Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2012, Blaðsíða 8
8 Fréttir 23. janúar 2012 Mánudagur
Réð sig í vinnu og reglum var breytt
n Forseti bæjarstjórnar á Ísafirði beggja vegna borðs
E
iríkur Finnur Greipsson, for-
seti bæjarstjórnar á Ísafirði, var
ráðinn fjármálastjóri hjá Arc-
tic Odda ehf. á Flateyri viku
áður en bæjarstjórnin tók ákvörð-
un um breytingar á reglum um út-
hlutun byggðakvóta. Eiríkur Finnur
vék sæti á meðan málið var til með-
ferðar. Sjálfur segist hann ekki getað
svarað fyrir hvort það hafi haft áhrif
á ákvörðun bæjarstjórnar að hann
hafi verið ráðinn til starfa hjá fyrir-
tækinu.
Breytingar á reglunum hafa mikla
þýðingu fyrir Arctic Odda en félagið
hefur keypt eignir þrotabús Eyrar-
odda. Meðal þeirra eigna er vélbát-
urinn Stjáni Ebba ÍS sem var lítið á
veiðum á síðastliðnu fiskveiðiári.
Hefði reglunum ekki verið breytt
hefði það haft í för með sér að lít-
ill hluti úthlutaðs byggðakvóta félli
í hlut útgerðarinnar. Reglunum var
hins vegar breytt á þann veg að í stað
þess að litið sé til veiðireynslu síð-
ustu þriggja ára í stað síðasta eins árs
þegar kemur að úthlutun kvótans.
Það liggur fyrir að málið tók
breytingum eftir að Eiríki Finni var
boðin vinna hjá fyrirtækinu. „Mér
var boðin í síðustu viku vinna hjá
þessu fyrirtæki og fyrir þann tíma var
bæjarráð búið að vinna drög að til-
lögum sem breyttust allmikið í með-
förum eftir að ég kunngerði mína
breyttu hagi,“ segir Eiríkur. „Þannig
að ég veit ekkert hvort það er vegna
þess að ég er að vinna þarna sem
það breyttist en það er alveg klárt að
ég kom ekkert að málinu og það er
öðruvísi en ég hafði verið að vinna
að.“
Sjálfur segist Eiríkur Finnur ekki
getað svarað fyrir ákvörðun annarra
bæjarfulltrúa. „Þú verður að spyrja
þá að því, ég er ekki að greiða at-
kvæði. Ég get ekki svarað fyrir aðra.
Ég tek bara ákvörðun út frá eigin
sjónarmiðum og eigin skoðunum.
Þú verður að spyrja þau að því,“ seg-
ir Eiríkur Finnur aðspurður hvort
hann telji tengsl sín við bæjarfull-
trúa hafi haft áhrif á ákvörðunina.
„Vinatengsl geta auðvitað haft áhrif
en ég veit ekki hvort þetta ágæta fólk
taki afstöðu til málanna á grundvelli
þess.“
adalsteinn@dv.is
Þ
að eru þessir fáu svörtu sauð-
ir sem gera þetta. Meginhluti
manna hagar sér ekki svona,“
segir Tómas G. Gíslason, um-
hverfisstjóri hjá Mosfellsbæ.
Íbúi í Mosfellsbæ, sem leið átti um
göngustíga Lágafells í vikunni, tók
meðfylgjandi myndir á símann sinn.
Eins og sést á myndunum hafa
verið unnar miklar skemmdir á svæð-
inu með utanvegaakstri. Íbúanum
blöskraði aðkoman og sendi bæjar-
fulltrúum póst þar sem hann hvetur
til aðgerða til að sporna við ástand-
inu. „Sem íbúi í þessu nágrenni horfi
ég iðulega á krossara, hjól af öllum
gerðum, auk vélsleða og jeppa spól-
andi utan í Úlfarsfelli og Lágafelli,
að því er virðist athugasemdalaust,“
skrifar hann meðal annars í bréfinu
og kallar á aðgerðir.
