn sótti fylgi sitt til ráðvilltra kjósenda og flestir túlka úrslitin á þann veg að kjósendur hafi hegnt fjórflokknum svonefnda. Heiða Kristín Helgadóttir fram­ kvæmdastjóri Besta flokksins seg­ ir kominn tíma til þess að besta Al­ þingi. Þörf á róttækum breytingum „Við höfum rætt við alls konar fólk. Það er fullt af vel gefnu fólki á þessu landi sem vantar vettvang til að geta orðið að liði,“ segir Heiða Kristín sem segir þetta sama fólk ekki vilja tengjast fjórflokknum. „Við höfum verið að ræða þetta okkar á milli og okkur finnst þetta vera eitthvað sem við viljum stefna að. Það er þörf á róttækum breyting­ um á því hvernig við tölum saman og komumst að niðurstöðu í stjórn­ málum og ef okkar kraftar geta nýst í eitthvað uppbyggilegt og gott þá erum við alveg til í það.“ Umbótastarf hefur mistekist Heiða Kristín telur flokkunum öll­ um hafa mistekist í umbótastarfi og endurnýjun. „Þeim hefur alger­ lega mistekist og það hefur ekkert breyst í vinnulagi og hvernig stjórn­ málamenn nálgast þennan leik. Það er ennþá verið að spila hann eftir gömlu leikreglunum. Ég sé líka að margir sem komu nýir á vettvang stjórnmála líta út fyrir að vera að gef­ ast upp.“ Heiða Kristín segir meðlimi fjór­ flokksins ætla að humma af sér kröfu fólks um breytingar. „Mér finnst þeir allir halda áfram eins og ekkert hafi í skorist og þeirra taktík er að leiða hjá sér allt annað. Þeir líta fram hjá okk­ ur af ásettu ráði og þeir vona að við gefumst upp. Þetta allt saman lít ég á sem ákveðið samkomulag þeirra á milli sem hefur þann tilgang að halda hlutunum óbreyttum. En það hefur enginn gefist upp hjá okkur og það er mikið afrek út af fyrir sig.“ Barátta um völd „Á endanum snýst þetta um völd og við erum með völd sem þá lang­ ar rosalega mikið að hafa. Það er til dæmis taktík að koma því að, að við höfum ekki stjórn á fjármálum. Sjálfstæðisflokknum hefur til dæm­ is kerfisbundið tekist mjög vel upp að telja fólki hér trú um að hann sé eini flokkurinn sem getur stýrt ein­ hvers konar efnahagskerfi. Þetta er rangt. Við vorum að skila árshluta­ reikningi fyrir stuttu síðan sem kom vel út og skuldabréfaútboð fyrir tveimur vikum kom vel út fyr­ ir Reykjavíkurborg og við fengum betri vexti og kjör en ríkið. Þetta er örugg og ábyrg fjármálastjórnun en þeir eyða miklum tíma í að búa til aðra mynd fyrir borgarbúa byggða á ótta. Um ábyrgð Og nú ræðir Heiða Kristín um það sem hún telur óábyrga fjármála­ stjórnun. Það er óábyrgt að reka hagsmunabaráttu í borginni með því að lofa endalaust nýjum bygg­ ingum. Það hefur kostað okkur rosa­ lega mikið og einmitt vegna þessara loforða er uppbygging í miðbænum í algjörum ólestri. Því það er búið að lofa ofsalegu byggingarmagni. Reykjavíkurborg er búin að samn­ ingsbinda sig um marga milljarða uppbyggingu sem enginn getur staðið við. Annaðhvort þarf að fara í þessa uppbyggingu, sem fáir ráða við, eða segja nei og þá þarf Reykja­ víkurborg að reiða fram bætur.“ Heiða Kristín segir Besta flokk­ inn langa til að halda sýningu um húsin sem aldrei urðu. „Kannski sér þá fólk hvað það er sem er óábyrgt. Hverju hefur verið lofað sem ekki er hægt að framkvæma og hvað það kostar.“ kristjana@dv.is Þeir vona að við gefumst upp Ætla á þing Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Besta flokksins, segir undir- búning fyrir framboð í markvissum farvegi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.