Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Page 12
12 | Erlent 5. september 2011 Mánudagur
U
ngur brimbrettamaður um
tvítugt lést eftir að hvíthákarl
réðst á hann á fjölsóttri strönd
nálægt Cape Natural iste í
Vestur-Ástralíu á sunnudag.
Hákarlinn réðst á manninn aftan frá,
og reif hann í tvennt. Áður en árásin
átti sér stað var maðurinn að skemmta
sér í sjónum með fimm vinum sínum
á hinni vinsælu strönd Bunkers Beach.
Maðurinn var frá austurhluta Ástralíu
og var í fríi.
Kurt Morris var að snæða hádeg-
ismat með fjölskyldu sinni á Bunker
Bay-kaffihúsinu þegar hákarlinn gerði
árás. Vinir mannsins greindu Morr-
is frá því að hann hefði verið rifinn í
sundur. „Þeir sögðu að þeir hefðu ver-
ið í tveggja metra fjarlægð frá mannin-
um. Það var allt farið fyrir neðan mitti.“
sagði Morris og bætti við að þeir sem
drógu manninn á land hafi verið mjög
skelkaðir.
Gerðist um 50 metra frá landi
„Brimbrettafólk keyrði til stranda í ná-
grenninu og gerði fólki viðvart um há-
karlinn.“ segir Hamish McLeay, sem
á Bunkers Beach-kaffihúsið. „Þetta
gerðist um 50 metra frá landi. Eng-
inn ætlar aftur í sjóinn.“ Jafnframt seg-
ir hann að aragrúi af fólki hafi verið í
vatninu þegar árásin átti sér stað: „Það
voru að minnsta kosti tuttugu manns í
vatninu en það virðist sem svo að eng-
inn hafi tekið eftir hákarlinum.“ „Það
er stórt búsvæði sela í nágrenninu og
hákarlinn gæti hafa haldið að ungi
maðurinn væri selur – það hefur gerst
áður.“ bætir hann við.
Talsmaður lögreglu Graham Clif-
ford sagði að lögreglan teldi sig vita
hvert fórnarlambið væri en ekki hef-
ur verið greint frá því hvort líkið hafi
fundist. Vinir fórnarlambsins sögðu
lögreglu að maðurinn hefði dvalist í
hinu vinsæla vínhéraði Margaret Ri-
ver.
Andrúmsloftið þrungið alvöru
Enrique Hillman, eigandi brimbretta-
búðar á svæðinu, segir andrúmsloftið
hafa verið þrungið alvöru eftir slys-
ið. „Allur bærinn varð allt í einu mjög
þögull,“ sagði hann. „Allir eru að tala
um þetta. Þetta er hræðilegur atburð-
ur sem maður getur ekki náð úr huga
sér, þetta heltekur allt og alla.“ Hann
taldi einnig að hákarlinn hafi farið
inn á svæðið til að veiða sel. „Það er
búsvæði sela við hliðina á vitanum,
þar er sund þar sem selirnir dveljast,“
sagði hann og bætti við að það væri
undarlegt að hákarlinn hafi gert árás
um miðjan dag þar sem hákarlaárásir
eiga sér vanalega stað á morgnana eða
í ljósaskiptunum.
Fólk í nágrenninu sagði að þetta
væri fyrsta hákarlaárásið sem það
myndi eftir, en svæðið er vinsæll stað-
ur fyrir brimbretti og veiði. Þó sagði
fólk einnig að það væri þekkt að há-
karlar væru á þessu svæði og að svæð-
ið væri einnig hættulegt vegna sterks
útsogs.
Hvíthákarla má vanalega finna
nálægt búsvæðum sela, en þeir eru
helsta bráð hvíthákarlsins. Hvíthákarl-
inn borðar einnig höfrunga og stærri
fiska. Vegna stærðar líkama og kjafts
hákarlsins draga árásir hans menn oft
til dauða. Stundum eru fórnarlömbin
étin í heilu lagi.
n Brimbrettamaður rifinn í sundur n Átti sér stað á fjölmennri
strönd í Ástralíu n Að minnsta kosti tuttugu manns í sjónum
Bitinn í tvennt
af hvíthákarli
Þórður Ingi Jónsson
ritstjórn@dv.is
Ástralía
„Ég hélt um höfuð hans, þreif í hönd
hans og þrýsti henni upp að bringu
minni. „Þetta verður allt í lagi, við
munum sjá um þig. Það verður í lagi,“
sagði ég við hann. Mig minnir að ég
hafi sagt honum að ég elskaði hann.
Ég vona það allavega,“ sagði Gemma
Redmond, eiginkona Ians Redmond
sem varð fyrir hákarlaárás við
Seychelles-eyjar í ágúst. DV greindi frá
málinu. Maðurinn hennar hafði verið
að snorka við strönd eyjunnar Praslin í
brúðkaupsferð þeirra hjóna. Þau höfðu
verið gift í tíu daga þegar hákarl, sem
talinn er vera nautháfur, réðst á hann
og veitti honum alvarlega áverka.
Hann lést af sárum sínum.
Hákarlaárás í
brúðkaupsferð
„Enginn ætlar
aftur í sjóinn.
Hákarlar Hér má
sjá dreifingu hvíthá-
karla í heiminum.
Mynd AniMAlfActGuide.coM
Hvítháfur Það er óvanalegt
að hvíthákarlar ráðist á fólk
um miðjan dag.
Gæðahreinsun
Góð þjónusta
Þekking
Opið: mán–fim 8.00–18.00
föst 8.00–18.30
ÞVOTTAHÚS
Ein elsta starfandi efnalaug hér á landi
Obama
heimsækir
hamfara-
svæðin
Obama Bandaríkjaforseti heim-
sótti hamfarasvæðin í New Jersey á
sunnudaginn en fellibylurinn Írena
hefur valdið mikilli eyðileggingu þar.
Obama, sem ferðaðist á milli ham-
farasvæða í þyrlu, hét því að senda
aðstoð. Verstar voru aðstæðurnar í
bæjum svo sem Paterson og Wayne,
þar sem ár höfðu flætt yfir bakka
sína. Þaðan höfðu hundruð manna
neyðst til að flýja. „Þið vitið að
þetta hefði getað verið verra,“ sagði
Obama við íbúa Wayne. „En við ætt-
um ekki að vanmeta harm fólksins á
þessum svæðum, en þetta hefur haft
áhrif á mjög margar fjölskyldur.“ Í
liðinni viku lýsti Obama yfir neyðar-
ástandi í ríkinu.
Fann 17
milljónir í
bakgarðinum
Wayne Sabaj, atvinnulaus trésmið-
ur í Illinois í Bandaríkjunum, fann
í bakgarðinum sínum tvær töskur
með peningum í og nam upphæð-
in 150.000 bandaríkjadölum sem
jafngildir um 17 milljónum króna.
Sabaj var hræddur um að féð gæti
hafa komið úr bankaráni og gerði
hann því lögreglunni viðvart. Sabaj,
sem er 49 ára, gæti fengið að eiga
peningana ef enginn vitjar þeirra
innan árs, en þó segist hann ekki
ætla að gera sér neinar væntingar.
„Ég held ekki einu sinni að ég muni
fá peningana, og jafnvel þótt ég fái
þá mun ríkisstjórnin hvort sem er
taka einn þriðja,“ sagði hann. „Þetta
gæti verið aleiga einhvers, skilurðu?
Það væri ekki réttlátt ef ég tæki þá.“
bætti Sabaj við, en hann á um þessar
mundir í erfiðleikum með að finna
sér vinnu.