Eins og sést á myndunum er stíg-
urinn illa farinn. Búið er að spóla
hann í spað auk þess sem skemmdir
hafa verið unnar á trjágróðri. Djúp-
ir skurðir hafa myndast eftir dekk
og það stórsér á svæðinu. Svo virðist
sem jeppaeigandi hafi gert sér að leik
að brjótast upp rennblautan slóðann
með þeim afleiðingum að hann virð-
ist ónýtur. „Eftir þessum stíg er óheft-
ur aðgangur ökutækja sem hægur
vandi væri að hefta með viðeigandi
vegtálma. Þetta á við um marga aðra
stíga í nágrenninu þar sem krossar-
ar spóla nánast daglega óáreittir svo
ætla mætti að um væri að ræða sér-
stakt athvarf fyrir mótorkrosshjól,“
segir íbúinn.
Hafa lokað slóðum
Tómas segir að bærinn hafi frá árinu
2010 verið í átaki gegn utanvega-
akstri. Unnið hafi verið að því að loka
stígum fyrir umferð vélknúinna öku-
tækja og vekja fólk til vitundar um
vandamálið. Hann segir í samtali við
DV að brot sem þessi séu oft erfið við
að eiga. Lögreglan hafi lítinn mann-
skap til að taka á brotunum og uppi
sé ákveðin óvissa um hvað þeir geti
gert í þessum málum. Enn fremur sé
oft um að ræða óskráð fjórhjól eða
mótorhjól sem erfitt sé að ná. „Við
höfum verið í því að loka slóðum og
setja upp skilti þar sem menn hafa
farið um. Í þessu tiltekna máli fór-
um við á staðinn og skoðuðum slóð-
ann í Lágafelli. Þar komast menn upp
en við ætlum að loka því betur,“ segir
Tómas.
Kortleggja alla slóða
Hann segir utanvegaakstur í Mos-
fellsbæ ekkert einsdæmi. Hann
bendir á að utanvegaakstur hafi ver-
ið vandamál í Úlfarsfelli sem sé að
mestu leyti á landi Reykjavíkurborg-
ar. Mosfellsbær hafi þó verið í sam-
bandi við borgina vegna Úlfarsfells.
„Við höfum í þessu átaki verið í sam-
ráði við landeigendur og hagsmuna-
aðila til að fyrirbyggja þetta,“ segir
hann.
Þess utan hafi vinna verið sett í
gang við að kortleggja alla slóða í
Mosfellsbæ. Það sé gert með hjálp
hestamannafélagsins í bænum, Vél-
hjólaklúbbsins Motomos og Slóða-
vina, svo einhverjir séu nefndir. „Við
viljum leysa úr óvissu með ákveðna
slóða og kortleggja alla slóða. Þann-
ig að fyrir liggi hvaða slóða má aka og
hvar þetta skarast,“ segir Tómas.
n Umhverfisspjöll í Mosfellsbæ n Göngustígar í Lágafelli stórskemmdir
EyðilEgging
í MosfEllsbæ
„… svo ætla mætti
að um væri að
ræða sérstakt athvarf
fyrir mótorkrosshjól.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Stígurinn ónýtur Óprúttnir aðilar,
stundum á ómerktum ökutækjum,
spóla þarna daglega að sögn íbúa.
Ætla að loka stígnum Mos-
fellsbær ætlar að bregðast við
ástandinu með því að loka stígum.
Ljót aðkoma Eins og sést
hafa ódæðismennirnir ekki
látið trjágróður hindra sig.
Vék sjálfur sæti Eiríkur
Finnur tók ekki þátt í afgreiðslu
málsins í bæjarstjórn.
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
Pallettu
tjakkur
EP Pallettu-tjakkur
2 tonna lyftigeta
31.990,-
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
Pallettu
tjakkur
EP Pallettu-tjakkur
2 tonna lyftigeta
31.990,-
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
Pallettu
tjakkur
EP Pallettu-tjakkur
2 tonna lyftigeta
31.990,-
Pallettu
tjakkur