Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2011, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2011, Síða 16
E nn er ekki ljóst hvort verður af formannsslag í Sjálfstæðis­ flokknum. Hanna Birna Kristjánsdóttir, leiðtogi borgarstjórnarflokks Sjálf­ stæðisflokksins, hefur látið í veðri vaka að hún hyggist bjóða sig fram gegn Bjarna Benediktssyni, sitjandi formanni. Vikum saman hefur óviss­ an legið í loftinu en hún hikar. Fylk­ ingar innan flokksins takast á neðan­ jarðar, gráar fyrir járnum. Fyrrverandi samherjar berjast nú með öllum til­ tækum ráðum. Fræg óhróðursvél flokksins er komin í gang. DV hefur fjallað ítarlega um við­ skiptatengsl Bjarna Benediktssonar við þokkapilta útrásarinnar. Þar var um að ræða menn sem tæmdu með­ al annars bótasjóð tryggingafélagsins Sjóvár og komu því félagi í þrot. Al­ menningur á Íslandi þurfti að reiða fram milljarða króna til að rétta fé­ lagið af. Nú er komið á daginn að sér­ stakur saksóknari metur aðild Bjarna að málum ekki sem lögbrot. Hann er því saklaus í skilningi laganna en situr uppi með að hafa verið í slæm­ um félagsskap. Þá er því haldið á lofti að hann sé fæddur með silfurskeið í munni. Allt þetta mál hefur gert Bjarna erfitt fyrir á formannsstóli. Við bætist að hann er gjarn á að skipta um skoðun. Niðurstaðan er sú að efast er um Bjarna sem leiðtoga. Hanna Birna á sér enga fortíð í við­ skiptum. Andstæðingar hennar inn­ an flokksins hafi það helst fram að færa að hún og maður hennar séu í vinfengi við Þór Sigfússon, fyrrver­ andi framkvæmdastjóra Sjóvár og ábyrgðarmann bótasjóðsins. Þá er henni legið á hálsi fyrir að hafa ekki þekkingu á utanríkismálum. Þá hafa áróðursmeistarar haldið því á lofti að hún hafi lekið könnun sem sýndi yfir­ burðafylgi hennar sem formannsefn­ is. Einnig átti hún, samkvæmt rógs­ mönnum, að hafa látið leka því til DV að Bjarni væri saklaus en hefði ver­ ið yfirheyrður. Að öðru leyti virðist Hanna Birna vera vammlaus. Bjarni og bandamenn hans hafa mestan styrk í því að hafa kortlagt ítarlegar lausnir í efnahagsmálum og hafa yfirburðaþekkingu á mála­ flokknum. Þá efast enginn um að for­ maðurinn er í dag réttsýnn og með siðferðiskennd. Nánir samherjar Bjarna segja að hann sé með gull­ hjarta. Vandi hans er aðeins fortíðin sem fólk leggur á vogarskálarnar þeg­ ar kemur að vali á formanni. Hanna Birna verður að taka for­ mannsslaginn ef hún ætlar að eiga von um frekari frama innan flokks­ ins. Hún mun þola að tapa með litlum mun en hjáseta gengisfellir. Í þeim efnum mun henni ekki duga varaformannskjör. Hún er búin að gefa of mikið undir fótinn með for­ mannskjörið. Framboð hennar til for­ mennsku verður að fela í sér uppgjör milli stríðandi fylkinga. Fyrir Bjarna er nauðsynlegt að endurnýja umboð­ ið undir þeim þrýstingi sem mótfram­ boð veitir. Aðalatriðið er að stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn komi sterkur út úr kjöri á efstu mönnum og veiti umdeildri ríkisstjórn verðugt að­ hald frá hægri. Það yrði gott fyrir lýð­ ræðið. 