Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Qupperneq 14
Mjög gott
viðmót
n Lofið fær dekkjaverkstæðið hjá Bíla-
búð Benna. „Ég keypti hjá þeim dekk
undir sendibílinn minn og fékk þau á
nokkuð góðu verði. Það þurfti einnig
að skipta um ventla sem reyndist
mjög erfitt verk og seinlegt. Ég var
ekkert rukkaður um þetta auka
verk og þeir á dekkjaverkstæð-
inu voru ekkert annað en vilj-
inn til að hjálpa mér í þessu
máli. Þess vegna vil ég
lofa þá og þeirra vinnu
og framtak og mjög gott
viðmót sem ég fékk hjá
þeim,“ segir ánægður
viðskiptavinur.
Eldgamall
grautur
n Lastið að þessu sinni fær Bónus í
Holtagörðum fyrir að selja útrunninn
hafragraut. „Ég fór þangað fyrir örfá-
um dögum og keypti Heimilsgrjóna-
graut frá MS sem væri ekki í frásögur
færandi nema fyrir þær sakir að hann
rann út um miðjan júlí. Hann hefur
því legið í búðinni í á ann-
an mánuð. Það sem er
jafnvel verra er að kon-
an mín borðaði hluta
af honum áður en við
tókum eftir þessu og
hún fann ekki fyrir aldri hans
á bragðinu,“ segir viðskipta-
vinur Bónus.
14 | Neytendur 5. september 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 236,7 kr. 236,7 kr.
Algengt verð 236,4 kr. 236,4 kr.
Höfuðborgarsv. 236,2 kr. 236,2 kr.
Algengt verð 236,0 kr. 236,5 kr.
Algengt verð 238,4 kr. 236,7 kr.
Melabraut 236,5 kr. 236,5 kr.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Náttúruleg
rotvarnarefni
Grænmeti og ávextir svo sem ban-
anar, avókadó og eggaldin verða oft
fljótt óaðlaðandi og ólystug eftir að
heim er komið. Nú er komið ráð við
því en á matarkarfan.is er bent á að
auðvelt sé að búa til sitt eigið rot-
varnarefni. Svarið er C-víta mínduft.
Þar segir að C-vítamín sé fyrirtaks
andoxunarefni og hægt sé að strá
vítamíninu yfir banana og pakka
þeim inn í filmu og þá geymist þeir
mun lengur. Einnig að gott sé að
prófa sig áfram með magnið en til
að mynda sé hægt að blanda hálfri
teskeið af vítamíninu út í einn bolla
af vatni og geyma eplin í því.
n Sparakstur hefur jákvæð áhrif á budduna n Með því
að vera meðvituð um aksturslagið getum við sparað tölu-
verðan pening n DV birtir hér nokkur ráð um sparakstur
Þ
að er í rauninni frekar auð-
velt og ef við viljum tala
um einhverja heimspeki
í þessu sambandi þá má
segja að við það að stíga á
bremsuna er maður að sóa orku,“
segir Stefán Ásgrímsson hjá Félagi
íslenskra bifreiðaeigenda. DV leit-
aði til hans eftir upplýsingum um
sparakstur eða þá tækni sem hægt
er að nota við akstur til að minnka
bensíneyðsluna.
Aldrei að ofbjóða vélinni
DV hefur áður fjallað um hinar
ýmsu leiðir til að spara bensín með
því að huga að útbúnaði bílsins en
hér lýsir Stefán nokkrum atriðum
sem vert er að hafa í huga við akst-
urinn sjálfan sem draga úr elds-
neytiseyðslu. „Þetta er spurning
um að nýta dropann sem allra best
og í rauninni á maður aldrei að of-
bjóða vélinni. Það þarf ekki endilega
að vera að maður keyri hægar fyrir
vikið. Að minnsta kosti ekki í innan-
bæjarakstri“ segir Stefán.
