Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Blaðsíða 23
Vann bug á þunglyndi n Nýtt líf söngkonunnar Írisar Hólm J á og nei. Þetta er svona ómeðvitað en ég hef verið að passa mig svolítið á því hvað ég hef verið að setja ofan í mig,“ segir söngkonan Íris Hólm um nýtt útlit sitt. Íris tók þátt í undankeppni Euro- vision-keppninnar síðasta laugardagskvöld þar sem hún söng lagið Leyndarmál. Íris geislaði á sviðinu enda hefur hún breytt um lífsstíl og tekið heilsuna föstum tökum. Hún segist þó ekki hafa nákvæma tölu á þeim kílóum sem hún hefur misst. „Ég hef ekki stigið á vigt og hef passað mig að vera ekki að einblína á það,“ segir Íris. Hún segist reyna að passa upp á mataræðið. „Ég prófaði Herbalife fyrir nokkru. Ég tek það á morgnana og svo hef ég líka verið að taka króm þannig að mig langar ekki jafn mikið í nammi.“ Íris þakkar þó ekki bara breyttu mataræði góðan árang- ur heldur líka breyttri andlegri heilsu. „Ég er ekkert bara búin að vera að pæla í mataræðinu, ég er líka búin að vera að koma mér upp úr veikindum og það spilar stóran þátt líka,“ segir Íris en hún hafði lengi glímt við þunglyndi. „Í mörg ár var tilfinning númer eitt, tvö og þrjú hjá mér reiði. Ég var reið yfir öllu. Fréttum, hvernig fólk sagði hlutina og bara hvernig það hreyfði sig. Ég var búin að vera glíma við þetta þunglyndi í mörg ár og svo nýlega fékk ég greiningu út úr því að ég væri með ADHD. Ég er búin að fá réttu lyfin við því. Ég finn bara fyrir því að þetta er að gera mér alveg rosalega gott. Kemur rútínu á lífið. Ég á auðveldara með að vakna á morgnana og fer fyrr að sofa á kvöldin.“ Íris segir fólk oft gleyma að huga að andlegu hliðinni. „Þú getur verið í ræktinni á fullu en ekkert gerist því að fólk gleymir að huga að sálarlífinu. Það þarf að læra að þekkja tilfinningar sínar og um leið og fólk nær að láta sér líða betur með sjálft sig þá fer því að líða betur líkam- lega og andlega.“ Lífsstílbreyting Írisar hefur haft margt jákvætt í för með sér og meðal annars er hún sest aftur á skólabekk, nokkuð sem hún gat ekki með góðu móti gert án lyfjanna. „Það geng- ur rosalega vel hjá mér í skól- anum og ég næ að fókusera miklu betur en ég gerði áður. Ég stefni á að fá mér stúdents- próf. Síðan er ég að vinna í alls konar verkefnum, er að vinna á Flass, gera eigið efni og svo er ég að stofna hljómsveit,“ segir Íris og horfir björtum augum til framtíðar. Fólk 23Miðvikudagur 18. janúar 2012 Nýtt líf Íris tileinkaði sér nýjan lífsstíl, hefur unnið sig upp úr þunglyndi og er sátt við árangurinn. Smáauglýsingar smaar@dv.is sími 512 7004 Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00 BÍLALIND.is - Funahöfða 1 110 Reykjavík - S: 580-8900 M.BENZ E320 03/2003, ekinn 105 Þ.km, bensín, sjálf- skiptur, lúga CLS-felgur ofl. Verð 3.390.000. Kíktu á raðnr 283963 á www.bilalind.is eða komdu við því bíllinn er í salnum! RENAULT TRAFIC MINIBUS 01/2007, ekinn 283 Þ.km, dísel, sjálf- skiptur, 9 manna. Tilboðsverð 1.690.000 