16 | Umræða 24. október 2011 Mánudagur tryggvagötu 11, 101 reykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: kristjana guðbrandsdóttir, kristjana@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Leiðari Reynir Traustason ritstjóri skrifar Bókstaflega Meint svik forsætisráðherra n Það andar fremur köldu frá Vestfirðingum í garð Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra þessa dagana. Ástæðan er sú að Jóhanna lofaði að komið yrði á stöðu prófessors sem kenndur yrði við Jón Sigurðsson. Átti prófessorinn að hafa aðsetur fyrir vestan. Í auglýsingu Háskóla Íslands um stöðuna er vikið frá staðsetn­ ingunni og Vestfirðingar telja sig illa svikna. Þetta bætist við að Jóhann hélt um tíma að fæðingarstaður Jóns, Hrafnseyri við Arnarfjörð, væri við Dýrafjörð. Riddari í Brussel n Björn Bjarnason eftirlaunaþegi hefur undanfarið dvalist í Brussel eins og upplýst var í sandkornum. Gárungar héldu að Björn væri á styrk frá ESB að grafa undan ESB. Þetta þvertekur Björn fyrir á heimasíðu sinni og talar um lygaá­ róður. Aftur á móti viðurkennir hann að Evrópuvaktin hafi fengið styrk úr sjóðum almennings. Þeir peningar hafa væntanlega farið að hluta í að fjármagna ferð hans til Brussel þar sem hann hefur lagt til atlögu. Barátta Björns gegn Evrópusam­ bandinu vekur víða aðdáun og þykir um margt minna á riddarann Don Kíkóta og stríð hans. Mannorð Gunnars! n Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, er talinn vera náinn samherji Bjarna Benedikts- sonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Gunnar hraktist af bæjarstjórastóli í kjölfar ýmissa mála sem DV fjallaði ítarlega um. Þeir félagar náðu miklum samhljómi á fundi Sjálf­ stæðismanna í Kópavogi. Fréttatím­ inn sagði frá ávarpi Gunnars sem taldi sig og Bjarna vera fórnarlömb óvæginnar umfjöllunar DV. Í því sambandi nefndi hann mannorð sitt sem orðið hefði fyrir hnjaski líkt og hjá formanninum. Agnes fær vegtyllu n Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri við­ skipta á Morgunblaðinu, lætur af því starfi og kveður Moggann. Hann mun ganga til liðs við ráðgjafar­ fyrirtæki bróður síns. Arftaki hans mun vera er enginn annar en Agnes Bragadóttir. Hún gegndi sömu stöðu fyrr á árum en hætti af óljósum ástæðum en blaðamenn viðskipta munu ekki hafa grátið miss­ inn. Reyndar hafa mannaforráð ekki þótt sterkasta hlið Agnesar. Lítt hefur frést af fagnaðarlátum núverandi við­ skiptafréttamanna Morgunblaðsins við þessi tíðindi. Sagt er að Agnes hafi verið á hálfgerðum vergangi á ritstjórninni síðan guðfaðir hennar á blaðinu, Styrmir Gunnarsson, hvarf af vettvangi. Væntanlega er þeim vergangi nú lokið. Sandkorn S ölvi Tryggvason, bloggari og sjónvarpsmaður, birtir oft ótrúlegar sögur á blogginu sínu. Á dögunum birti hann bréf undir titlinum „Harm­ saga í Reykjavík“, sem hann sagði vera frá fjögurra barna föður og fyrrver­ andi stjórnanda hjá opinberu fyrir­ tæki. Þessi grandvari maður er sár og reiður út í „velferðarstjórn“ Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfús­ sonar. Hann þarf nefnilega að selja sig öðrum karlmönnum til að eiga fyrir salti í grautinn. Á meðan ráðherrar ríkisstjórnar­ innar rifust um það hvort kjósa ætti um Icesave eða ekki, var verið að djöflast í afturend­ anum á mér,“ útskýrir maðurinn. „Ég gerði það sem ég hélt aðeins að konur gerðu. Ég seldi blíðu mína fyrir karl­ menn. Já, ég gerðist hóra!“ A ð sögn mannsins eru þetta fyrst og fremst broddborgarar sem kaupa blíðu hans. „Þetta eru vel menntaðir menn, vel klæddir og á flottum bílum,“ segir hann. Þar með er það ljóst. Í landi Jó­ hönnu og Steingríms taka auðmenn­ irnir almúgann í afturendann, bók­ staflega. Þ að er ekki eins og maðurinn sé að fjármagna eiturlyf eða flatskjái með því að selja sig auðmönnum. „Ég var ekki að fjármagna eiturlyf eða áfengi, eða skuldir. Ég er ekki hommi, og hef aldrei stundað samlíf með karlmönn­ um. Ég var einfaldlega að reyna lifa og reyna að veita börnunum mínum mat og sjálfum mér.