Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2012, Side 22
Söngkona og skáld trúlofuð
n Stór tíðindi hjá Urði og Jóni Atla
Þ
au gleðitíðindi berast
nú um miðborg Reykja-
víkur að leikskáldið og
rithöfundurinn Jón Atli
Jónasson og söngkonan Urð-
ur Hákonardóttir séu búin að
trúlofa sig. Greint var frá sam-
bandi þeirra í fyrra en telja
má líklegt að ástin hafi tekið
öll völd ef marka má Facebo-
ok-síður þeirra en þar eru þau
sögð trúlofuð.
Jón Atli er handhafi
Gaddakylfunnar sem DV veitt
í samstarfi við Hið íslenska
glæpasagnafélag en hann á að
baki leiksýningarnar Djúpið,
Þú ert hér, Góðir Íslendingar,
Zombíljóðin og Nóttin nærist
á deginum, svo nokkur dæmi
séu tekin.
Urður Hákonardóttir er
hvað þekktust fyrir söng sinn
með hljómsveitinni Gus Gus.
Hún hefur sungið inn á tvær
plötur sveitarinnar, Forever
og Arabian Horse, en með-
limir sveitarinnar hlutu ný-
verið gullplötu fyrir þá síðar-
nefndu sem kom út í fyrra og
hlaut fantafínar viðtökur jafnt
hlustenda sem gagnrýnenda
en ásamt því vinnur Urður,
sem kallar sig Earth, að sinni
fyrstu sólóplötu sem er jafnvel
væntanleg á næstunni. Er það
mál manna sem stunda mið-
bæjarlífið hvað grimmast að
hér sé á ferðinni eitt glæsileg-
asta og listrænasta par lands-
ins, og jafnvel þótt víðar væri
leitað.
22 Fólk 23. janúar 2012 Mánudagur
Forsetinn
kynnir steypu
Forseti Íslands er nýkom-
inn heim til landsins eftir að
hafa verið viðstaddur þegar
Ólafur H. Wallevik prófessor
kynnti nýja aðferð við gerð
steinsteypu í samstarfi við
fyrirtækið ReadyMix í Abú
Dabí. Steinsteypan hefur
verið þróuð af honum og
samstarfsmönnum hjá Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands og
er talin sú umhverfisvænasta
í heimi.
Myndirnar
glataðar
Fyrr í vetur bauð fyrirsætan
Ásdís Rán áritað Playboy-
blað í fundarlaun til að end-
urheimta glataðan iPhone-
síma. Hún segir símann hafa
verið fullan af myndum af
börnunum sínum og sér
sjálfri auk persónulegra upp-
lýsinga.
Síminn er nú kominn í
leitirnar með aðstoð lög-
reglu sem tókst að finna
hann með sérstökum mið-
unarbúnaði. Ásdís Rán fór
og náði í símann en segir
öllum myndum hafa verið
eytt af honum sem henni
þykir mikill missir. „Ég veit
ekki hver stal honum,“ segir
Ásdís. „Þeim tókst að finna
símann og höfðu samband
við þá manneskju sem var
með hann og báðu hann
vinsamlegast um að skila
honum á lögreglustöðina. Sá
hinn sami sagðist hafa keypt
hann og ekki hafa vitað að
hann væri stolinn.“
Hass eins og
franskbrauð
Í sjónvarpsþættinum Týndu
kynslóðinni sem sýndur
var á föstudaginn var Idol
Stjörnuleit rifjuð upp. Þar
var meðal annars talað við
kynnana Simma og Jóa
og Bubba Morthens sem
gegndi dómarastöðu í þætt-
inum. Þar rifjuðu þeir upp
spennuna sem var á milli
Simma og Bubba í þættinum
en þeir skutu oft hvor á ann-
að í góðlátlegu gríni. Í eitt
skiptið fannst Simma Bubbi
ganga alltof langt þegar hann
sagði í beinni útsendingu að
Simmi hefði borðað hass-
köku í Amsterdam-ferð Idol
Stjörnuleitar. Simmi var afar
sár eftir ummælin en Bubba
fannst þetta ekki mikið
mál þar sem hann segir að
fyrir honum sé hass eins og
franskbrauð.
