Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 5. september 2011 Mánudagur
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
S
kuldatryggingaálag ríkis
sjóðs Íslands stendur í 273
stigum og er það einu stigi
betra en meðaltal flestra
Evrópuríkja, atvinnuleysi
hefur ekki mælst lægra síðan fyrri
hluta ársins 2008 og vöruskipta
jöfnuður er jákvæður. Meiri hag
vöxtur verður á Íslandi á þessu ári
en á evrusvæðinu og fjárlagahallinn
minni. Þessir mælikvarðar gefa vís
bendingar um að Ísland sé á upp
leið efnahagslega en þó skal minnt
á að fjárfestingar eru minnstar á Ís
landi þegar horft er til ríkja innan
Evrópska efnahagssvæðisins.
Álagið lækkar
Skuldatryggingaálag Íslands hef
ur lækkað mikið frá hruni og er
staða ríkissjóðs talsvert sterkari en
í mörgum Evrópuríkjum. Skulda
tryggingaálag ríkissjóðs Íslands
stendur nú í 273 stigum. Verst er
staðan í Grikklandi en skuldatrygg
ingaálag gríska ríkissjóðsins stend
ur í 2.247 stigum. Það er rúmlega
1.200 stigum verra en ríkissjóður
Portúgals sem stendur næstverst af
þeim Evrópuríkjum sem DV kann
aði skuldatryggingaálagið hjá.
Ásgeir Jónsson hagfræðingur
segir þetta gefa til kynna að búið sé
að gera hrunið upp að mörgu leyti
hér á landi. „Það er eiginlega búið
að gera upp málin á Íslandi,“ segir
hann. „Á Íslandi er þetta þannig að
kreppan er komin, við lentum í gíf
urlegum samdrætti en það er búið
að afskrifa tapið.“
Ásgeir segir að lægra skulda
tryggingaálag gæfi til kynna að
þetta væri að minnsta kosti álit fjár
festa á mörkuðum.
Betra en meðaltal Evrópu
DV kannaði skuldatryggingaálag
23 Evrópuríkja um mánaðamótin
síðustu. Þar kom í ljós að Svíþjóð
stendur best en skuldatrygginga
álag sænska ríkissjóðsins stendur
í 43 stigum sem er 11 stigum betra
en ríkissjóður Finnlands. Þýska
land kemur svo í þriðja sæti. Ís
land er í 14. sæti yfir þau ríki á list
anum sem standa best með tilliti til
skuldatryggingaálags. Skuldatrygg
ingaálag ríkissjóðs Íslands var til
samanburðar um 1.400 stig strax
eftir hrunið haustið 2008.
Daginn sem formlegu samstarfi
íslenska ríkisins við Alþjóðagjald
eyrissjóðinn lauk, 26. september
síðastliðinn, stóð skuldatrygginga
álag ríkisins í 278 stigum. Sama dag
var meðaltal Evrópusambandsríkj
anna 345 stig. Eins og gefur að skilja
dregur skuldatryggingaálag Portú
gals og Grikklands meðaltalið tals
vert niður.
Atvinnuleysi minnkar
Ísland stendur betur að vígi á fleiri
stöðum. Þannig hefur atvinnuleysi
ekki mælst lægra síðan fyrri hluta
ársins 2008. Atvinnuleysi mælist
nú 6,6 prósent samkvæmt tölum
frá Hagstofu Íslands, en það sam
svarar 12.363 einstaklingum. Til
samanburðar er atvinnuleysi innan
ESB um 10 prósent. Líf hefur einnig
fæst í fasteignamarkaðinn á síðustu
vikum og mánuðum en hann er þó
langt frá því að komast í þær hæð
ir sem hann var í á árunum 2005,
2006 og 2007. Viðskiptajöfnuður er
þó enn neikvæður um 58,4 millj
arða króna en vöruskiptajöfnuður
er jákvæður um 32 milljarða króna.
