Listin að lifa - 01.12.2015, Blaðsíða 6

Listin að lifa - 01.12.2015, Blaðsíða 6
Landsfundur LEB 2015: Ályktun um félags- og velferðarmál J i æí i i 1 V \ 1 Fundargestir á aðalfundi LEB 2015. Aldraðir sem komnir eru með gilt færni-og heilsumat eiga að hafa val um að fá notendastýrða persónulega aðstoð í heimahúsum til að geta verið heima eða farið á hjúkrunarheimili. Svo segir í ályktun landsfundar LEB frá því s.l. vor um félags og velferðarmál. Komið er inn á fjölmörg atriði í álykt- uninni sem tengjast þjónustu við eldri borgara, eins og að áfram skuli unnið að því að færa málefni aldraðra til sveit- arfélaganna. Þá vill Landsfundurinn að starfsmenn í félagslegri heimaþjónusm aldraðra framvísi sakavottorði og tali og skilji íslensku. Einnig eiga þeir að hafa lokið samræmdri viðurkenndri grunn- menntun. Námið gæd verið fjarnám með stuttum námskeiðum á vegum hvers sveitarfélags. Landsfundurinn gerir þá kröfu að hugað verði að nær- ingarbúskap aldraðra og að tekið sé mið af Manneldismarkmiðum Islend- inga í fæðuvali á hjúkrunarheimilum, þjónustumiðstöðvum ogí heimsendum máld'ðum. Landsfundurinn beinir því jafnframt til stjórnvalda að Öldungaráð í hverju sveitarfélagi eða í samvinnu sveitar- félaga verði lögfest sem réttbær tillögu —og umsagnaraðili um málefni eldri borgara og skorar á aðildarfélög LEB að beita sér fyrir stofnun öldungaráða Ofbeldi gagnvart öldruöum hefur ekki verið rannsakað hér á landi, en leiða má líkum að því að það sé svipað og hjá öðrum þjóðum þar sem það hefur verið rannsakað. Landsfundurinn telur nauð- synlegt að rannsaka ofbeldi gegn öldruðum. Aldursfordómar eru víða og geta leitt til ofbeldis. Landsfundurinn beinir því til land- læknisembættisins að hafa forgöngu um slíka rannsókn. 6 Landsfundur LEB 2015 fagnar því að komin er fram þingsályktun um Umboðsmann aldraðra og skorar á Alþingi að sam- þykkja tillöguna og koma á fót embætti umboðsmanns C/3 aldraðra. Einnig að réttar- gæslumenn fyrir aldraða verði hluti af félags- þjónustu sveitarfélaga. í sínu sveitarfélagi þar sem þau starfa ekki nú þegar. Öldungaráðin kynni sér m.a. þjónustu og aðbúnað eldra fólks á heimilum, í þjónustuíbúðum og á öldr- unarheimilum og leggi fram tillögur þar sem úrbóta er þörf. Bent er á að nú þeg- ar eru öldungaráð starfandi í mörgum sveitarfélögum. Landsfundurinn fagnar áframhald- andi starfi Velferðarvaktarinnar og góðrar samvinnu sem þar hefur tekist með ýmsum óh'kum félagasamtökum að styrkja velferð. Flestar af tillögum Velferðarvaktarinnar snerta hags- muni eldri borgara sem mikilvægt er að hrinda í framkvæmd svo sem að lágmarksviðmið til framfærslu verði skilgreind, fjárhagsleg staða leigjenda, búseturéttarhafa og eigenda íbúða sé jöfnuð, grunnþjónusta sé gjaldfrjáls og komið sé upp samhæfingaraðila máls sem tryggi að samstarf og samþætting eigi sér stað milh óh'kra þjónustukerfa. Hægt er að sjá ályktanir frá Landfundi LEB í heild sinni á www.leb.is.

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.