stgr. Kíktu á raðnr 350441 á www.bilalind. is eða komdu við því bíllinn er á staðnum! MMC MONTERO ANNIVERSARY 33“ Árgerð 2003, ekinn 106 Þ.km, sjálf- skiptur. Verð 2.290.000. Kíktu á raðnr 320179 á www.bilalind.is eða komdu við því jeppinn er á staðnum! PORSCHE 944 Árgerð 1987, ekinn 147 Þ.km, sjálf- skiptur GULLMOLI. Verð 1.490.000. Kíktu á raðnr 283389 á www.bilalind.is eða komdu við því bíllinn er í salnum! SKODA OCTAVIA AMBIENTE 08/2004, ekinn 149 Þ.km, 5 gíra, ný nagladekk! Verð 890.000. Kíktu á raðnr 283904 á www.bilalind.is eða komdu við því bíllinn er á staðnum! DODGE DURANGO 4WD LIMITED 05/2005, ekinn aðeins 101 Þ.KM, sjálf- skiptur ofl. Gott verð 2.890.000. Kíktu á raðnr 283661 á www.bilalind.is eða komdu við því jeppinn er á staðnum! n Raflagnir n Tölvulagnir n Loftnetslagnir og uppsetningar n Gervihnatta- móttakarar n Ljósleiðaralagnir og tengingar n Raflagnateikningar n Lýsingarhönnun og ráðgjöf n Þjónustusamningar Pétur Halldórsson löggiltur rafverktaki petur@electropol.is, 8560090 Tek að mér ýmis smærri verkefni. Upplýsingar í síma 847-8704 eða á manninn@hotmail.com Til sölu Honda CRV Árgerð 2007. Keyrður innan bæjar 55.000 km. Svartur, aðeins einn eigandi og mjög vel farinn. Ásett verð 3.900.000 kr eða besta tilboð. Hann er á nýlegum heilsársdekkjum. Abs bremsur,geisla- diskaspilari, leðurklædd sæti. Aldrif og enginn áhvílandi lán á bílnum. uppl. í síma 891-9139. G óðir gestir heiðruðu listamennina Ólaf Ólafsson og Libiu á opnun sýn- ingarinnar Í afbyggingu í Listasafni Íslands þann 14. janúar. Sýningin kannar tilvistarlegar, ríkjandi efnahagslegar og pólitískar áherslur á Íslandi og víðar, með aðstoð myndbanda, gjörninga, skúlptúra, hljóðs og tónlistar. Meðal góðra gesta sem litu á opnun þeirra voru Ragnar Kjartansson, Katrín Jakobsdóttir og Guðmundur Stein- grímsson. Sýningin hefur þegar farið á 54. Feneyjatvíæringinn og fékk þar mjög góðar viðtökur. Á Ellefunni var Boz Boorer sem er hvað þekktastur fyrir að vera gítarleikari, með- höfundur og tónlistarstjóri Morrissey en margir segja hann eiga stóran þátt í að skapa honum þann nýja hljóm sem færði honum vinsældir á ný. Boorer var einnig gítarleikari New-Wave Rockabilly grúppunnar The Pole- cats. Áður en Boz steig á svið spilaði Smutty’s 302 og var Boz sveitinni innan handar. Rokk í borg Góðir gestir á opnun í Listasafni Ragnar Kjartansson, Libia og Ólafur voru hæstánægð með sýninguna í Listasafni Íslands. Össur með nýtt tattú Össur Hafþórs- son, annar eigenda húðflúrsstofunnar Reykjavík Ink, er kominn með nýtt húðflúr, stóra rós á barkakýlið. Boz Boorer Tónlistar- stjóri Morrissey spilaði fyrir gesti Ellefunnar sem voru ánægðir með kvöldið. Smutty Smutty í Smutty’s 302 stigu á svið. Björt framtíð og menningarmálaráðherra Guðmundur Steingrímsson í stjórnmálahre yf- ingunni Bjartri framtíð og Katrín Jakobs- dóttir menningarmálaráðherra mættu á op nun sýningarinnar Í afbyggingu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.