Listin að lifa - 01.12.2015, Side 6
Landsfundur LEB 2015:
Ályktun um félags- og velferðarmál
J
i æí i i
1 V \ 1
Fundargestir á aðalfundi LEB 2015.
Aldraðir sem komnir eru með gilt
færni-og heilsumat eiga að hafa val
um að fá notendastýrða persónulega
aðstoð í heimahúsum til að geta verið
heima eða farið á hjúkrunarheimili. Svo
segir í ályktun landsfundar LEB frá
því s.l. vor um félags og velferðarmál.
Komið er inn á fjölmörg atriði í álykt-
uninni sem tengjast þjónustu við eldri
borgara, eins og að áfram skuli unnið
að því að færa málefni aldraðra til sveit-
arfélaganna. Þá vill Landsfundurinn að
starfsmenn í félagslegri heimaþjónusm
aldraðra framvísi sakavottorði og tali og
skilji íslensku. Einnig eiga þeir að hafa
lokið samræmdri viðurkenndri grunn-
menntun. Námið gæd verið fjarnám
með stuttum námskeiðum á vegum
hvers sveitarfélags. Landsfundurinn
gerir þá kröfu að hugað verði að nær-
ingarbúskap aldraðra og að tekið sé
mið af Manneldismarkmiðum Islend-
inga í fæðuvali á hjúkrunarheimilum,
þjónustumiðstöðvum ogí heimsendum
máld'ðum.
Landsfundurinn beinir því jafnframt
til stjórnvalda að Öldungaráð í hverju
sveitarfélagi eða í samvinnu sveitar-
félaga verði lögfest sem réttbær tillögu
—og umsagnaraðili um málefni eldri
borgara og skorar á aðildarfélög LEB
að beita sér fyrir stofnun öldungaráða
Ofbeldi gagnvart öldruöum hefur ekki verið rannsakað hér á landi,
en leiða má líkum að því að það sé svipað og hjá öðrum þjóðum
þar sem það hefur verið rannsakað. Landsfundurinn telur nauð-
synlegt að rannsaka ofbeldi gegn öldruðum. Aldursfordómar eru
víða og geta leitt til ofbeldis. Landsfundurinn beinir því til land-
læknisembættisins að hafa forgöngu um slíka rannsókn.
6
Landsfundur LEB 2015
fagnar því að komin er
fram þingsályktun um
Umboðsmann aldraðra og
skorar á Alþingi að sam-
þykkja tillöguna og koma á
fót embætti umboðsmanns
C/3
aldraðra. Einnig að réttar-
gæslumenn fyrir aldraða
verði hluti af félags-
þjónustu sveitarfélaga.
í sínu sveitarfélagi þar sem þau starfa
ekki nú þegar. Öldungaráðin kynni sér
m.a. þjónustu og aðbúnað eldra fólks á
heimilum, í þjónustuíbúðum og á öldr-
unarheimilum og leggi fram tillögur þar
sem úrbóta er þörf. Bent er á að nú þeg-
ar eru öldungaráð starfandi í mörgum
sveitarfélögum.
Landsfundurinn fagnar áframhald-
andi starfi Velferðarvaktarinnar og
góðrar samvinnu sem þar hefur tekist
með ýmsum óh'kum félagasamtökum
að styrkja velferð. Flestar af tillögum
Velferðarvaktarinnar snerta hags-
muni eldri borgara sem mikilvægt er
að hrinda í framkvæmd svo sem að
lágmarksviðmið til framfærslu verði
skilgreind, fjárhagsleg staða leigjenda,
búseturéttarhafa og eigenda íbúða sé
jöfnuð, grunnþjónusta sé gjaldfrjáls og
komið sé upp samhæfingaraðila máls
sem tryggi að samstarf og samþætting
eigi sér stað milh óh'kra þjónustukerfa.
Hægt er að sjá ályktanir frá Landfundi
LEB í heild sinni á www.leb.is.