“ K annski er þetta allt hluti af áætl­ uninni. Það er ekki langt síðan ákveðið var að gera sölu vændis löglega. Svo eru menn skattp­ índir, gerðir atvinnulausir og settir á svívirðilega lágar bætur, þannig að þeir verða að selja auðmönnum aðgang að líkama sínum. M aðurinn sem selur sig veitir nýja sýn á ríkisstjórnina. „Þessi ríkisstjórn sem stimpl­ aði sig sem velferðarstjórn jafnaðarmanna og vinstrimanna, er aum eins og sveitti maðurinn sem djöflast aftan á mér, kastar svo í mig peningunum með lítilsvirðingu!“ segir hann. Og skórinn kreppir enn að. Hann mun þurfa að selja sig aftur á næstunni. „Þetta verð ég að að gera á næstunni því ekki lagast ástandið!“ Þung og margvísleg ábyrgð hvílir á herðum Steingríms og Jóhönnu, eins og maðurinn útskýrir. „Ég veit ekki hvort nokkur lesi þetta og hvað þá nokkur af þingmönnum þessa lands. En eitt veit ég að ég hef sagt frá broti af þeim ömurleika sem á sér stað á Ís­ landi í dag, á meðan ríkisstjórnin er að þráast við að hætta og eltast við sérduttlunga um Evrópusamband, virkjanakosti, álversframkvæmdir og fleira.“ H ver veit nema þarna úti sé svo sem einn Húsvíkingur, sem nú þarf að selja sig, vegna þess að ríkisstjórnin vildi ekki neyða Landsvirkjun til að virkja og selja orku á þeim tíma og því verði sem Alcoa vildi? Vill ríkisstjórnin frekar láta bora í Húsvíkinga en í jörðina? Seldi Sig út af jóhö u „Ég var að koma þangað í fyrsta skipti og daginn eftir að ég mæti réðst Hells Angels-gaur að mér.“ n Ómar „Swarez“ Hauksson gerði upp tímana með Quarashi í helgarviðtali. – DV „Mig langar bara alls ekki í samband. Ég er ekkert að hugsa um það.“ n kastljósstjarnan Brynja Þorgeirs- dóttir er skilin og á leið í nám. Hún er einnig að gera heimildamynd um elvu gunnarsdóttur sem glímir við versta tilfelli túrett á íslandi. – DV „Maður getur alltaf treyst því í Grapevine að textinn um Blaz, Rottweiler og íslenska hip hop-ið er alltaf eitthvað „bull- shit“.“ n Erpur Eyvindarson, Blaz roca, vill ekki að útlendingar skrifi um íslenska tónlist. – DV „Við horfum auðvitað gaum- gæfilega á þessar tölur og tökum allt svona föstum tökum.“ n Hilmar Björnsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins um dvínandi áhorf á sjónvarps- þátt tobbu Marinós sem aðra vikuna í röð kemst ekki inn á topp tíu lista Skjás eins. – Fréttablaðið „Sem unglingur missti ég alveg af ljóðum.“ n Á nýrri plötu tónlistarkonunnar Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur, Lay Low, syngur hún eigin lög við ljóð íslenskra skáldkvenna. – Fréttablaðið Voru þetta 6-í úrslit? „Nei, það fannst mér ekki. Ég er eins og grenjandi smábarn yfir þessu,“ sagði Sigurður Hlöðversson um úrslit leiks Manchester united og Manchester City sem fram fór á sunnudaginn. City-menn unnu með 6 mörkum gegn 1. Sigurður sem er ritari Stuðningsmanna- klúbbs united og var staddur á Old trafford og horfði á sína menn tapa leiknum. Spurningin Svarthöfði Hanna Birna hikar Samkvæmt bréfi til Sölva Tryggvasonar þarf ónefndur maður að selja karlmönnum líkama sinn vegna stefnu ríkisstjórnarinnar. M y N D iN E R S V ið SE T T „Efast er um Bjarna sem leiðtoga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.