Nýta grænar ljósbylgjur
Í fyrsta lagi nefnir Stefán að öku-
menn eigi að reyna, eftir því sem
hægt er, að nýta allar grænar ljós-
bylgjur. Með því á hann við að reyna
að lenda á grænu ljósi. „Maður á að
reyna að komast hjá því að lenda
á rauðu og reyna heldur að sigla í
gegnum þetta. Ekki gefa allt í botn
þegar græna ljósið kemur til þess
eins að þurfa að hægja á sér eða
stoppa á næstu ljósum. Það er þó
orðið mjög erfitt að spæna af stað
hér í borginni vegna mikillar um-
ferðar en því fylgir eldsneytiskostn-
aður og mengun.“
Mest nýting þegar vélunum
líður vel
Til að vélin eyði aldrei meira elds-
neyti en hún þarf má hún ekki snú-
ast mjög hratt og Stefán segir að vél-
unum líði oftast best í 1.500 til 1.800
snúningum. „Sérstaklega díselvél-
arnar. Það er voðalega notalegur
snúningur fyrir þær og á þessu bili
koma allar kúrfurnar saman og nýt-
ingin er best. Þetta gildir einnig um
bensínvélarnar en þar má miða við
1.500 til 2.000 snúninga.“
Látum vélina halda við
Hægt er að spara bensín þegar keyrt
er niður brekkur en þá skal ekki sett
í hlutlausan og bíllinn látinn renna.
Betra er að setja hann í eins háan
gír og hægt er þannig að vélin haldi
við. „Þegar vélarhemlun er í gangi
þá lokast fyrir allt eldsneyti til vél-
arinnar. Ef maður lætur hann frí-
hjóla í hlutlausum þá brennir vélin
alltaf smá eldsneyti til að halda sér í
gangi,“ segir hann. Aðspurður hvort
Gunnhildur Steinarsdóttir
gunnhildur@dv.is
Sparakstur
Þ
etta er móðgun við íslenska
neytendur. Við erum búin
að bíða eftir þessu í átta ár
en reglugerðin tók gildi 2003
í Evrópusambandin. Hagsmuna-
aðilar hafa bara náð að stoppa
þetta eina ferðina enn,“ segir
Oddný Anna Björnsdóttir, fulltrúi
framkvæmdanefndar Samtaka líf-
rænna neytenda. Þann 1. septem-
ber átti að taka gildi reglugerð um
merkingar og rekjanleika á erfða-
breyttum matvælum og fóðri en
sama dag gaf Jón Bjarnason sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra út
reglugerð þar sem gildistökunni er
frestað til 1. janúar 2012.
Þessu mótmæla Samtök líf-
rænna neytenda og Slow Food
Reykjavík en í sameiginlegri til-
kynningu frá þeim segir að með
þessu sé ráðuneytið greinilega að
verja hagsmuni örfárra fyrirtækja
sem flytji inn matvæli frá landi þar
sem neytendavernd sé fórnað fyr-
ir hagsmuni fjölþjóðafyrirtækja og
hunsi hagsmuni íslenskra neyt-
enda. „Þetta er blaut tuska í andlit
neytenda og við förum fram á að fá
ítarlegan rökstuðning ráðuneytis-
ins fyrir frestun gerðarinnar,“ segir
þar jafnframt.
Neytendasamtökin höfðu fagn-
að væntanlegri gildistöku reglu-
gerðarinnar á heimasíðu sinni en
lýstu síðar vonbrigðum sínum með
frestun hennar. „Samtökin hafa um
árabil barist fyrir því að skylt verði
að merkja erfðabreytt matvæli. Slík
merking er skylda í öllum Evrópu-
löndum en ekki í Bandaríkjunum.
Ísland hefur til þessa verið eina
landið í Evrópu sem ekki skyldar
framleiðendur til að upplýsa hvort
matvæli eru öll eða að hluta erfða-
breytt,“ segir á heimasíðu samtak-
anna.
Oddný segir að Ísland sé það
land í Evrópu sem stendur sig hvað
verst í að upplýsa neytendur um
innihald matvæla. „Við vitum ekk-
ert hvað við erum borða og eina
leiðin til að vera viss núna er að
velja lífrænt ræktað. Þetta er því
mjög mikið hagsmunamál fyrir ís-
lenska neytendur, að hafa val,“ seg-
ir Oddný.
gunnhildur@dv.is
„Blaut tuska í andlit neytenda“
n Samtök lífrænna neytenda og Slow Food Reykjavík gagnrýna ákvörðun ráðherra
Oddný Anna Björnsdóttir
Segir þetta vera mikið hagsmuna-
mál fyrir íslenska neytendur.