Meiri hagvöxtur
Í Morgunblaðinu var á föstudaginn
fjallað um fjárfestingar á Íslandi en
Ísland situr í næstneðsta sæti hvað
varðar fjárfestingar samanborið
við önnur lönd innan Evrópska
efnahagssvæðisins. Tölurnar vísa
til ársins í fyrra en svipuð staða var
uppi á teningnum árið 2009 en þá
var Ísland í neðsta sæti á listan
um. Írland var eina landið neðar
en Ísland á listanum árið 2010. Á
Íslandi námu fjárfestingarnar 10,3
prósent af vergri landsframleiðslu
en meðaltal innan ESB var 15,9
prósent.
Fleira má tína til. Fréttaveitan
Bloomberg greindi frá því á dögun
um að útlit sé fyrir 2,9 prósent hag
vexti á Íslandi á þessu ári og fjár
lagahalla upp á 1,4 prósent af vergri
landsframleiðslu. Á evrusvæðinu
verði hagvöxturinn aðeins 2 pró
sent og meðalfjárlagahalli verði 3
prósent. Ísland stendur því betur
að vígi efnahagslega en fjölmargar
Evrópuþjóðir, ef miðað er við þessa
mælikvarða.
n Skuldatryggingaálag ríkissjóðs betra en meðaltal Evrópusambandsríkjanna
n Atvinnuleysi hefur dregist saman n Fjárfesting enn með því lægsta sem gerist innan EES
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Úttekt
Skuldatryggingaálag
Ísland: 273 stig
Meðaltal Evrópu: 364 stig
Atvinnuleysi 2011
Ísland: 6,6%
ESB: Um það bil 10%
Fjárfestingar 2010
Ísland: 10,3%
Meðaltal ESB: 15,9%
Hagvöxtur 2011
Ísland: 2,9%
Evrusvæðið: 2,0%
Fjárlagahalli
Ísland: 1,4%
Evrusvæðið: 3,0%
Vöruskiptajöfnuður
+ 32 milljarðar
Viðskiptajöfnuður
- 58,4 milljarðar
Ísland á uppleið
Svíþjóð
53 stig
Finnland
64 stig
Þýskaland
75 stig
Holland
82 stig
Frakkland
154 stig
Ísland
273 stig
Austurríki
118 stig
Slóvakía
162 stig
Búlgaría
279 stig
Slóvenía
191 stig
Rússland
206 stig
Pólland
231 stig
Belgía
233 stig
Bretland
84 stig
Danmörk
99 stig
Rúmenía
320 stig
Ítalía
360 stig
Spánn
375 stig
Úkraína
555 stig
Ungverjaland
416 stig
Grikkland
2247 stigPortúgal
1.020 stig
Írland
769 stig
HEiMild: BlooMBErg, dEutScHE BAnk, cMA og EFnAHAgS- og ViðSkiptArÁðunEytið.
Skuldatryggingaálag í Evrópu
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs Íslands hefur batnað um 1.200 stig frá hruni.
Hvað er skulda-
tryggingaálag?
Skuldatryggingaálag er álag
sem leggst ofan á grunnvexti
skuldabréfs. Tilgangurinn
er að mæla hvað það kostar
fjárfesta að kaupa vátrygg-
ingu gegn því að útgefandi
viðkomandi skuldabréfs geti
ekki staðið við skuldbinding-
ar sínar. Miðað við skulda-
tryggingaálag ríkissjóðs í
dag þurfa fjárfestar því að
reiða fram um 2,7 prósent af
nafnverði skuldabréfs til að
tryggja eiganda bréfsins fyrir
greiðslufalli á næstu 5 árum.
Ísland í tölum
Spánn
Grikkland
Írland
Slóvakía
Eistland
Portúgal
Ísland
Frakkland
Slóvenía
Ítalía
Finnland
Kýpur
Belgía
Malta
Danmörk
Lúxemborg
Holland
Austurríki
Evrusvæðið (17)
ESB (27)
21,2
15,0
14,5
13,4
12,8
12,3
10,3
9,9
8,4
8,0
7,9
7,5
7,5
6,3
6,1
4,6
4,3
3,7
10,0
9,5
Atvinnuleysi
á Evrusvæðinu
Staðan betri Skuldatryggingaálag
ríkissjóðs hefur batnað um 1.200 stig frá
bankahruninu 2008. Mynd StEFÁn kArlSSon