Listin að lifa - 01.12.2015, Blaðsíða 22

Listin að lifa - 01.12.2015, Blaðsíða 22
Landsmót UMFÍ 50+ Fjölmenni mætti til leiks á Blönduósi Hressar konur á 50+ tnótinu á Blönduósi. Landsmót UMFÍ 50+ var haldið á Blönduósi dagana 26. — 28. júní í sumar. Þetta var í 5. sinn sem slíkt mót er haldið á Islandi undir merki Ungmennafélags íslands. Mótshaldari voru auk UMFI, Ungmennasamband Austur-Húnvetn- inga og Blönduósbær. Keppnisgreinar á módnu voru 14 talsins: Boccia, bridds, dráttarvélaakst- ur, frjálsíþrótdr, golf, hestaíþrótdr, línu- dans, lomber, pútt, ringó, skák, stígvéla- kast, sund og víðavangshlaup. Keppnin hófst um hádegi á föstudegi en mótssetning var þá um kvöldið í félagsheimilinu. Gríðarlega góð mætíng var á setninguna og fylltíst húsið gjör- samlega. Það var Helga Guðrún Guð- jónsdóttir formaður UMFI sem settí mótíð, en einnig fluttu ávörp þeir Illugi Gunnarsson mennta- og menningar- málaráðherra, Einar Kristján Jónsson formaður Landsmótsnefndar 50+, Haukur Ingibergsson formaður Lands- sambands eldri borgara og Hilmar Val- garðsson fulltrúi Blönduósbæjar. Veðrið lék við mótsgesti alla helgina og ekki hefði verið hægt að óska sér betra veðurs. Sólin baðaði mótsgesti og vissulega hjálpaði veðrið til við fram- kvæmdina og gerði allt léttara. Allir dagskrárliðir fóru vel fram og keppt var af heiðarleika. Keppendur tókust vissulega á en fyrst og síðast var það ungmennafélagsandinn sem skap- aði frábæra umgjörð og stemmningu á þessu móti. Næsta mót verður haldið á Isafirði dagana 10. — 12. júm' á næsta ári. t—* Nokkrar mjndir frá mótinu sem varmjög vel hepptiað. 22 HHHHHHHHHIHHi I

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.