Svona sparar þú bensínið
1. Vertu á góðum dekkjum
Hafðu í huga að hægt er að fá hjólbarða
sem draga úr núningsmótstöðu vegar.
Minni núningsmótstaða, minni bensín-
eyðsla.
2. Hafðu réttan loftþrýsting í
hjólbörðum
Hafðu loftþrýsting í hjólbörðunum sem
næst því hámarki sem framleiðandi gefur
upp. Það dregur úr bensíneyðslu og eykur
endingu hjólbarðanna. Loftþrýstingstöflu
finnur þú undir bensínlokinu.
3. Ekki vera með aukaþunga í
bílnum
Aktu ekki með óþarfa hluti sem auka
þyngd bílsins. Hvert aukakíló í bílnum þýð-
ir aukna bensínnotkun. Forðastu að aka
um með tóma farangursgrind eða opna
glugga, það eykur verulega loftmótstöðu
og þar með bensíneyðslu og mengun. Ef
sumarfríið er búið skaltu taka niður tóma
farangursgrind eða „tengdamömmubox“
og ekki aka með opna glugga nema þörf
krefji. Slíkt eykur loftmótstöðu og þar með
bensíneyðslu og mengun.
4. Rafdrifinn búnaður
Notaðu rafdrifinn búnað í bílnum aldrei
meira en þörf krefur. Hiti í afturrúðum,
miðstöðvar og sætahitarar í framsætum
taka mjög mikinn straum. Talið er að
miðað við 100 kílómetra akstur geti mikil
notkun á rafbúnaði aukið eyðsluna um
lítra eða jafnvel meira.
5. Notaðu bílinn rétt
Skipuleggðu útréttingar. Betra er að
stoppa nokkrum sinnum í einni ferð en
fara margar stuttar ferðir. Það styttir ekna
vegalengd og eykur virkni hreinsikúta
(katalísatora). Bíllinn notar eldsneytið
best þegar hann er heitur.
6. Hafðu bílinn rétt stilltan
Mjög mikilvægt er að stilla gang bílsins.
Sá kostnaður sem því kann að fylgja skilar
sér fljótt aftur með minni bensíneyðslu og
auðvitað heilnæmara umhverfi.
7. Haltu bílnum við
Skiptu reglulega um olíu, loft- og olíusíu í
samræmi við ráðleggingar framleiðanda.
Vélin gengur léttar og slitnar minna.
Þjónustaðu bílinn í samræmi við ráð-
leggingar í eigendahandbókinni. Það er
mikilvægt til þess að halda mengun frá
bílnum í lágmarki.
8. Notaðu strætó ef mögulegt er
Minni mengun fylgir fullnýttum strætis-
vagni en ferð farþeganna sömu leið í
einkabílum – og hálftómur eða tómur
strætisvagn mengar meira en einkabíll!
9. Ekki kaupa stærri bíl en þú þarft
(ef þú ert að skipta)
Stærri bílar eyða meira eldsneyti. Veldu
frekar bíl sem er sparneytinn. Allt sem
gert er til að draga úr bensíneyðslu sparar
peninga og dregur úr mengun.
10. Deildu bíl með vinnufélögunum
Það er í raun afleit hugmynd að ferðast
alltaf einn í bíl til og frá vinnu. Ef vinnu-
félagarnir sameinast í því að keyra til
skiptis í vinnu og deila þar með bensín-
kostnaði er hægt að spara umtalsverðar
upphæðir.
10 ráð til að spara bensín
„Þetta er spurning
um að nýta drop-
ann sem allra best og í
rauninni á maður aldrei að
ofbjóða vélinni. Það þarf
ekki endilega að vera að
maður keyri hægar fyr-
ir vikið. Að minnsta kosti
ekki í innanbæjarakstri.
þetta gangi í sjálfskiptum bílum seg-
ir Stefán að svo sé. Bæði séu vélar í
dag orðnar þannig að þær haldi við
en einnig sé hægt að setja í fastan gír.
„Maður notar það sem áður hét high
eða low en er nú einn, tveir eða þrír
í sjálfskiptum bílum. Þá velur mað-
ur einfaldlega einn af þeim eftir því
hvernig brekkan er,“ útskýrir hann.