B
óndadegi er fagnað með mis-
munandi hætti víða um land
og víst er að margar konur
voru óvenju góðar við menn
sína. Samkvæmt gömlum
sið eiga bændur að fagna þorra með
því að fara fyrstir á fætur allra manna
á bænum þann morgun sem þorri
gengur í garð. Áttu þeir að fara ofan
og út í skyrtunni einni, vera bæði
berlæraðir og berfættir, en fara í aðra
brókarskálmina og láta hina svo lafa
eða draga hana eftir sér á öðrum
fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp
bæjardyrunum, hoppa á öðrum fæti
í kringum allan bæinn, draga eftir
sér brókina á hinum og bjóða þorra
velkominn í garð eða til húsa. Ekki er
víst að margir hafi leikið þennan sið
eftir.
Steindór kvað rímur
fyrir börnin
Börnin á leikskólanum Laufásborg
héldu bóndadaginn hátíðlegan með
því að bjóða í svokallað pabbakaffi.
Velflestir feðurnir náðu að skjótast frá
vinnu þennan dimma janúarmorg-
un. Það var vel þess virði því þegar í
skólann var komið biðu krakkarnir
þar keikir við morgunverðarborðið,
en við hinn hefðbundna morgun-
verð var búið að bæta hlaðborði með
kaffisopa og þorramat.
Þarna mátti finna hangikjöt, súra
hrútspunga, kæstan hákarl, sviða-
sultu og hvalspik. Þessi ljúfi matur
rann ágætlega niður með kaffibollan-
um en brennivíni var sleppt. Börnin
hikuðu sum dálítið við að tína upp í
sig súrmatinn en hangikjötið var vin-
sælt. Þegar matnum var lokið mætti
svo Steindór Andersen og flutti rímur
og kveðskap.
Fékk inniskó og
hádegisverð
Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi Besta
flokksins, segist hafa fengið höfð-
inglegt dekur í tilefni bóndadagsins.
Kærasta hans, Tobba Marinós, bauð
honum út að borða og gerði sérlega
vel við hann. „Maður trítar þetta í
drasl,“ segir Tobba. „Hann fékk inni-
skó og af því að hann er að fara í leik-
hús í kvöld, þá bauð ég honum í há-
degismat af fínna taginu. Hann fékk
humar-sushi og lamb og var hinn
ánægðasti.“ Tobba lét sér ekki nægja
að dekra við Karl heldur alla karl-
menn á Skjá einum. „Ég er í starfs-
mannafélaginu hjá Skjá einum og all-
ir karlmenn þar á bæ fengu bjórkippu
með slaufu utan um. Ég er alveg búin
að komast að því að blómin duga
ekki fyrir strákana,“ segir hún og hlær.
„Ég er búin að taka á móti fullmikið
af kossum í dag fyrir öll góðverkin.“
Dekraði við sig sjálfur
Garðar Gunnlaugsson var ekki heiðr-
aður á neinn sérstakan hátt á bónda-
degi af eiginkonu sinni Ásdísi Rán
sem er stödd í Búlgaríu.
„Ég fékk ekki neitt dekur. Kon-
an mín er náttúrulega stödd hinum
megin á hnettinum og ég efast reynd-
ar um að hún fatti að sé bóndadagur.
Ég er bara á leiðinni á æfingu og þarf
svo að sjá um mitt dekur sjálfur og
ætli ég fái mér bara ekki einn kaldan,“
segir hann og hlær og á þá við bjór-
inn sem hann framleiðir, Krumma.
„Mér sýnist á tvíræðu brosi eigin-
konu minnar að ég fái einhvers konar
bóndadagsmeðhöndlun í kvöld,“
sagði Guðmundur Steingrímsson í
Bjartri framtíð. „Ég hlakka nú bara til
eins og lítill drengur,“ sagði hann við
blaðamann og hló.
kristjana@dv.is
Bóndadekur
á bóndadegi
n Pabbamorgunn á Laufásborg n Ásdís Rán dekraði ekkert við Garðar
Fékk inniskó og hádegisverð Karl
Sigurðsson var dekraður af Tobbu Marinós og
fékk inniskó í tilefni bóndadagsins.
Fékk ekkert dekur Garðar Gunnlaugsson
heldur að eiginkonan hafi ekki hugmynd um
bóndadaginn og dekraði við sig sjálfur.
Gott kvöld í vændum Guðmundur Steingrímsson sagðist hlakka til kvöldsins eins og lítill
strákur og taldi líklegt að mikið dekur væri í uppsiglingu.
Listræn Urður og Jón Atli eru frjó þegar kemur að listinni.